Hæstiréttur íslands

Mál nr. 599/2007


Lykilorð

  • Kærumál
  • Farbann
  • Úrskurður héraðsdóms felldur úr gildi


Fimmtudaginn 15

 

Fimmtudaginn 15. nóvember 2007.

Nr. 599/2007.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason, saksóknari)

gegn

X

(Jón Höskuldsson hrl.)

 

Kærumál. Farbann. Úrskurður héraðsdóms felldur úr gildi.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta farbanni samkvæmt b. lið 1. mgr. 103. gr., sbr. 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var felldur úr gildi.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. nóvember 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. nóvember 2007, þar sem varnaraðila var áfram bönnuð för frá Íslandi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 6. desember 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Varnaraðili hefur sætt farbanni frá 19. október 2007. Af þeim gögnum sem þá lágu fyrir var háttsemi varnaraðila ekki skýrlega sundurgreind frá háttsemi annarra grunaðra. Samkvæmt ákæru 13. nóvember 2007 er honum gefin að sök vopnalagabrot með því að hafa í fórum sínum táragasvopn og þjófnaðarbrot þar sem verðmæti andlags er talið hafa numið samtals 2.906 krónum. Þegar litið er til þessa þykja ekki efni til að beita farbanni samkvæmt 110. gr., sbr. b. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Dómsorð:

       Hinn kærði úrskurður er felldur úr gildi.

 

                                  Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. nóvember 2007.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt fram kröfu um að úrskurðað verði að X, kt. [...], verði bönnuð för frá Íslandi á meðan lögregla lýkur rannsókn og tekur ákvörðun um saksókn í nokkrum málum, sem snúa að aðild kærða í skipulögðum þjófnaðarbrotum á höfuðborgarsvæðinu, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 13. nóvember. 2007, kl. 16:00, vegna ætlaðra brota gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi haft til rannsóknar rúmlega tuttugu þjófnaðarmál úr verslunum, þar sem í öllum tilvikum hafi verið um að ræða að stolið hafi verið á opnunartíma verslananna með kerfisbundnum hætti dýrum smávarningi. Um mánaðarmótin september/október vöknuðu grunsemdir um að hópur fólks, frá Litháen, sem hér dvelur, stæði að þjófnuðunum. Gerð hafi verið húsleit í íbúð á 3. hæð Y, Reykjavík, 2. október sl. Í íbúðinni héldu til nokkrir Litháar, þar á meðal ákærði. Við húsleitina hafi verið lagt hald á mikið magn af munum, svo sem fatnað, snyrtivöru og ýmsan tæknibúnað. Í kjölfarið hafi ákærði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald miðvikudaginn 3. október sl. og í áframhaldandi gæsluvarðahald frá miðvikudeginum 10. október sl. til 19. október sl. en þann dag hafi ákærði verið úrskurðaður í farbann til 1. nóvember sl. sem var svo framlengt til dagsins í dag.

         Í dag höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu opinbert mál á hendur ákærða, þar sem honum sé gefið að sök þjófnaðarbrot og vopnalagabrot.

         Við rannsókn mála ákærða kom í ljós að hann hafi takmörkuð tengsl við landið.  Það sé því mat lögreglustjóra að nauðsynlegt sé að tryggja nærveru hans hér á landi til að hann geti ekki komið sér undan málsmeðferð fyrir dómi.  

       Í ljósi framangreinds, hjálagðra gagna og þeirra sjónarmiða sem fram koma í b-lið 1. mgr. 103. gr. og 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, sé þess farið á leit að fallist verði á framkomna kröfu.

         Því hefur verið slegið föstu með dómi Hæstaréttar Íslands frá 5. nóvember sl. að skilyrði hafi verið fyrir því að varnaraðili sætti farbanni á grundvelli 110. gr., sbr. b-lið 1.mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Fulltrúi lögreglustjóra hefur lagt fyrir dóminn afrit af ákæru frá því í dag þar sem varnaraðili er ákærður fyrir brot er hafa verið grundvöllur að farbanni yfir honum.  Verður því talið að lögregla hafi hraðað svo sem kostur er meðferð mála varnaraðila. Ætti að vera unnt að ljúka málum varnaraðila fyrir 6. desember nk. Verður því fallist á beiðni lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að kærði sæti farbanni svo sem greinir í úrskurðarorði.

Símon Sigvaldason héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Ú r s k u r ð a r o r ð:

Kærða, X, kt. [...], er bönnuð för frá Íslandi á meðan mál hans eru fyrir dómi, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 6. desember nk., kl. 16.