Hæstiréttur íslands

Mál nr. 114/2016

Héraðssaksóknari (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari)
gegn
X (Jóhannes Ásgeirsson hrl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. febrúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 15. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. febrúar 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, en þó ekki lengur en til föstudagsins 11. mars 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með dómi Hæstaréttar 19. janúar 2016 í máli nr. 40/2016 var komist að þeirri niðurstöðu að fullnægt væri skilyrðum til að varnaraðili sætti gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Af hálfu varnaraðila hafa engin rök verið færð fram sem fá þeirri niðurstöðu breytt. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur á þann hátt sem í dómsorði greinir.

Dómsorð:

Varnaraðili, X, skal sæta gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, en þó eigi lengur en til föstudagsins 11. mars 2016 klukkan 16.                     

                                                                 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. febrúar 2016.

Héraðssaksóknari hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að ákærða, X, kt. [...], með lögheimili að [...] í Reykjavík, verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 11. mars nk. kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að mál þetta hafi borist héraðssaksóknara frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 7. janúar sl. og með ákæruskjali, útgefnu 15. janúar 2016, hafi verið höfðað sakamál á hendur ákærða X, ásamt tveimur meðákærðu, fyrir rán sem framið hafi verið í skartgripaverslun [...] við [...] í Hafnarfirði 22. október 2015. Ákærði X sé einnig ákærður fyrir tilraun til sérstaklega hættulegrar líkamsárásar, en til vara hættubrot, brot gegn valdstjórninni, lögreglulagabrot, vopnalagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni að kvöldi 22. október 2015 utandyra við [...] í Reykjanesbæ, er lögregla hugðist hafa afskipti af ákærða vegna ránsins. Þá sé ákærði ákærður fyrir umferðarlagabrot í kjölfar ránsins og ennfremur fyrir þjófnað að morgni 26. september 2015. Um málavaxtalýsingu er að öðru leyti vísað til ákæruskjals.

Brot ákærða séu heimfærð undir 252. gr., 1. mgr. 106. gr., 2. mgr. 218. gr., sbr., 20. gr., og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ákvæði lögreglulaga, vopnalaga, laga um ávana- og fíkniefni og umferðarlaga. Ákæran, ásamt rannsóknargögnum málsins, hafi verið send Héraðsdómi Reykjaness með bréfi, dagsettu 15. janúar sl. og við fyrirtöku málsins 27. janúar sl. hafi ákærði neitað sök samkvæmt ákæru, en kannast við að hafa verið á vettvangi ránsbrotsins samkvæmt fyrsta ákærulið ákærunnar. Aðalmeðferð málsins sé fyrirhuguð mánudaginn 29. febrúar nk.

Ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 23. október sl., fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna, en frá 6. nóvember sl. á grundvelli almannahagsmuna, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Í dómi Hæstaréttar nr. 40/2016 frá 19. janúar sl. hafi verið fallist á að skilyrði gæsluvarðhalds á grundvelli almannahagsmuna væru uppfyllt og hafi ákærði verið dæmdur til að sæta gæsluvarðhaldi til dagsins í dag og hafi ekkert komið fram í málinu sem breyti þessu mati, að mati ákæruvaldsins.

Að mati héraðssaksóknara sé ákærði undir sterkum grun um að hafa framið ofangreind brot og geti þau varðað allt að 16 ára fangelsi. Með hliðsjón af alvarleika sakarefnis og þess að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo stendur á sé þess krafist að ákærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans er til meðferðar hjá dómstólum.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

 

                Eins og að framan greinir hefur ákærði setið í gæsluvarðhaldi frá 23. október sl., fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna, en frá 6. nóvember sl. á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Gefin hefur verið út ákæra á hendur ákærða ásamt tveimur meðákærðu þar sem ákærða er gefið að sök að hafa framið rán og gert tilraun til sérstaklega hættulegrar líkamsárásar, en til vara að hafa framið hættubrot. Þá er ákærða gefið að sök brot gegn valdstjórninni, lögreglulagabrot, vopnalagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, umferðarlagabrot og þjófnað. Í ákærunni eru brot ákærða heimfærð undir 252. gr., 1. mgr. 106. gr., 2. mgr. 218. gr., sbr., 20. gr., og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ákvæði lögreglulaga, vopnalaga, laga um ávana- og fíkniefni og umferðarlaga. Aðalmeðferð í máli ákærða er fyrirhuguð mánudaginn 29. febrúar nk., en ákærði neitaði sök við þingfestingu málsins.

                Framangreind háttsemi ákærða getur varðað allt að 16 ára fangelsi. Með tilliti til almannahagsmuna er á það fallist að brot ákærða sé þess eðlis að nauðsynlegt sé að tryggja að hann gangi ekki laus á meðan mál hans er til meðferðar fyrir dómi. Er skilyrðum fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi ákærða því fullnægt og verður krafa héraðssaksóknara tekin til greina svo sem í úrskurðarorði greinir, en ekki þykir ástæða til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er.

Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Ákærði, X, sæti gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, en þó ekki lengur en til föstudagsins 11. mars nk. klukkan 16.00.