Hæstiréttur íslands
Mál nr. 282/2012
Lykilorð
- Sératkvæði
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
- Kærumál
|
|
Miðvikudaginn 25. apríl 2012. |
|
Nr. 282/2012. |
Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari) gegn X (Björgvin Þorsteinsson hrl.) |
Kærumál.
Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Sératkvæði.
Úrskurður héraðsdóms um að
X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um
meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur
Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Greta Baldursdóttir og Þorgeir Örlygsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 20. apríl 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 24. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Vesturlands 20. apríl 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur Hæstaréttar gengur í máli hans, en þó eigi lengur en til föstudagsins 15. júní 2012 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Sératkvæði
Jóns Steinars Gunnlaugssonar
Með vísan til forsendna fyrir sératkvæði mínu 2. apríl 2012 í máli nr.
217/2012, sbr. einnig sératkvæðin 9. og 13. febrúar 2012 og 7. mars sama ár í
málum nr. 84/2012, 95/2012 og 146/2012, en öll þessi mál varða varnaraðila, tel
ég að fella beri hinn kærða úrskurð úr gildi.
Úrskurður Héraðsdóms Vesturlands 20. apríl 2012.
Ríkissaksóknari hefur gert þá
kröfu að dómfellda, X, kt. [...], [...],[...], verði
gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi uns dómur Hæstaréttar gengur í máli
hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 15. júní 2012, kl. 16:00 á grundvelli
2. mgr. 95. gr., sbr. 3. mgr. 97. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómfelldi mótmælir kröfunni og krefst þess að henni verði hafnað.
Með úrskurði dómsins upp kveðnum 1.
desember sl. var dómfellda gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a-liðar 1.
mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála allt til laugardagsins 10.
desember sl. kl. 16:00 en hann hafði verið handtekinn 30. nóvember sl. grunaður um kynferðisbrot gagnvart 11 ára
gamalli dóttur sinni, A, kt. [...]. Úrskurðurinn var
staðfestur með dómi Hæstaréttar Íslands upp kveðnum 5. desember sl. Með
úrskurði dómsins upp kveðnum 11. desember sl. var dómfellda gert að sæta
gæsluvarðhaldi allt til 6. janúar sl. kl. 16:00 á grundvelli 2. mgr. 95. gr.
sömu laga og var úrskurðurinn staðfestur með dómi Hæstaréttar upp kveðnum 14. desember
sl. Gæsluvarðhald dómfellda var enn
framlengt á grundvelli sama lagaákvæðis með úrskurði upp kveðnum 6. janúar sl.
og var honum gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 3. febrúar kl. 16:00.
Úrskurðurinn var staðfestur með dómi Hæstaréttar upp kveðnum 11. janúar sl. Enn
var gæsluvarðhald dómfellda framlengt á sama grunni og fyrr með úrskurði upp
kveðnum 4. febrúar s.l. og var honum gert að sæta gæsluvarðhaldi til 2. mars
sl.. Hæstiréttur staðfesti þennan úrskurð með dómi upp kveðnum 9. febrúar
sl. Með úrskurði dómsins upp kveðnum 2.
mars sl. var gæsluvarðhald dómfellda enn framlengt og var því markaður tími til
morguns kl. 16:00. Úrskurðurinn var
staðfestur með dómi Hæstaréttar 7. mars sl. Þann 28. mars sl. var gæsluvarðhald
dómfellda enn framlengt og var því markaður tími til 25. apríl nk. og staðfesti
Hæstiréttur þann úrskurð með dómi upp kveðnum 2. apríl sl.
