Hæstiréttur íslands

Mál nr. 86/2007


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 13

 

Þriðjudaginn 13. febrúar 2007.

Nr. 86/2007.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Þorsteinn Einarsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. febrúar 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 12. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. febrúar 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 2. mars 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykja­víkur 10. febrúar 2007.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, [kt. og heimilisfang], sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 2. mars 2007, kl. 16:00.

             Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild rannsaki nú innflutning á miklu magni af fíkniefnum til landsins sem hafi fundist við leit tollgæslu í bifreið á hafnarsvæði Samskipa í Reykjavík. Bifreiðin hafi nýlega verið flutt til landsins frá Þýskalandi og hafi fíkniefnunum verið komið fyrir í bifreiðinni. Grunur leiki á því að fíkniefnin hafi átt að fara í sölu og dreifingu hér á landi. Lögregla hafi komið gerviefnum fyrir í bifreiðinni og hafi fylgst með henni síðan.

             Þann 6. febrúar hafi kærði síðan leyst bifreiðina út úr tollgeymslu vöruafgreiðslu Samskipa og í kjölfarið látið flytja bifreiðina á bifreiðastæði við dvalarstað sinn. Þann 8. febrúar sl. hafi kærði ekið bifreiðinni að bænum [...]. Gögn lögreglu bendi til þess bifreiðinni hafi verið ekið inn í skemmu við [...] um hádegi í gær og að þar hafi kærði ásamt ónafngreindum manni losað fíkniefnin úr mælaborði bifreiðarinnar.

             Kærði hafi verið handtekinn kl. 15:45 í gær á Kringlumýrarbraut vegna rannsóknar málsins. Bráðabirgðaniðurstaða frá tæknideild lögreglunnar hafi leitt í ljós að á kærða sé að finna sönnunargögn sem sýni fram á að hann hafi haldleikið áðurnefnd gerviefni.  Kærði hafi verið yfirheyrður í morgun. Um afstöðu kærða til sakarefnisins og nánar um framburð hans vísar lögreglan til framburðarskýrslu kærða. Rannsókn málsins sé á frumstigi og málið talið umfangsmikið. Framundan séu frekari yfirheyrslur af kærða og meintum samverkamönnum hans. Þá sé frekari gagnaöflun og gagnaúrvinnsla fram­undan sem skýrt geti frekar aðdraganda brotsins og samskipti kærða við meinta samverkamenn sem kunni að tengjast málinu. Upplýsa þurfi hvar, hvenær og hvernig fíkniefnunum hafi verið komið fyrir í bifreiðinni og hverjir hafi komið þeim fyrir. Nauðsynlegt sé að kærði sæti gæsluvarðhaldi, en ljóst sé að gangi kærði laus geti hann sett sig í samband við meinta vitorðsmenn sem gangi lausir eða þeir sett sig í samband við hann eða kærði geti komið undan gögnum með sönnunargildi sem ekki hafi verið lagt hald á. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus.

             Lögreglan kveðst vera að rannsaka ætluð brot gegn fíkniefnalöggjöfinni og megi ætla að ef þau sönnuðust, þá myndu þau geta varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.  Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Samkvæmt fyrirliggjandi rannsóknargögnum, og því sem að framan er rakið, liggur fyrir rökstuddur grunur um að kærði hafi framið brot gegn fíkniefnalöggjöfinni og má ætla að ef þau sannist, þá gætu þau varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.  Rannsókn málsins er á frumstigi og verður að telja að rann­sóknar­hagsmunir krefjist þess að kærði sæti gæsluvarðhaldi til að hann geti ekki torveldað rannsókn málsins.  Teljast skilyrði a- liðar  1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála uppfyllt og verður krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að kærði sæti gæsluvarðhaldi tekin til greina eins og hún er fram sett og þykja ekki efni til að marka gæsluvarðhaldi skemmri tíma.

Greta Baldursdóttir hérðasdómari kvað upp úrskurðinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 2. mars nk. kl. 16.00.