Hæstiréttur íslands
Mál nr. 424/2008
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Miðvikudaginn 6. ágúst 2008. |
|
Nr. 424/2008. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Stefán Eiríksson lögreglustjóri) gegn X (Jón Höskuldsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. ágúst 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 5. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 1. ágúst 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. ágúst 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að hann verði látinn sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds. Að því frágengnu krefst hann þess að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 1. ágúst 2008.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að kærða, X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 29. ágúst nk. kl. 16.
Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að 21. júlí sl. hafi lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu borist tilkynningar um neðangreind innbrot,
Í máli 007-2008-52454 er varði innbrot að A í Hafnarfirði hafi vitni skýrt frá því að þau hafi um kl. 13:00 séð til ferða tveggja manna við húsið, annan klæddan í hettupeysu, en hinn sköllóttan, þeir hafi kíkt inn um glugga, hringt dyrabjöllu og farið bakvið húsið. Því næst hafi sést til mannanna inni í húsinu og svo hafi þeir komið út með tvo poka meðferðis og yfirgefið vettvanginn á bifreiðinni [...], sem er af gerðinni B, rauð á lit. Bakvið húsið hafi mátt sjá að búið var að spenna upp glugga. Hafi húsráðendur skýrt frá því að frá þeim hafi verið stolið fartölvu, víni, skartgripum og fleira.
Í máli nr. 007-2008-52509 hafi verið brotist inn í einbýlishúsið að C 1 í Garðabæ, á tímabilinu kl. 13:30 til 16:30, með því að spenna upp glugga á vesturhlið hússins og þaðan stolið fartölvu, 200 evrum o.fl. Í viðræðum lögreglu við nágranna hafi D skýrt frá því að hann hafi séð rauða B við C milli kl. 13:30 og 14:00.
Samkvæmt frumskýrslu lögreglu í máli nr. 007-2008-52514 hafi verið brotist inn í einbýlishúsið að E í Garðabæ á tímabilinu kl. 09:00 til 16:43, með því að spenna upp glugga á austurhlið hússins og þaðan stolið ýmsum munum, m.a. myndavél. Hafi nágranni einn sagst hafa séð um kl. 13:50 þennan dag rauða eða fjólubláa bifreið kyrrstæða við húsið.
Síðar sama dag hafi lögregla stöðvað bifreiðina [...], sem sé rauð B og skráð í eigu kærða, við söluturn Aktu-taktu í Garðabæ. Hafi kærði verið í bifreiðinni ásamt þremur öðrum samlöndum sínum. Við leit í bifreiðinni hafi fundist þýfi úr innbrotunum að E og A. Einnig hafi fundist í bifreiðinni kúbein, sem lögregla hafi nú borið saman við verksummerki á ofangreindum innbrotsstöðum og bendi niðurstöður frumrannsóknar á verksummerkjum til þess, að sams konar kúbein, bæði hvað varðar lit og lögun, hafi verið notað til að spenna upp glugga á ofangreindum stöðum, og hafi kúbeini jafnframt verið beitt til að spenna upp hurðir inni í viðkomandi húsum.
Við leit á dvalarstað kærða, að F í Reykjavík, hafi svo fundist fleiri munir úr ofangreindum innbrotum og fleirum. Hafi haldlagðir munir verið bornir undir kærða við skýrslutöku hjá lögreglu og hafi kærði játað að hafa staðið að innbrotum bæði í Garðabæ og Hafnarfirði og borið kennsl á nokkra þá muni, sem saknað sé af ofangreindum innbrotsstöðum, og sagst hafa tekið þá við innbrotin.
