Hæstiréttur íslands

Mál nr. 328/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Þriðjudaginn 16

 

Þriðjudaginn 16. júní 2009.

Nr. 328/2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Stefán Eiríksson lögreglustjóri)

gegn

X

(Jón Egilsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. júní 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 15. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. júní 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 19. júní 2009 klukkan 16 og honum gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Verði hann látinn sæta gæsluvarðhaldi skuli tilhögun vistar vera án takmarkana.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Hinn kærði úrskurður verður staðfestur með vísan til forsendna hans.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. júní 2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 19. júní 2009, kl. 16. Þess er krafist að X verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Samkvæmt því sem fram kemur í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu bárust hinn 20. apríl sl. upplýsingar til íslenskra lögregluyfirvalda þess efnis að von væri á sendingu til Íslands sem innihéldi fíkniefni. Væri pakkinn sendur með hraðflutninga­fyrirtækinu UPS. Barst pakkinn til landsins þann 21. apríl sl. og reyndist hann innihalda yfir 6 kg af amfetamíni. Efnin voru í viðarolíuáldósum.

Lögreglu bárust upplýsingar frá hollenskum lögregluyfirvöldum um að hollenskur karlmaður hafi verið í sambandi við símanúmerið [...]. Þar hafi verið rætt um skipulag á sendingu á ólöglegum fíkniefnum, líklega falin í málningarfötum/viðarolíufötum. Samtölin eiga sér stað 16. og 19. apríl sl. Er talið að notandi símanúmersins [...] sé kærði X. Kannast hann ekki við greind símtöl, en þau hafa verið send til samanburðarrannsóknar á því hvort um X sé að ræða. 

Þann 18. maí sl. sá lögreglan er X hitti þrjá menn í Smáralind, gekk með þeim að bifreið er hann var á við verslunarmiðstöðina og afhenti síðan mönnunum umslag, sem lögregla ætlar að hafi innihaldið peninga. Lögregla hefur upplýsingar um þá menn er X hitti fyrir og mun einn þeirra hafa hringt í UPS hraðflutningafyrirtækið í Hollandi þann 20. apríl sl. til að spyrjast fyrir um kostnað við að flytja pakka til Íslands. Pakkinn sem haldlagður var hér á landi mun hafa verið sendur frá Hollandi síðar sama dag. Mennirnir sem X hitti við Smáralind eru allir útlendingar, en þeir voru handteknir við komu til Hollands frá Íslandi, þar sem þeir eru grunaðir um þátt í stórfelldum fíkniefnabrotum. 

Í skýrslutöku hjá lögreglu hefur X borið um að hann sótt þrjá menn, alla útlendinga, út á Keflavíkurflugvöll þann 15. maí sl., en mennirnir séu kunningjar hans. Hafi hann lánað þeim bifreið sína er þeir dvöldu hér á landi og hafi X tekið að sér að skipta 1.700.000 íslenskum krónum fyrir þá í evrur. Hafi hann hitt þá við Smáralind vegna þessara peningaviðskipta.

Þann 22. maí sl. var kærði handtekinn á heimili sínu að [...].  Við leit á heimilinu fannst lítilræði af ætluðu marihuana og 1.200.000 kr. í peningum. Á ætluðum vinnustað hans, [...] voru haldlagðar 695.000 kr. í peningum, sem fundust í íláti uppi á hillu baka til í versluninni.

Hlustanir á grundvelli dómsúrskurða hafa farið fram í málinu og hafa þar ítrekað komið fram ætluð samskipti kærða X við aðra sem taldir eru tengjast málinu og þar rætt um þætti sem taldir eru tengjast ætluðum fíkniefnabrotum.

Auk framangreinds þá hefur lögregla upplýsingar um að bæði kærði X og þeir aðilar sem hann hitti við Smáralind hafi ítrekað heimsótt Y þar sem hann afplánar dóm í fangelsinu að Litla-Hrauni.  Þá hefur Z einnig heimsótt Y ítrekað. Er talið að greindar heimsóknir tengist ætluðum stórfelldum fíkniefnabrotum og hafa Y og Z verið handteknir og sæta nú gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar.

Rannsókn lögreglu snýr að þáttum er varða aðdraganda brotsins, skipulagningu og fjármögnun. Þegar hafa aðilar verið yfirheyrðir hér á landi í tengslum við málið, en fyrir liggur að yfirheyra þarf fleiri aðila því tengdu. Þá er beðið er gagna frá erlendum lögregluyfirvöldum, sem brýnt þykir að unnt verði að bera undir kærða á meðan hann sætir gæsluvarðhaldi með takmörkunum.  Í málinu liggur nú fyrir grunur um tengingu kærða við umfangsmikil fíkniefnabrot. Í tengslum við þau hafa aðilar verið handteknir hér á landi, víðar í Evrópu og í Suður-Ameríku.  Meðal þeirra eru þeir menn sem ætlað er að X hafi afhent peninga við Smáralind þann 18. maí sl. Þá hefur í tengslum við rannsóknina verið lagt hald á mörg tonn af sykurvökva, sem talinn er innihalda hundruð kílóa af kókaíni.

Rökstuddur grunur er um stórfellt fíkniefnabrot X. Nauðsynlegt er talið að hann sæti áfram gæsluvarðhaldi vegna málsins, svo honum sé fyrirmunað að setja sig í samband við ætlaða vitorðsmenn og/eða vitni og/eða að hann geti komið undan gögnum sem sönnunargildi hafa í málinu og hafa ekki verið haldlögð. Þykir þannig nauðsynlegt að vernda rannsóknarhagsmuni málsins með því að X sæti áfram gæsluvarðhaldi og að hann verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Til rannsóknar er ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til a liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til b liðar 1. mgr. 99. gr.  sömu laga hvað varðar kröfu um einangrun.

Samkvæmt gögnum málsins er fram kominn rökstuddur grunur um aðild kærða að stórfelldum fíkniefnabrotum og geta brot hans varðað fangelsisrefsingu. Rannsókn málsins er í fullum gangi. Haldi kærði óskertu frelsi sínu er hætta á því að hann torveldi rannsókn málsins með því að hafa áhrif á framburð vitna og annarra sakborninga, eða komi sönnunargögnum undan. Með vísan til a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er fallist á kröfu lögreglustjóra um að kærði sæti áfram gæsluvarðahaldi. Með vísan til b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 er jafnframt fallist á að kærði skuli látinn vera í einrúmi meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.

ÚRSKURÐARORÐ

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 19. júní 2009, kl. 16.

Kærði skal látinn vera í einrúmi meðan á gæsluvarðhaldi stendur.