Hæstiréttur íslands

Mál nr. 216/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                                        

Þriðjudaginn 13. apríl 2010.

Nr. 216/2010.

Ákæruvaldið

(Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)

gegn

X

(Sigmundur Hannesson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. apríl 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 12. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. apríl 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til 23. apríl 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að í stað gæsluvarðhalds verði honum gert að sæta farbanni, en til þrautavara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. apríl 2010.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi í 2 vikur eða til 23. apríl 2010, kl. 16.00.

Í greinargerð ákæruvalds kemur fram að þann 13. janúar sl. hafi ákærði verið handtekinn við athafnasvæði [...] í Sundahöfn í Reykjavík með 3.873,73 g af amfetamíni innanklæða. Í ljós hafi komið að ákærði hafði sótt efnið um borð í flutningaskipið [...] sem þá hafi legið við Sundahöfn en ákærði hafði komið til landsins með skipinu daginn áður með fíkniefnin.

Ákærði hafi viðurkennt að hafa komið með efnin til landsins og lýst því fyrir lögreglu að ætlunin hafi verið sú að afhenda efnið áfram til meðákærða, Y. Lögregla hafi þá skipt fíkniefnunum út fyrir gerviefni, sett hlustunar-, hljóðupptöku- og eftirfararbúnað í pakkann og fengið ákærða til að afhenda efnin áfram til meðákærða á heimili hans að [...], eins og til hafði staðið.

Eftir að ákærði hafði afhent meðákærða pakkann og fengið afhentar kr. 405.000 frá meðákærða sem greiðslu vegna flutnings efnanna til Íslands hafi  lögregla komið á vettvang og handtekið ákærðu.

Málið hafi borist ríkissaksóknara 26. febrúar sl. sem hafi gefið út ákæru vegna málsins þann 3. mars 2010. Þar sé ákærði ásamt meðákærða ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot eins og nánar sé lýst í meðfylgjandi ákæru og er háttsemi ákærða talin varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en brot gegn ákvæðinu varði fangelsi allt að 12 árum.

Aðalmeðferð málsins hafi farið fram þann 26. mars sl. Við aðalmeðferð málsins hafi ákærði viðurkennt aðild sína að innflutningi efnanna. Ekki liggi fyrir hvenær dómur verði kveðinn upp í málinu.

Með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness dags. 14. janúar sl. nr. R-35/2010 hafi ákærði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála, til 21. janúar. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness nr. R-50/2010, frá 21. janúar hafi ákærði verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 5. febrúar. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness nr. R-68/2010, dags. 29. janúar, hafi ákærða verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, til 26. febrúar.  Þann 26. febrúar hafi ákærða verið gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til 12. mars, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála, sbr. úrskurður héraðsdóms Reykjaness, nr. R-145/2010. Hæstiréttur hafi staðfest þá niðurstöðu Héraðsdóms, sbr. dómur Hæstaréttar í máli nr. 119/2010. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-137/2010 hafi ákærða verið gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til 9. apríl 2010 og hafi sá úrskurður verið staðfestur með dómi Hæstaréttar í máli nr. 164/2010.

Að mati ákæruvalds krefjist almannahagsmunir þess að ákærði verði í gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans og er vísað til dómvenju í þeim efnum.

Staða ákærða í málinu þykir sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. t.d. mál Hæstaréttar nr. 635/2007, 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999. Þar var sakborningum gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms en fyrir lá sterkur grunur um beina aðild þeirra að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Ekki sé talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir, og er talið að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, og tilvitnaðra lagaákvæða er þess krafist að framangreind krafa nái fram að ganga.

Ákærði hefur játað aðild sína að innflutningi á tæplega 3,9 kg af amfetamíni. Með hliðsjón af magni amfetamínsins, svo og með vísan til dóms Hæstaréttar Íslands í máli 164/2010, er fallist á að skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 fyrir gæsluvarðhaldi ákærða séu fyrir hendi. Samkvæmt því, og þar sem ákvæði 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 standa gæsluvarðhaldi ákærða ekki í vegi, er fallist á kröfu ríkissaksóknara um áframhaldandi gæsluvarðhald, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Þorgerður Erlendsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

ÚRSKURÐARORÐ

Ákærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til 23. apríl 2010, kl. 16.00.