Í máli nr. 007-2008-40836, sem varði innbrot að G í Reykjavík hinn 4. júní sl., hafi verið saknað m.a. síma, úrum og myndavél. Úr símanum, sem hafi verið, hafi verið hringt nokkuð oft í símanúmer, sem sé að finna í símaskrá síma kærða sjálfs, og kannist hann við að hafa hringt úr símanum. Þá hafi munir úr innbrotinu fundist á dvalarstað kærða að F í Reykjavík, m.a. ljósmyndavél, auk þess sem kærði hafi gengið með úr, sem saknað hafi verið úr innbrotinu. Kærði hafi játað innbrotið í fyrstu hjá lögreglu, en síðar dregið þann framburð sinn til baka.
Þá hafi einnig fundist Rolex armbandsúr úr innbroti að H í Reykjavík hinn 2. júlí sl., sbr. mál nr. 007-2008-48308, á dvalarstað kærða að F.
Þá hafi lögreglan á höfuðborgarsvæðinu jafnframt haft til rannsóknar mál nr. 007-2008-42462, sem sé þjófnaðarmál, en í því hafi kærði játað að hafa stolið hleðslutæki fyrir fartölvu úr versluninni I að J C í Reykjavík hinn 9. júní sl. og selt.
Lögreglan á Selfossi hafi jafnframt haft til rannsóknar tvö innbrotsmál, þar sem kærði hafi komið við sögu:
Í máli nr. 033-2008-4789, sem varði innbrot að K á Selfossi hinn 30. júní sl., hafi verið stolið nokkrum munum, en þýfi úr því innbroti hafi m.a. fundist í bifreið kærða og á dvalarstað hans að F í Reykjavík.
Mál nr. 033-2008-4800, varði innbrot að L á Selfossi, sama dag, en fingrafar kærða hafi fundist á vettvangi.
Kærði hafi í fyrstu neitað að vera viðriðinn ofangreind mál, en eftir því sem rannsókn málanna hafi miðað fram og frekari sönnunargögn verið borin undir kærða, hafi hann játað síðar við yfirheyrslu hjá lögreglu að hafa farið inn á ofangreindum stöðum. Þá hafi lögregla lagt hald á ætlað þýfi, m.a. nokkuð magn skartgripa, sem hafi fundist á dvalarstað kærða, sem ekki sé vitað, hvaðan séu til komnir.
Kærði sé nú atvinnulaus og hafi lítil tengsl við land og þjóð. Hann hafi lýst því yfir, að hann framfleyti sér með afbrotum og hafi hann játað að hann selji þýfi úr innbrotum. Í þessu ljósi sé það mat lögreglu, að ofangreind röð afbrota bendi til þess, að gangi kærði laus, muni hann halda áfram fyrri iðju sinni.
Farið sé fram á gæsluvarðhald yfir kærða til 29. ágúst nk. Verði rannsókn málanna að fullu lokið innan þess tíma og muni ákvörðun um saksókn þá liggja fyrir.
Í ljósi ofangreindra atriða sé það mat lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, að skilyrðum c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála sé fullnægt.
Með vísan til framanritaðs, framlagðra gagna og c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 er þess krafist, að krafan nái fram að ganga.
Svo sem að ofan er rakið og stutt er framlögðum gögnum liggur fyrir rökstuddur grunur um að kærði eigi hlut að fjölmörgum innbrotum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni í júní og júlímánuði. Hefur mikið magn þýfis fundist á dvalarstað hans og í bifreið, sem tengir hann við innbrotin. Kærði hefur viðurkennt að eiga aðild að innbrotum þessum og hefur jafnframt lýst því yfir að hann framfleyti sér hér á landi með afbrotum og sölu á þýfi.
Við brotum þessum liggur fangelsisrefsing. Fellst dómurinn á mat lögreglustjóra að hætta kunni að vera á að kærði muni halda áfram iðju sinni, gangi hann laus. Verður kærða því gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála, en þó þannig að varðhaldinu verður markaður tími til föstudagsins 22. ágúst nk. kl. 16.00.
Ingimundur Einarsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S KU R Ð A R O R Ð
Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 22. ágúst nk. kl. 16.00.