Í greinargerð ríkissaksóknara kemur
fram að með ákæru útgefinni 5. janúar sl. hafi verið höfðað mál fyrir dóminum á
hendur dómfellda fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni, framin á tímabilinu maí
til júlí 2011 að [...],[...]. Var dómfellda gefið að sök að hafa ítrekað látið
brotaþola afklæðast, í fjögur aðgreind skipti látið hana sjúga á sér kynfærin
uns hann hafði sáðlát í munn hennar, í þrjú aðgreind skipti sleikt á henni
kynfærin, í eitt skipti reynt að hafa við hana endaþarmsmök og með því að hafa
að minnsta kosti í tvö aðgreind skipti þreifað með höndunum á berum brjóstum
hennar og jafnframt að hafa þá og í nokkur önnur skipti á sama ári spurt hana
hvort brjóstin á henni væru að stækka. Þessi háttsemi dómfellda var talin varða við 1. og 2. mgr. 200. gr. og 1. og 2. mgr. 202. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940. Málið hafi
verið þingfest 17. janúar sl. og hafi aðalmeðferð farið fram 22. febrúar sl.
Með dómi uppkveðunum 28. mars sl. hafi dómfelldi verið sakfelldur og dæmdur í
fjögurra ára fangelsi. Hann hafi áfrýjað dóminum og hafi ágrip verið sent
Hæstarétti og verði málið flutt fyrir réttarhlé.
Ríkissaksóknari
telur gæsluvarðhald vera nauðsynlegt áfram vegna almannahagsmuna af sömu
ástæðum og lagðar hafi verið til grundvallar í fyrrgreindum Hæstaréttardómum.
Um sé að ræða ætluð gróf og endurtekin kynferðisbrot föður gegn dóttur. Ríkissaksóknari telur að það særi réttarvitund
almennings og valdi almennri hneykslan í samfélaginu ef dómfelldi, sem liggi
undir sterkum rökstuddum grun um svo alvarleg kynferðisbrot gegn dóttur, gangi
laus á meðan mál hans er ólokið.
Eins og rakið hefur verið hér að framan
hefur dómfelldi setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr.
88/2008. Í dómum Hæstaréttar sem gengið
hafa um gæsluvarðhald dómfellda hefur verið fallist á með héraðsdómi að álykta
megi af gögnum málsins að sterkur grunur leiki á um að dómfelldi hafi framið afbrot,
sem að lögum geti varðað 10 ára fangelsi og að öðrum skilyrðum 2. mgr. 95. gr.
laga nr. 88/2008 sé fullnægt. Dómfelldi hefur nú verið sakfelldur fyrir þau
brot sem honum voru gefin að sök í ákæru og dæmdur í 4 ára fangelsi. Hann hefur
áfrýjað dóminum til Hæstaréttar og mun málið verða flutt þar fyrir réttarhlé.
Ríkissaksóknari krefst nú framlengingar gæsluvarðhaldsins allt til föstudagsins
15. júní nk. kl. 16:00 á grundvelli 2. mgr. 95. gr., sbr. 3. mgr. 97. gr. laga
nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Dómfelldi mótmælir kröfunni og krefst þess að
henni verði hafnað.
Verjandi dómfellda hefur afhent dóminum
mynddisk þar sem fram kemur að dóttir dómfellda lýsir yfir sakleysi föður síns.
Það athugast að sami mynddiskur var lagður fyrir Hæstarétt er síðast var
fjallað um kröfu um gæsluvarðhald á hendur dómfellda en upplýsingar sem þar
komu fram leiddu ekki til þess að meirihluti réttarins sæi ástæðu til þess að
hafna kröfu um framlengingu gæsluvarðhaldsins.
Dómfelldi hefur eins
og að framan er rakið sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr.
88/2008 en hann hefur nú verið sakfelldur og dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir
framangreinda háttsemi. Með vísan til þess, fyrri dóma Hæstaréttar sem gengið
hafa vegna kröfu um gæsluvarðhald á hendur dómfellda, sérstaklega með vísan til
dómsins frá 2. apríl sl. og með því að skilyrði 3. mgr. 97. gr. laganna eru
uppfyllt verður ekki hjá því komist að taka kröfuna tekin til greina eins og
nánar greinir í úrskurðarorði.
Hjörtur O. Aðalsteinsson dómstjóri
kvað upp þennan úrskurð.
Ú r s k u r ð a r o r ð:
Dómfelldi, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi uns
dómur Hæstaréttar gengur í máli hans, en þó eigi lengur en til föstudagsins 15.
júní 2012 kl. 16:00.