Hæstiréttur íslands

Mál nr. 293/2006


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Miðvikudaginn 7

 

Miðvikudaginn 7. júní 2006.

Nr. 293/2006.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Brynjar Níelsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. laga nr. 91/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. júní 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. júní 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 14. júlí 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hafnað verði kröfu sóknaraðila um að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Hins vegar andmælir hann ekki kröfu sóknaraðila um að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli b. liðar 1. mgr. 103. gr. laganna.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Fallist er á að fyrir hendi sé sterkur grunur um að varnaraðili hafi framið brot, sem að lögum getur varðað allt að 12 ára fangelsi samkvæmt 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum. Um er að ræða skipulagða starfsemi sem lýtur að innflutningi á miklu magni fíkniefna og er brotið þess eðlis að telja verður gæsluvarðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                                                                  

 

Ú r s k u r ð u r  Héraðsdóms Reykjavíkur 2. júní 2006..

             Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur lagt fram kröfu þess efnis að X, hollenskur ríkisborgari, fd. [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi, þó eigi lengur en til föstudagsins 14. júlí 2006, kl. 16:00.

             Í greinargerð lögreglu kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild rannsaki meint stórfellt fíkniefnabrot. Lagt hafi verið hald á 15.227,90 g af amfetamíni og 10.283,05 g af hassi sem falin hafi verið í bifreið sem flutt hafi verið til landsins frá [...] í Hollandi. Fíkniefnin hafi fundist við leit tollgæslu þann 3. apríl sl.  Bifreiðin hafi verið flutt inn á nafni meints vitorðsmanns kærða, Y. Lögregla hafi haft eftirlit með bifreiðinni frá því fíkniefnin fundust og hafi hljóðupptökubúnaði og gerviefnum verið komið fyrir í bifreiðinni og símar grunaðra hlustaðir.  Bifreiðin hafi verið tollafgreidd og sótt nokkrum dögum síðar og flutt á bifreiðastæði við heimili nefnds Y.  Z, Þ og kærði hafi sótt bifreiðina á umrætt bifreiðastæði að kvöldi 13. apríl sl. Hafi þeir flutt bifreiðina í verkstæðishúsnæði við [...] en þeir hafi verið handteknir skömmu síðar.  Aðkoma á vettvangi og hljóðritað samtal við bifreiðina í húsnæðinu bendi eindregið til þess að kærði og samferðamenn hans hafi verið að móttaka efnin með því að fjarlægja þau úr bifreiðinni. 

             Við skýrslutökur hafi kærði greint frá tiltekinni aðild sinni að málinu.  Kærði hafi greint frá því að hafa tekið að sér að taka á móti manni í Belgíu og aðstoða hann við flutning bifreiðar til Íslands, hann hafi haft vitneskju um að í bifreiðinni væru falin fíkniefni og hann hafi síðan tekið að sér, gegn greiðslu, að fara til Íslands og hafa umsjón með því þegar fíkniefnin væru tekin úr bifreiðinni og vigta fíkniefnin.  Kærði kvaðst ekki hafa verið viðstaddur þegar fíkniefnunum hafi verið komið fyrir í bifreiðinni og hann hafi ekki haft fullkomnar upplýsingar um magn efnanna.  Kærði hafi verið með minnismiða meðferðis, sem lögregla hafi lagt hald á, þar sem fram komi áritaðar tölur um magn og upphæðir í evrum.  Kærði segist hafa átt að afhenda manni miðann hér á landi en hann hafi ekki viljað upplýsa hver sá maður sé.  Að mati lögreglu þyki minnismiðinn geta passað við magn og söluverð seljanda fíkniefnanna til innflytjanda efnanna hér á landi.  Kærði hafi einnig gengist við að hafa átt símasamskipti við nefndan Y þegar hann hafi verið að leysa bifreiðina úr tolli hér á landi.  Kærði hafi að öðru leyti neitað að greina frá aðild annarra grunaðra að málinu eða einstökum verknaðarþáttum þeirra.  Sé nánar vísað til framburðarskýrslna kærða frá 19. og 25. apríl sl. og 3. og 15. f.m.

             Kærði þyki vera undir sterkum rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnabroti.  Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 14. apríl sl., nú síðast með dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 275/2006, þar sem rannsóknarhagsmunir voru lagðir til grundvallar, sbr. úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-273/2006.  Rannsókn málsins sé ekki lokið en unnið sé að frekari gagnaöflun og gagnaúrvinnslu.  Meint aðild kærða sé talin tengjast útvegun fíkniefna erlendis og samskipti og milliganga við meinta brotamenn hér á landi og sendingu efnanna og móttöku þeirra hér á landi.  Kærði virðist hafa komið hingað til lands gagngert til þess að fylgja fíkniefnasendingunni eftir og vera viðstaddur móttöku og annast greiðsluuppgjör vegna sendingarinnar.  Meint aðild kærða að málinu þyki þannig vera mikil.  Einnig sé lagt til grundvallar að um sé að ræða mjög mikið magn sterkra og hættulegra fíkniefna.  Nær öruggt þyki að fíkniefnin hafi átt að fara í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi.  Hið meinta brot kærða þyki þannig mjög alvarlegt.  Með tilliti til hagsmuna almennings þyki þannig nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sé til meðferðar en telja verði og reikna megi með að ef sakborningur, sem orðið hafi uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði, gangi laus áður en máli ljúki með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærða í málinu þyki sambærileg stöðu annarra sakborninga sem sætt hafa gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr.: 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að dómi þegar legið hafi fyrir sterkur rökstuddur grunur um beina aðild að innflutningi á miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni.  Sé ekki ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir, að skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 sé ekki fullnægt í því máli sem hér um ræðir. 

             Sakarefnið sé talið geta varðað við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001.  Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.

             Samkvæmt því sem að framan segir, m.a. með tilliti til viðurkenningar kærða um tiltekna hlutdeild sína að málinu, svo og með vísan til fyrirliggjandi rannsóknargagna er rökstuddur grunur um að kærði, sem er erlendur ríkisborgari, eigi aðild að stórfelldu fíkniefnabroti sem getur varðað fangelsisrefsingu skv. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum.  Verður því að telja að uppfyllt séu   skilyrði 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála um að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi eins og krafist er. Verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík því tekin til greina eins og hún er sett fram og nánar greinir í úrskurðarorði. Eggert Óskarsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

             Kærði, X, hollenskur ríkisborgari, f. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, þó eigi lengur en til föstudagsins 14. júlí 2006, kl. 16:00.