Hæstiréttur íslands

Mál nr. 434/2012


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                     

Miðvikudaginn 20. júní 2012.

Nr. 434/2012.

Ákæruvaldið

(Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari)

gegn

Y

(Oddgeir Einarsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að Y skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma Garðar Gíslason hæstaréttardómari og Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson settir hæstaréttardómarar.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. júní 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 18. júní 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 20. júní 2012 klukkan 16. Kæruheimild er í b. lið 2. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 18. júní 2012.

Ríkissaksóknari hefur í dag krafist þess að ákærða, Y, kennitala [...], til heimilis að [...] í [...], verði með úrskurði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur Héraðsdóms Reykjaness gengur í máli hans, þó ekki lengur en til miðvikudagsins 20. júní 2012, kl. 16:00.

Í greinargerð ríkissaksóknara segir að með bréfi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags. 7. febrúar 2012, hafi ríkissaksóknara borist gögn í máli 007-2011-[...]. Með ákæru, dags. 14. mars 2012, hafi ríkissaksóknari höfðað sakamál á hendur Z, kennitala [...], Y, kennitala [...], Þ, kt. [...], Æ, kt. [...], X, kt. [...] og Ö, kt. [...] sem hér greinir:

I.

Gegn ákærðu Z, Y, Þ, X og Ö fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, rán, nauðgun og þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi, aðfaranótt fimmtudagsins 22. desember 2011. Að undirlagi ákærða Y og ákærðu Z, sem lögðu á ráðin og skipulögðu verknaðinn, héldu ákærðu Z, X, Þ og Ö að heimili A, kt. [...], að [...] í [...]þar sem ákærði Ö lauk upp útidyrunum með lykli, skildi dyrnar eftir ólæstar og greiddi þannig fyrir inngöngu meðákærðu Z, Þ og X, sem skömmu síðar ruddust í heimildarleysi inn á heimili A og veittust að B, kennitala [...], sem var staddur í íbúðinni, þvinguðu hann með ofbeldi út úr íbúðinni og læstu útidyrunum. Þá veittust þau með ofbeldi að A, slógu og spörkuðu ítrekað í höfuð hennar og líkama, m.a. með leðurkylfu, skelltu henni í gólfið, drógu hana á hárinu um íbúðina, reyttu og klipptu eða skáru hár hennar og rifu það upp með rótum, skáru eða klipptu í hægri vísifingur hennar, slitu upp nögl á sama fingri, hótuðu því að taka af henni alla fingur ef hún segði til þeirra og neyddu upp í hana fíkniefnum. Þá lagði ákærða Z hníf að hálsi A, auk þess sem hún tók um háls A og þrengdi að öndunarvegi hennar. Ákærði Þ stakk fingrum upp í endaþarm A og leggöng og klemmdi á milli ennfremur sem hann sagði við hana að hún hefði ekki átt að „fokkast í þessari fjölskyldu“. Ákærðu Z, X og Þ höfðu á brott með sér farsíma þeirra A og B auk lyklakippu A sem hafði m.a. að geyma hús-, bíl- og auðkennislykil. Ákærði Ö skildi A eftir meðvitundarlitla, liggjandi í blóði sínu án bjargar og læsti útidyrahurðinni er hann hafði sig á brott.

Brot ákærðu var liður í starfsemi skipulagðra brotasamtaka en ákærðu öll eru meðlimir í eða hafa tengsl við samtök sem lögregla hér á landi og erlendis hefur skilgreint sem alþjóðleg glæpasamtök, en samtökin eru [...] auk stuðningssamtakanna [...] og [...]. Verknaður ákærðu var annars vegar hefndaraðgerð og hins vegar liður í því að endurheimta bifhjól sem ákærða Z taldi vera í sinni eigu en komst í vörslur A skömmu fyrir árásina og til að endurheimta farsíma ákærðu Z sem var einnig í vörslum A og hafði að geyma tilteknar myndir af ákærðu Z.

