Hæstiréttur íslands
Mál nr. 418/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Dómkvaðning matsmanns
|
|
Þriðjudaginn 28. nóvember 2000. |
|
Nr. 418/2000. |
Ástþór Rafn Pálsson Guðmundur Pálsson Páll Pálsson og Karl Pálsson (Jón Hjaltason hrl.) gegn Ferðamálasjóði (Jónatan Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Dómkvaðning matsmanns.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um dómkvaðningu yfirmatsmanna.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Árni Kolbeinsson og Markús Sigurbjörnsson.
Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 15. nóvember 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur, sem gekk 13. nóvember 2000 í máli sóknaraðila á hendur varnaraðila, um að dómkvaddir yrðu yfirmatsmenn að beiðni varnaraðila. Kæruheimild er í c. lið 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Sóknaraðilar krefjast þess að synjað verði um dómkvaðningu yfirmatsmanna. Þá krefjast þeir málskostnaðar í héraði og kærumálskostnaðar.
Varnaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur og sóknaraðilum gert í sameiningu að greiða kærumálskostnað.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Rétt er að aðilarnir beri hver sinn kostnað af kærumáli þessu.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Kærumálskostnaður fellur niður.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. nóvember 2000.
Meðal þeirra gagna, sem stefnendur lögðu fram við þingfestingu málsins, var matsgerð tveggja dómkvaddra matsmanna. Í þinghaldi 10. nóvember sl. lagði stefndi fram beiðni um að dómkvaddir yrðu þrír yfirmatsmenn "til þess að framkvæma yfirmat á matsgerð" þeirri, sem stefnendur lögðu fram og byggja á í málinu. Vísar stefndi máli sínu til stuðnings til 64. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Stefnendur hafa mótmælt dómkvaðningunni og telja hana óþarfa. Þá benda þeir á að í yfirmatsbeiðninni sé ekki að finna þær aðfinnslur við störf undirmatsmanna að réttlætt geti yfirmat.
Samkvæmt tilvitnaðri lagagrein getur aðili krafist yfirmats þar sem tekin verði til endurmats þau atriði sem áður hafi verið metin. Þetta er það sem stefndi hefur lagt fram kröfu um og hann á rétt á. Skoðanir gagnaðila á þörfinni fyrir yfirmat koma þessu ekki við, enda ráða þeir ekki gagnaöflun stefnda. Það verður því orðið við kröfu stefnda og yfirmatsmenn dómkvaddir.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð
Dómkvaddir verða þrír yfirmatsmenn að kröfu stefnda á dskj. 71.