Hæstiréttur íslands
Mál nr. 477/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
- Tilhögun gæsluvarðhalds
|
Mánudaginn 9. ágúst 2010. |
|
|
Nr. 477/2010. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Sigmundur Hannesson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. og b. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Tilhögun gæsluvarðhalds.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. og b. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur. Þá var einnig staðfestur úrskurður héraðsdóms um að hafna breyttri tilhögun gæsluvarðhalds.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. ágúst 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. ágúst 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 27. ágúst 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að henni verði gert að sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur á þann hátt sem í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Varnaraðili, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 27. ágúst 2010. Varnaraðili sæti takmörkunum samkvæmt c. og d. liðum 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála á meðan á gæslunni stendur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. ágúst 2010.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, f. [...]. [...] [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 27. ágúst 2010 kl. 16.00.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnabrot. Við tolleftirlit 17. júní sl. hafi tollverðir og lögregla fundið um 20 lítra af amfetamínvökva í eldsneytistanki bifreiðarinnar [...] við komuna til Seyðisfjarðar með Norrænu. Samkvæmt áliti lyfjafræðistofnunnar sé unnt að útbúa um 250 kíló af neysluhæfu amfetamíni úr hinum haldlagða vökva.
Kærða, sem hafi verið ökumaður og eigandi bifreiðarinnar, hafi neitað allri aðild að málinu. Hún hafi skýrt frá því að hún hafi komið hingað til lands ásamt vinkonu sinni og meðkærðu A og tilgangur ferðarinnar hafi verið að heimsækja Bláa lónið.
Með úrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur 18. júní, 2. og 16. júlí sl. hafi kærðu verið gert að sæta gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Hafi henni jafnframt verið gert að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga. Úrskurðirnir hafi verið staðfestir með dómum Hæstaréttar Íslands nr. 393/2010 og 430/2010 og dómi réttarins 20. júlí sl.
Rannsókn málsins sé langt á veg komin. En málið hafi m.a. verið unnið með aðstoð þýskra lögregluyfirvalda. Teknar hafi verið skýrslur af aðilum búsettum í Þýskalandi, jafnframt sem framkvæmdar hafi verið húsleitir þar í landi.
Við rannsókn málsins hafi kærða X skýrt frá því að maður að nafni B, f. [...]. [...] [...], hafi gefið henni umrædda bifreið um miðjan maí sl. Þá hafi hann einnig greitt fyrir ferð hennar og meðkærðu A hingað til lands. Um hafi verið að ræða vinargreiða.
Þá hafi kærða einnig skýrt frá því að hún hafi ekið ofangreindri bifreið, ásamt vinkonu sinni C, frá Þýskalandi til Litháen 5. júní sl. Þar hafi ofangreindur maður, B, tekið á móti þeim. B hafi tekið við umræddri bifreið og ferðapappírum kærðu X og A hingað til lands og skilað sólarhring seinna og þá með þeim fyrirmælum að ekki mætti aka bifreiðinni meira en 300 kílómetra án þess að taka eldsneyti.
Það sé grunur lögreglu að umræddum fíkniefnum hafi verið komið fyrir í bifreiðinni í Litháen og að B hafi átt aðild að því.
Umræddur B hafi hlotið fjögra ára fangelsisrefsingu með dómi Hæstaréttar Íslands [...]. [...] [...] í máli nr. [...], fyrir að hafa flutt hingað til lands um 2 lítra af amfetamínvökva og brennusteinssýru.
Með réttarbeiðni lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 16. júlí sl., hafi verið óskað eftir því við litháísk lögregluyfirvöld að haft yrði uppi á umræddum B, hann handtekinn og yfirheyrður í þágu rannsóknar málsins. Litháísk yfirvöld hafi ákveðið að verða við beiðni lögreglustjóra.
Kærða sé undir sterkum rökstuddum grun um að eiga aðild að innflutningi á gífurlegu magni hættulegra fíkniefna þannig að varði við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Stefnt sé að því að ljúka rannsókn málsins innan umkrafins gæsluvarðhaldstíma og senda málið ríkissaksóknara til ákvörðunar um saksókn.
Það sé mat lögreglustjóra að lagaskilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 sé fullnægt, enda megi ætla, gangi hún frjáls ferða sinna, að hún kunni að torvelda rannsókn málsins, s.s. með því að setja sig í samband við ofangreindan B, en litháísk lögregluyfirvöld hafi ekki enn yfirheyrt hann vegna málsins. Á hinn bóginn, í ljósi þess hve rannsókn málsins sé langt á veg komin, telji lögregla ekki lengur þörf á að kærðu verði gert að sæta einangrun, skv. b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, enda unnt að tryggja rannsóknarhagsmuni málsins skv. öðrum liðum ákvæðisins.
Í málinu liggi fyrir dómar Hæstaréttar Íslands um nauðsyn þess að kærða sæti gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins og ekkert nýtt fram komið í málinu sem breytt geti því mati.
Þá sé það og mat lögreglustjóra að nauðsynlegt sé að kærðu verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, ella séu yfirgnæfandi líkur til þess að hún muni reyni að koma sér úr landi og þannig undan frekari lögreglurannsókn og eftir atvikum dómsmeðferð. En kærða sé án allra tengsla við land og þjóð og eigi yfir höfði sér þunga fangelsisrefsingu sannist sök hennar. Það sé því afar brýnt að tryggð verði nærvera hennar á meðan mál hennar sé til meðferðar hjá lögreglu og hugsanlega dómstólum.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a. og b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Samkvæmt framansögðu er kærða undir rökstuddum grun um að hafa brotið gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað getur allt að 12 ára fangelsi. Um er að ræða umfangsmikið brot á fíkniefnalöggjöfinni og er rannsókn þess á lokastigi. Er fallist á með lögreglu að brýnir hagsmunir séu fyrir því að kærðu verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hennar er til rannsóknar, enda verður að telja hættu á að hún geti spillt rannsókn málsins gangi hún laus svo sem með því að hafa áhrif á vitni eða samseka. Kærða er erlendur ríkisborgari og hefur engin tengsl við landið. Þá liggur fyrir að enn er eftir að taka skýrslur af nánar tilgreindum aðila búsettum í Litháen, og grunur leikur á að tengist málinu. Samkvæmt framansögðu þykir verða að fallast á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík, eins og hún er sett fram, með vísan til a-liðar og b- liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Í ljósi rannsóknarhagsmuna og alvarleika brots sem kærða er grunuð um að hafa framið er fallist á að kærða sæti takmörkunum í gæslunni samkvæmt c-, og d- liðum 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.
Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
Kærða, X, fædd [...]. [...] [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 27. ágúst nk. kl. 16.00.