Við atlöguna hlaut A heilahristing, mar, skrámur og yfirborðshrufl á andliti, gagnaugum, hægri eyrnasnepli og höfði, glóðarauga og bólgu á vinstra auga, skallabletti í hársverði, mar á hægra kjálkabarði, mar og roðaför hægra megin á hálsi, dreifð eymsli í brjóstkassa og yfirborðsáverka á kvið, yfirborðsáverka á baki, roðabletti og fjölmargar rispur á upphandleggjum, báðum öxlum og ofanverðu baki, mar á vinstri kálfa, mar og eymsli á hægri sköflungi og tognun í lendhrygg, brjósthrygg og hálshrygg, alldjúpan 2 sm skurð á hægri vísifingri og lausa nögl, roða og margar húðrispur innanvert á lærum, bogadregna rispu rétt utan við endaþarmsop vinstra megin, stóran marblett á vinstri rasskinn og annan minni þar fyrir neðan, mikil eymsli í endaþarmi, leggöngum og spönginni þar á milli og áfallastreituröskun.

Brot ákærðu Z, Y, Þ, X og Ö teljast varða við 175. gr. a., 1. mgr. 194. gr., 2. mgr. 218. gr. og 252. gr., , almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk þess sem brot ákærða Ö telst einnig varða við 1. mgr. 220. gr. sömu laga.

II.

Gegn ákærða Æ fyrir þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi, sbr. I. ákærulið, með því að hafa, að tilstuðlan ákærða Einars Inga fyrir árásina sem þar er lýst, tekið við poka skömmu eftir árásina sem hafði að geyma fatnað, þ.e. skíðagrímu og jakka, sem ákærði Þ klæddist við árásina, auk ofangreindrar leðurkylfu, en ákærðu Z, X og Þ afhentu ákærða Æ pokann á dvalarstað hans að [...],[...]. Ákærði Æ geymdi innihald pokans á heimili sínu þar til lögregla haldlagði munina þann 30. desember 2011.

Telst þetta varða við 175. gr. a. almennra hegningarlaga.

Málið, sem fékk númerið S-215/2012, hafi verið þingfest þann 30. mars sl. í Héraðsdómi Reykjaness og hafi ákærði Y neitað sök og hafnað framkominni bótakröfu. Aðalmeðferð málsins hafi hafist 23. maí sl., og henni lokið þann 9. maí sl. og  málið þá dómtekið. Dómsformaður hafi gert viðvart um að vegna umfangs málsins væri fyrirséð að dómsuppsaga dragist á langinn. Samkvæmt hjálögðu tölvubréfi dómsformanns,  sem hafi verið sent öllum málflytjendum þann 15. júní 2012, sé fyrirhugað að kveða upp dóm í málinu næstkomandi miðvikudag, þann 20. júní 2012.

Að mati ríkissaksóknara liggi ákærði undir sterkum grun um að hafa í félagi við aðra ákærðu framið þau brot sem tilgreind séu í ákæru. Þá varði brot gegn 1. mgr. 194. gr., 2. mgr. 218. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 allt að 16 ára fangelsi. Með hliðsjón af alvarleika sakarefnis og þess að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo stendur á sé þess krafist að ákærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans er til meðferðar fyrir héraðsdómi, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Að öðru leyti er vísað til fyrri úrskurða Héraðsdóms Reykjaness um gæsluvarðhald ákærða, nr. R-43/2012, R-47/2012, R-90/2012, R-132/2012, R-198/2012, R-243/2012 og R-272/2012 og dóma Hæstaréttar nr. 41/2012, 51/2012, 109/2012, 167/2012, 244/2012, 324/2012 og 396/2012.

Að öllu framangreindu virtu, sem og gögnum málsins að öðru leyti og með vísan til dóms Hæstaréttar frá 8. júní sl. í máli nr. 396/2012, verður fallist á það með ríkissaksóknara að fyrir hendi sé sterkur grunur um að kærði hafi framið afbrot sem þung fangelsisrefsing er lögð við, allt að 16 ára fangelsi. Verður talið að meint brot séu þess eðlis að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Krafan verður því tekin til greina eins og hún er fram sett og kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 20. júní 2012, kl. 16:00.

Úrskurð þennan kveður upp Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari.

Ú r s k u r ð a r o r ð:

Ákærði, Y, sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur Héraðsdóms Reykjaness gengur í máli hans, þó ekki lengur en til miðvikudagsins 20. júní 2012, kl. 16:00.