Hæstiréttur íslands

Mál nr. 515/2006


Lykilorð

  • Kærumál
  • Farbann


Þriðjudaginn 3

 

Þriðjudaginn 3. október 2006.

Nr. 515/2006.

Ríkislögreglustjóri

(Jón H. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Sveinn Andri Sveinsson hrl.)

 

Kærumál. Farbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X yrði áfram bönnuð för úr landi á grundvelli 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, sbr. b. lið 1. mgr. 103. gr. sömu laga.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. september 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. október sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. september 2006, þar sem varnaraðila var áfram bönnuð brottför af landinu allt til miðvikudagsins 4. október 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. september 2006.

Ríkislögreglustjóri hefur krafist þess, eð vísan til 110 gr. laga nr. 19, 1991, um meðferð opinberra mála, og b-liðar 1. mgr. 103. gr. sömu laga, að X, [kt.], verði bönnuð brottför af landinu allt til miðvikudagsins 4. október nk. kl. 16:00.

Í greinargerð ríkislögreglustjóra kemur fram að efnahagsbrotadeild Ríkislögreglu­stjóra hafi nú til rannsóknar meint brot kærða á höfundalögum nr. 73/1972 og lögum nr. 57/2005 um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins.

Kærða sé gefið að sök að hafa á tímabilinu 16. til 20. júní í heimildarleysi, afritað og þannig aflað sér u.þ.b. 60.000 skrár af netþjóni kæranda, A ehf., yfir á færanlegan 250 gígabæta gagnamiðil.

Vegna þessa hafi kærði sætt farbanni frá 20. ágúst sl., sem hafi svo verið framlengt með úrskurðum héraðsdóms Reykjavíkur 28. ágúst, 7. og 21. september sl., en hinir tveir síðastnefndu hafi verið staðfestir með dómum Hæstaréttar Íslands nr. 486/2006 og 507/2006, til dagsins í dag kl. 16:00.

Um málsatvik að öðru leyti vísast til krafna efnahagsbrotadeildar um leit og hand­töku þann 10. ágúst sl. og um farbann þann 20. og 28. ágúst og 7. og 21. september, svo og úrskurða héraðsdóms af því tilefni.

Ákveðið hafi verið að afmarka rannsókn málsins við nánar tilgreindar 28 skrár, sem taldar séu hafa að geyma verðmætustu rannsóknar- og viðskiptaleyndarmál kæranda. Sé unnið að því nú að kanna og greina nánar efnislegt innihald umræddra skráa.

Í gær hafi embættinu borist nánari skilgreiningar á efni þriggja skráa og sé það mat ríkislögreglustjóra að efni séu til að höfða opinbert mál á hendur kærða vegna þeirra.  Enn sé beðið upplýsinga um efni 25 skráa, en búist sé við að þær upplýsingar muni liggja fyrir strax í byrjun næstu viku.

Það liggi því fyrir í máli þessu að ákæra á hendur kærða verði gefin út innan þess tíma sem farbannskrafa þessi lúti að.  Jafnframt sem stefnt verði að því að þingfesta málið innan sömu tímamarka.

Í framangreindum dómum Hæstaréttar sé því slegið föstu að skilyrðum fyrir farbanni í tilviki kærða væri fullnægt, sbr. 110. gr., sbr. b. lið 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19, 1991.  Ekkert hafi komið fram í málinu nú sem hnekkt geti því mati.  Sú hætta, að kærði muni reyna að komast úr landi og þannig undan málsókn, sé enn jafn mikil og þegar ofangreindir dómar gengu.

Með vísan til þess sem að framan sé rakið sé þess krafist að dómari leggi fyrir kærða að halda sig á Íslandi allt til miðvikudagsins 4. október nk. kl. 16:00.

Kærði er grunaður um brot gegn höfundarlögum nr. 73,1972 og lögum nr. 57,2005 um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins, en brot gegn þessum ákvæðum geta varðað fangelsisrefsingu. Kærði hefur sætt farbanni frá 20. ágúst sl. Með dómi Hæstaréttar Íslands í málinu nr. 507/2006 var staðfestur úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um að kærði skyldi sæta farbanni til dagsins í dag kl. 16:00. Í forsendum tilvitnaðs dóms Hæstaréttar kemur fram að meðal gagna málsins nú sé að finna rannsóknargögn, sem aflað hafi verið eftir að dómur Hæstaréttar í málinu nr. 486/2006 gekk, og verði að ætla ríkislögreglustjóra hæfilegan frest til að vinna úr þeim, ljúka rannsókn sinni og taka ákvörðun um hvort ákært verði. Í kröfu þeirri sem nú liggur fyrir dóminum kemur fram að unnið sé að því nú að kanna og greina nánar efnislegt innihald tilgreindra skrá, sem taldar séu hafa að geyma verðmætustu rannsóknar- og viðskiptaleyndarmál kæranda. Jafnframt kemur þar fram að ákæra á hendur kærða verði gefin út innan þess tíma sem farbannskrafan lúti að. Er  ljóst að ríkislögreglustjóra hefur ekki tekist að ljúka rannsókn sinni á þeim tíma sem farbanninu var markaður. Hins vegar liggur fyrir að rannsókn málsins er að ljúka og að ákæra verður gefin út innan þess tíma sem farbannskrafa í máli þessu lýtur að. Kærði, sem er erlendur ríkisborgari, er undir rökstuddum grun um að hafa framið verknað sem fangelsisrefsing er lögð við. Þykir hætta vera á því að muni reyna að komast úr landi eða leynast eða koma sér með öðrum hætti undan málssókn. Er skilyrðum 110. gr., sbr. b. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19,1991 fyrir því að kærði sæti farbanni fullnægt. Er krafa ríkislögreglustjóra því tekin til greina.

Þorgerður Erlendsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærða, X, [kt.], er bönnuð brottför af landinu allt til miðvikudagsins 4. október nk. kl. 16:00.