Hæstiréttur íslands
Mál nr. 279/2013
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 23. apríl 2013. |
|
Nr. 279/2013.
|
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Jón Sigfús Sigurjónsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. b. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. c. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli b. og c. liða mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. apríl 2013 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. apríl 2013, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 10. maí 2013 klukkan 16. Kæruheimild er í b. lið 2. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með skírskotun til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. apríl 2013.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi uns dómur fellur í máli hans en þó eigi lengur en til föstudagsins 10. maí 2013, kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að ákærði X hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 7. janúar sl., sbr. úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, R-7/2013, á grundvelli a.- og b.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88, 2008, sem framlengt hafi verið með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur R-24/2013 frá 14. janúar, R-50/2013 frá 25. janúar, R-78/2013 frá 22. febrúar og R-114/ 2013 frá 22. mars til dagsins í dag á grundvelli b. og c. liðar 1. mgr. 95. sakamálalaga.
Ákæra hafi verið gefin út 8. mars sl. vegna fjölda auðgunarbrota framin í desember 2012 og janúar 2013. Um sé að ræða þjófnaði, einn og í félagi, í heimahús, samtals 18 tilvik þar sem miklum verðmætum hafi verið stolið, en hluti af þýfinu hafi fundist í herbergi sem hann hafi haft til umráða vel falið. Hann hafi neitað brotunum og sagt að Pólverjar hafi selt honum ætlað þýfi sem hafi fundist í herbergi í umráðum ákærða. Á vettvangi nokkurra innbrotanna hafi sést skóför, sem geti svarað til skópars ákærða og skópars sem hafi fundist á dvalarstað ákærða. Fingraför ákærða hafi fundist á pakka sem hafi verið vandlega falin í rými framan við herbergið. Ákæran hafi verið þingfest hinn 15. mars 2013 við Héraðsdóm Reykjavíkur undir heitinu S-186/2013. Milliþinghald hafi verið þann 20. mars sl. þar sem ákærði ásamt meðákærða hafi neitað sakargiftum og hafi aðalmeðferð farið fram hinn 12. apríl og hafi málið verið dómtekið sama dag.
Ákærði, sem sé litháískur ríkisborgari, hafi takmörkuð tengsl við land og þjóð og því hætta á að hann kunni að koma sér úr landi og þannig undan málsmeðferð fyrir dómi.
Til að tryggja nærveru ákærða á meðan mál hans sé til meðferðar hjá dómstólum og með hliðsjón af alvarleika sakargiftanna, sé þess krafist, að ákærði verði úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald með vísan til b. og c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88, 2008.
Með vísan til alls framanritaðs og gagna málsins að öðru leyti sé farið fram á að ákærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til 10. maí 2013 kl. 16.00.
Af framlögðum gögnum má ráða að ákærði sé undir rökstuddum grun um auðgunarbrot sem fangelsisrefsing er lögð við. Um er að ræða fjölda brota sem eru framin á stuttu tímabili. Ákærði hefur setið í gæsluvarðhaldi vegna fyrrgreindra brota frá því 7. janúar sl. Ákæra á hendur ákærða var gefin út 8. mars sl. Aðalmeðferð fór fram í máli hans 12. þessa mánaðar og var málið dómtekið að henni lokinni. Fallist er á að skilyrðum sé fullnægt til að verða við kröfu sóknaraðila á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 þar sem ætla má að ákærði muni halda áfram að brjóta af sér fari hann frjáls ferða sinna. Tengsl ákærða, sem er litháískur ríkisborgari, við Ísland eru óveruleg. Skilyrðum b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 er því einnig fullnægt. Samkvæmt öllu framansögðu verður fallist á kröfu sóknaraðila eins og hún er fram sett og verður ákærða gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð :
Ákærði, X, kt. [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, en þó eigi lengur en til föstudagsins 10. maí 2013, kl. 16:00.