Hæstiréttur íslands
Mál nr. 651/2011
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 6. desember 2011. |
|
Nr. 651/2011. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Þorgeir Örlygsson og Benedikt Bogason settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 3. desember 2011 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 5. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. desember 2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 8. sama mánaðar klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Fallist er á með héraðsdómi að fullnægt sé skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. desember 2011.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur gert þá kröfu að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 8. desember 2011 kl. 16. Þá er þess krafist að honum verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi nú til rannsóknar lífhættulega skotárás á bifreið A, en skotið hafi verið tvívegis á bifreið hans föstudaginn 18. nóvember sl., þar sem hann hafi ekið bifreiðinni í [...]. Sæti nú tveir menn, Y og Z, gæsluvarðhaldi sterklega grunaðir um aðild að málinu.
Brotaþoli, A, og vitni sem hafi verið farþegi í bifreiðinni, lýsi atvikum þannig að meðkærði Z, hafi boðað A á sinn fund að kvöldi föstudagsins 18. nóvember sl. vegna tiltekinnar fíkniefnaskuldar. Er AgA og umrætt vitni hafi komið akandi á bifreið A á bifreiðaplani við bílasöluna [...], við [...] í [...], hafi meðkærði Z ekið bifreið sinni í veg fyrir bifreið A. Út úr bifreið Z hafi stigið þrír menn, þ.e. Z sjálfur og tveir menn sem hulið hafi andlit sín. Hafi annar mannanna verið með haglabyssu í hendi. Hafi A þá reynt að aka bifreið sinni aftur á bak frá mönnunum og hafi þá annar mannanna skotið úr byssunni og höglin lent á framenda bifreiðarinnar. Eftir þetta hafi Z og mennirnir tveir farið inn í bifreið Z og ekið mjög greitt á eftir A. Er A hafi komið að hringtorgi við bifreiðaumboð [...] við [...] þá hafi Z ekið bifreið sinni upp að bifreið hans og hafi þá verið skotið öðru sinni á bifreiðina með þeim afleiðingum að afturrúðan mölbrotnaði og högl m.a. hafnað í farþegasæti bifreiðarinnar.
Sunnudaginn 20. nóvember sl. hafi kærði Z verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hafi Z viðurkennt að nokkru leyti aðild sína að málinu. Hann kveðst þó ekki hafa vitað að skotvopn hafi verið með í för og ekki tekið eftir því er skotið hafi verið úr byssunni í fyrra skiptið. Þá hafi hann ekki viljað upplýsa lögreglu hverjir hafi verið með honum í umrætt sinn.
Mánudaginn 28. nóvember hafi Y verið handtekinn grunaður um aðild að málinu og í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Í máli þessu liggi fyrir að meðkærðu Z og Y hafi verið í miklum símasamskiptum stuttu fyrir skotárásina. Fyrir liggi framburður um að þeir hafi átt fund saman rétt fyrir árásina, þar sem Z hafi borið upp vandræði sín gagnvart A og óskað eftir aðstoð Y í málinu. Þá liggi fyrir að þeir hafi verið saman laugardaginn 19. nóvember á sveitabæ í [...]. Fram sé kominn framburður aðila, sem hafi verið með Z og Y föstudaginn 18. nóvember, sem skoðað hefur myndband af fyrri skotárásinni, þess efnis að til greina komi að sá sem skjóti úr byssunni sé kærði Y. Þeir lögreglumenn sem horft á hafa á umrætt myndband telji sig þekkja kærða Y sem þann aðila sem skjóti úr byssunni. Þá liggi og fyrir að á verknaðarstundu hafi sími Y tengst við sendi sem staðsettur er við [...] í [...].
Í gær hafi lögreglan framkvæmt húsleit á heimili kærða X og fundið þar og lagt hald á m.a. afsagaða haglabyssu og haglaskot. Við rannsókn tæknideildar lögreglu á forhlöðum hinna haldlögðu skothylkja hafi kom í ljós að eitt þeirra sé að útliti og lögun eins og forhlöðin sem hafi fundist á vettvangi. Vinni lögreglan nú að frekari rannsókn á hinni haldlögðu byssu.
Þá hafi og komið fram við rannsókn málsins að kærði X hafi verið í símasamskiptum við meðkærðu Z og Y um það leyti sem árásin hafi átt sér stað. Fyrir liggi að sími Y hafi tengst sendi sem staðsettur er við heimili X stuttu eftir árásina. Við húsleit lögreglu hafi lögreglan lagt hald á myndavél, þar sem finna megi mynd af X og Y, sem tekin hafi verið á heimili X stuttu eftir skotárásina. Fyrir liggi í málinu að allir kærðu, X, Z og Y, hafi hist á bar í [...] kvöldið fyrir skotárásina.
Í skýrslutökum í gær hafi neitað kærði X allri aðild að málinu. Í fyrstu kvaðst hann ekki hafa vitað um skotvopnið á heimili sínu, en hafi svo kannast við að hafa verið með það en hafi ekki viljað með neinum hætti upplýsa lögreglu um hvenær eða hvernig hann hafi komist yfir það. Þá hafi hann í fyrstu ekki kannast við að hafa verið í sambandi við kærða Z eða Y stuttu fyrir árásina. En við frekari spurningar lögreglu hafi hann viðurkennt að hafa verið í samskiptum við þá. Hann hafi ekki getað gert grein fyrir ferðum sínum 18. nóvember, hann kvaðst vera nýbúinn að eiga afmæli og verið að „djamma.”
Það sé mat lögreglustjóra að lagaskilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála sé fullnægt í máli þessu, enda sé kærði X nú undir rökstuddum grun um aðild að tilraun til manndráps, þannig að varði við 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá sé rannsókn málsins hvergi nærri lokið og því afar brýnt að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, þannig að hann fái ekki tækifæri til að torvelda rannsókninni, s.s. með því að koma undan munum, hafa áhrif á aðra samseka eða vitni.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a. liðar 1. mgr. 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Kærði er undir rökstuddum grun um aðild að tilraun til manndráps samkvæmt 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga, en hjá honum fannst haglabyssa og skotfæri sem kunna að hafa komið við sögu í brotinu. Brotið getur varðað allt að 16 ára fangelsi, sbr. 2. mgr. 218. gr. eða 211. gr., sbr. 20. gr., almennra hegningarlaga. Hljóta rannsóknarhagsmunir að krefjast þess að kærði gangi ekki laus, sbr. a. lið 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Ber því að ákveða að kærði sæti gæsluvarðhaldi eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð :
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 8. desember 2011, kl. 16.00.
Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.