Hæstiréttur íslands

Mál nr. 561/2006


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Föstudaginn 27

 

Föstudaginn 27. október 2006.

Nr. 561/2006.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Björn L. Bergsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. október 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 25. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. október 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 31. október 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. október 2006.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur lagt fram kröfu þess efnis að X, [kt. og heimilisfang], sæti gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 31. október 2006, kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglunnar segir að ávana- og fíkniefnadeild embættisins rannsaki til­raun til innflutnings á miklu magni af fíkniefnum til landsins frá Danmörku.  Fíkniefnin hafi veirð falin í tölvum sem afhentar hafi verið til sendingar hjá Y í Danmörku og verið merktar tæknideild Glitnis, Kirkjusandi, Reykjavík.  Lögregla í Danmörku hafi lagt hald á fíkniefnin þann 18. þ.m. og komið upplýsingum um málið áleiðis til lögreglu hér á landi.  Tölvurnar hafi síðan verið sendar áfram til Íslands með Y flugleiðis og komið til Keflavíkurflugvallar þann 20. þ.m.  Grunur lögreglu hafi beinst að því að starfsmaður eða starfsmenn hjá Y á Íslandi kynnu að vera viðriðnir málið, mögulega A, sem sé starfsmaður fyrirtækisins.  Upplýsingar hafi fengist um að A mundi sækja sendinguna á flugvöllinn ásamt öðrum sendingum á vegum fyrirtækisins sunnu­daginn 22. þ.m.  Sé nánar vísað til greinargerðar Kristjáns Ó. Guðnasonar, aðst. yfir­lögregluþjóns, dags. 20. þ.m.

Við eftirlit í gær hafi orðið ljóst að A hafi farið með tölvusendinguna ásamt öðrum sendingum í útkeyrslu til móttakenda.  Hafi A verið fylgt eftir þar sem hann fór að starfsstöð Glitnis að Kirkjusandi en afhenti aðra sendingu, ótengda tölvu­send­ingunni.  A hafi lokið starfsdegi sínum síðdegis sama dag og skilið tölvurnar eftir í bif­reiðinni sem lagt var fyrir utan starfstöð fyrirtækisins í Hafnarfirði.  Í tölvukerfi fyrir­tækisins við lok starfsdags hefði A skráð sérstaka athugasemd vegna tafa á afhend­ingu sendingarinnar.  Skv. upplýsingum frá áreiðanlegum tengiliði lögreglu innan Y muni það vera brot á reglum fyrirtækisins að sending sé skilin eftir í bifreið fyrirtækisins með þessum hætti.  Einnig þyki það óvenjulegt að sendingin hafi ekki verið afhent og skráð með þessum hætti.  Við eftirlit í gærkvöldi hafi lögreglumenn orðið þess varir að A hafi komið ásamt öðrum manni að starfsstöð fyrirtækisins.  A hafi verið handtekinn skömmu síðar við fyrirtækið þegar hann hafi verið kominn inn í umrædda bifreið fyrirtækisins þar sem tölvurnar hafi verið geymdar.  Samferðamaður A, sem hafi beðið álengdar í annarri bifreið, hafi líka verið handtekinn og hafi það reynst vera kærði.  Sé nánar vísað til upplýsingaskýrslna Húnboga Jóhanns­sonar, rannsóknar­­lög­reglu­manns, dags. 23. og 24. þ.m, og upplýsingaskýrslu Kjartans Ægis Kristinssonar um eftirlit, dags. 23. þ.m..

Kærði hafi verið yfirheyrður í dag en hann neiti allri aðild að málinu.  Sé nánar vísað til framburðarskýrslu kærða.  Kærði þyki vera undir rökstuddum grun um aðild að stór­felldu fíkniefnabroti en svo virðist sem kærði hafi ætlað að flytja tölvurnar frá starfs­stöð fyrirtækisins og þyki líklegt að það hafi verið í því skyni að móttaka fíkniefnin.  Fyrir liggi upplýsingar frá Glitni um að bankinn hafi ekki verið að kaupa tölvur frá Danmörku. 

Rannsókn málsins sé á frumstigi, en nauðsynlegt sé að upplýsa nánar um einstaka verkn­aðarþætti hinna grunuðu og meinta aðild kærða að brotinu og tengsl við aðra meinta vit­orðsmenn sem tengist málinu, hérlendis sem erlendis, og séu óþekktir á þessu stigi en tengist fjármögnun, kaupum og sendingu og ætlaðri móttöku fíkniefnanna hér á landi.  Framundan séu frekari yfirheyrslur af vitnum og sakborningum, þ.m.t. kærða.  Nauð­synlegt sé að kærði sæti gæsluvarðhaldi en ljóst sé að gangi kærði laus geti hann sett sig í sam­band við meinta vitorðsmenn sem gangi lausir eða þeir geti sett sig í samband við hann eða kærði geti komið undan gögnum með sönnunargildi sem ekki hafi verið lagt hald á.  Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknar­hagmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus. 

Sakarefnið sé talið geta varðað við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.

Samkvæmt því sem að framan segir svo og rannsóknargögnum sem liggja fyrir dóminum liggur rökstuddur grunur á því að kærði eigi aðild að fíkniefnabroti sem getur varðað fangelsisrefsingu skv. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum.  Rannsókn málsins er á frumstigi og telur dómarinn að skilyrði a- liðar  1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála séu uppfyllt og verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík tekin til greina eins og hún er fram sett.

Allan Vagn Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, [kt. og heimilisfang], sæti gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 31. október 2006, kl. 16:00.