Hæstiréttur íslands
Mál nr. 39/2006
Lykilorð
- Niðurfelling máls
- Málskostnaður
|
|
Fimmtudaginn 14. september 2006. |
|
Nr. 39/2006. |
Hvalfjörður ehf. (Páll Arnór Pálsson hrl.) gegn Bókhaldsþjónustunni Hring ehf. (Þorsteinn Hjaltason hdl.) |
Niðurfelling máls. Málskostnaður.
Mál H á hendur B var fellt niður fyrir Hæstarétti að kröfu þess fyrrnefnda og H dæmdur, að kröfu B, til greiðslu málskostnaðar.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 18. janúar 2006. Með bréfi til réttarins 1. september 2006 tilkynnti áfrýjandi að hann félli frá áfrýjun málsins. Með bréfi sama dag ítrekaði stefndi kröfu sína um málskostnað fyrir Hæstarétti. Aðilar óskuðu báðir eftir að málið yrði dómtekið án sérstaks málflutnings um þessa kröfu, sbr. 3. mgr. 161. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Litið verður svo á að áfrýjandi mótmæli kröfunni.
Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr., sbr. 2. mgr. 164. gr. og 166. gr. laga nr. 91/1991 er málið fellt niður fyrir Hæstarétti.
Í samræmi við meginreglu 2. mgr. 130. gr., sbr. 166. gr., laga nr. 91/1991, ber að dæma áfrýjanda til að greiða stefnda málskostnað fyrir Hæstarétti, svo sem í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Mál þetta er fellt niður.
Áfrýjandi, Hvalfjörður ehf., greiði stefnda, Bókhaldsþjónustunni Hring ehf., 200.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti.