Hæstiréttur íslands

Mál nr. 568/2017

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (Saga Ýrr Jónsdóttir hdl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Benedikt Bogason og Karl Axelsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. september 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 11. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. september 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. september 2017 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og sér ekki gert að sæta einangrun.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Varnaraðili er undir rökstuddum grun um að hafa gerst sekur um brot gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem fangelsisrefsing liggur við, sbr. dóm Hæstaréttar 29. ágúst 2017 í máli nr. 533/2017. Vegna umfangs rannsóknar málsins er fullnægt skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til að varnaraðili sæti áfram gæsluvarðhaldi þann tíma sem krafist er og einangrun meðan á því stendur, sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.         

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness föstudaginn 8. september 2017

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að X  fæddur [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. september 2017 kl. 16:00. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að hann hafi nú til rannsóknar innflutning á fíkniefnum hingað til lands. Lögreglu hafi borist upplýsingar um að grunur léki á að [...] bifreiðinni [...] væru falin fíkniefni, en bifreiðin hafi verið um borð í ferjunni [...] á leið hingað til lands. Ökumaður bifreiðarinnar hafi verið Y. Ferjan hafi komið hingað til lands frá Danmörku að morgni fimmtudagsins 24. ágúst. Við skoðun á bifreiðinni hafi komið í ljós froðukenndur vökvi sem virtist hafa lekið úr undirvagni bifreiðarinnar. Við frekari skoðun og frumrannsókn lögreglu hafi komið í ljós að um væri að ræða amfetamínvökva. Með heimild Héraðsdóms Reykjaness hafi lögreglan m.a. komið fyrir eftirfararbúnaði undir bifreiðinni og fylgt henni eftir þar sem henni hafi verið ekið áleiðis til Reykjavíkur. Y hafi komið til Reykjavíkur seint á fimmtudagskvöldi og lögregla fylgst með ferðum hans.

Er Y kom til Reykjavíkur hafi hann lagt bifreiðinni við [...] við Suðurlandsbraut í Reykjavík þar sem hann beið þar til [...] bifreið, sem í voru X, Z og Þ, var ekið að honum og úr henni kom Z og settist inn í [...] bifreiðina. Bifreiðunum hafi síðan báðum ekið að gistiheimili við [...] í Reykjavík þar sem fjórmenningarnir hafi farið inn. Á leiðinni að gistiheimilinu hafi mátt heyra Y og Z ræða saman m.a. um það hvort leitað hafi verið í [..] bifreiðinni á tollsvæðinu á Seyðisfirði. Skömmu síðar hafi mennirnir sést fara út og skoða [...] bifreiðina. Að morgni 25. ágúst sl. hafi Z og Þ síðan ekið [...] bifreiðina um miðborgina og að lokum inn í bílskúr við [...] í Reykjavík þar sem Z og Þ hafi verið handteknir skömmu síðar. Um svipað leiti hafi X komið keyrandi á [...] bifreiðinni og lagt henni utan við [...] til móts við bílskúrinn en þegar hann varð var við lögreglu hafi hann tekið til fótanna og hlaupið suður [...] þar sem hann var handtekinn stuttu síðar. Í framhaldi hafi Y verið handtekinn á gistiheimilinu við [...]

Þann 25. ágúst sl. hafi kærðu öllum verið, með úrskurðum Héraðsdóms Reykjaness, gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna til dagsins í dag sem staðfest var með dómum Hæstaréttar Íslands.

Þá segir í greinargerðinni að við rannsókn á [...] bifreiðinni hafi komið í ljós að við haldlagningu í framhöggvara bifreiðarinnar hafi verið 1328 millilítrar af amfetamíni en við mælingar lögreglu hafi komið í ljós að höggvarinn rúmi 5240 millilítra. Þá hafi rannsókn lögreglu leitt í ljós að Z og Þ hafi komið hingað til lands, með flugi frá Póllandi þar sem þeir séu búsettir, að kvöldi 24. ágúst sl. þ.e. sama dag og Y hafi komið til landsins með ferjunni. Við yfirferð á hlustunum hafi einnig komið fram að Y átti í símasamskiptum við nokkra aðila meðan hann keyrði frá Seyðisfirði til Reykjavíkur en þeirra á meðal var Þ. X sé búsettur hér á landi og sé það grunur lögreglu að hann hafi átt að taka á móti mönnunum og vera þeim innan handar með aðstöðu en við rannsókn lögreglu hefur komið í ljós að X sé sá sem pantaði herbergi fyrir Z, Þ og Y á gistiheimilinu. Hann hafði samkvæmt eigin framburði afnot af bílskúrnum í [...] og þá hafi fundist talstöðvar bæði í [..] bifreiðinni og [...] bifreið X sem talið sé að notaðar hafi verið í samskiptum fjórmenningarnir eftir að þeir hittust við [...] að kvöldi 24. ágúst sl.

Ennfremur segir að unnið sé hörðum höndum að rannsókn málsins sem sé yfirgripsmikil. Lögregla hafi yfirheyrt fjórmenningana í þrjú skipti og ljóst sé að enn ber nokkuð á milli í framburðum þeirra. Lagt hafi verið hald á umtalsvert magn síma- og tölvubúnaðar sem enn sé verið að skoða og afrita og enn eigi eftir að bera þau gögn undir kærðu. Þá sé verið er að kortleggja ferðir kærðu og kanna með mögulegar fyrri ferðir þeirra hingað til lands. Einnig sé leitað mögulegra samverkamanna bæði hér á landi og erlendis og beðið sé eftir gögnum sem óskað hafi verið eftir frá dönskum og pólskum yfirvöldum sem mögulega þurfi að bera undir kærðu. 

Í ljósi alls ofangreinds sé það mat lögreglu að miklu skipti að orðið verði við kröfu lögreglustjóra um áframhaldandi gæsluvarðhald og einangrun enda sé ljóst að kærðu séu allir undir rökstuddum grun um aðild að innflutningi á miklu magni af sterkum fíkniefnum hingað til lands sem ætla megi að hafi verið flutt hingað til lands til sölu og dreifingar. Þá sé ljóst að ef kærðu gangi lausir þá geti þeir haft áhrif á framburð hvers annars og á mögulega samverkamenn og hætt sé við því að kærðu geti komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögreglan hafi ekki lagt hald á nú þegar.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr., sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga,  er þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.

Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um aðild að innflutningi á miklu magni af sterkum fíkniefnum og getur meint brot varðað fangelsisrefsingu sannist sök. Rannsókn málsins er langt komin en enn á eftir að vinna úr miklu magni gagna sem lögregla hefur aflað og virðast umfangsmikil auk þess sem lögregla bíður gagna frá Póllandi og Danmörku sem á eftir að bera undir kærðu. Haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins, s.s. með því að koma sönnunargögnum undan eða hafa samband við samseka. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfur lögreglustjóra eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

                Úrskurð þennan kveður upp Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari. 

Úrskurðarorð:

Kærða, X, er gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. september 2017, kl. 16:00.

                Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur.