Hæstiréttur íslands

Mál nr. 436/2000


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
  • Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Föstudaginn 1

 

Föstudaginn 1. desember 2000.

Nr. 436/2000.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Pétur Örn Sverrisson hdl.)

                                                   

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. og B. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. og b. liða 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. nóvember 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 30. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. nóvember 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 10. janúar 2001 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. nóvember 2000.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess með vísan til a- og b-liða 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 að X [ . . . ] verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, frá lokum þess gæsluvarðhalds sem hann nú sætir en lýkur í dag kl. 16:00, uns dómur gengur í málinu, en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 10. janúar 2001, kl. 16:00.

[ . . . ]

Kærði hefur mótmælt framkominni kröfu.

Kærði hefur setið í gæsluvarðhaldi, sem lýkur í dag kl. 16.00, vegna rannsóknar á ætlaðri aðild hans og tveggja annarra Ítala að innflutningi fíkniefna þ.e. ætluð brot á  173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Rannsókn málsins er ekki lokið og gera má ráð fyrir að kærði, sem er erlendur ríkisborgari, færi af landi brott yrði varðhaldsvistinni aflétt. 

Með vísan til framanritaðs, framlagðra gagna og a- og b-liða 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík um gæsluvarðhald yfir kærða tekið til greina eins og hún er fram sett.

Sigurður Hallur Stefánsson kvað upp úrskurðinn.

 

Úrskurðarorð

Kærði X sæti áfram gæsluvarðhaldi  uns dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 10. janúar 2001, kl. 16:00.