Hæstiréttur íslands

Mál nr. 826/2017

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kári Ólafsson fulltrúi)
gegn
X (Steinbergur Finnbogason hdl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Greta Baldursdóttir og Viðar Már Matthíasson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 25. desember 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 27. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. desember 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 12. janúar 2018 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að honum verði gert að sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur föstudaginn 22. desember 2017

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 12. janúar nk. kl. 16.  Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Í greinargerð sækjanda kemur fram að Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi haft til rannsóknar um nokkurt skeið mál er varði skipulagða brotastarfsemi sem tengist innflutningi fíkniefna og peningaþvætti. Rannsókn lögreglu hafi verið unnin í samstarfi við pólsk og hollensk yfirvöld. Kærði sé einn af tveimur eigendum fyrirtækisins A ehf, sem reki þrjár matvöruverslanir staðsettar að [...],[...] og [...]. Lögreglan hafi við rannsókn sína aflað upplýsinga og gagna þess efnis að verslunin hafi verið stofnuð fyrir fjármuni sem voru ágóði af brotastarfsemi kærða og meðeiganda hans C, en hann sé búsettur í Hollandi. Lögreglu hafi ítrekað borist upplýsingar þess efnis að kærði, ásamt fleiri aðilum, standi að reglulegum fíkniefnasendingum hingað til lands og að fyrirtækið A sé notað til að þvætta ólögmætan ávinning af brotastarfsemi, m.a. sölu fíkniefna.  

Fyrir liggi að við upphaf stofnunar verslunarinnar þá hafi verið millifærðar inn á fyrirtækið D ehf., sem hafi einnig verið í eigu kærða og C, samtals 28 milljónir, en hluti af þeim peningum hafi verið greiddur með reiðufé inn í fyrirtækið. Peningarnir hafi svo verið millifærðir yfir á A og tilgreint að um lán væri að ræða í bókhaldi fyrirtækjanna en hvergi sé að sjá í gögnum málsins að lánin hafi verið endurgreidd. Við rannsókn málsins hafi lögreglu einnig borist upplýsingar þess efnis að kærði hafi staðið að innflutningi á fíknefnum hingað til lands, n.t.t. innflutningi á amfetamínvökva sem fluttur hafi verið vel falinn í bifreiðum sem komið hafa með ferjunni Norrænu. Það liggi fyrir að lögreglan hér á landi hafi síðastliðnu mánuði fundið og lagt hald á amfetamínvökva sem hafi fundist vel falin i bifreiðum einstaklinga sem komið hafi hingað til lands með ferjunni Norrænu. Um sé að ræða pólska einstaklinga og sé talið að þeir tengist þeim hópi sem rannsókn lögreglu hafi beinst að hér á landi, sem og í Póllandi.

Til viðbótar rannsókn lögreglu þá hafi pólsk lögregluyfirvöld haft til rannsóknar mál er varði skipulagða brotastarfsemi, stórfelld fíkniefnalagabrot og peningaþvætti, og hafi þau formlega óskað eftir aðstoð lögreglu hér á landi við rannsókn málsins. Í máli pólsku lögreglunnar sé kærði undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnalagabroti þar sem kærði hafi á skipulegan hátt með öðrum aðilum komið að inn- og útflutningi á ótilgreindu magni af fíkniefnum frá Póllandi til Íslands og Bretlands. Telur pólska lögreglan að kærði hafi hagnast um hundruð milljóna króna á þess konar ólöglegum viðskiptaháttum. Hafa pólsk yfirvöld gefið út evrópska handtökuskipun á hendur kærða vegna þessa máls og óskað eftir því formlega við íslensk lögregluyfirvöld að kærði verði handtekinn hér á landi.

Þann 12. desember sl. fór lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við pólsk og hollensk yfirvöld í aðgerðir tengdar þessu máli. Nokkrir aðilar hafi þá verið handteknir og húsleitir framkvæmdar á heimili sakborninga, fyrirtækjum í eigu þeirra og bifreiðum. Við leitirnar hafi verið lagt hald á mikið magn af gögnum, m.a. bókhaldi félagsins, reiðufé, tölvur, síma ofl. Þrír aðilar voru í kjölfarið úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna, þ.á.m. kærði X. Við húsleitir erlendis fannst mikið magn fíkniefna, peningar, gögn ofl. Þá hafi verið lagt hald á tölvur og síma sem sæti nú rannsókn lögreglu úti.

Lögreglan vinni nú að því að fara í gegnum þau gögn sem lagt hafi verið hald á og hafi sú vinna leitt til þess að grunur lögreglu hafi styrkst enn frekar og ljóst að skoða þarf nánar bókhald fyrirtækisins, bera undir kærða og aðra aðila sem því tengjast. Þá hafi komið fram við skýrslutöku hjá lögreglu af kærðu og öðrum aðilum er tengjast málinu að framburður kærða komi ekki heim og saman við þau gögn sem lögregla hafi undir höndum varðandi það hvernig peningarnir komu inn í fyrirtækið við stofnun þess. Þá hafi komið fram við skýrslutöku af meðkærða í málinu að í verslun A sé varslað mikið af reiðufé sem tengist ekki rekstri verslunarinnar. Framkvæmdastjóri verslunarinnar hafi borið um að hann hafi gengið ýmissa erinda að fyrirmælum eigenda verslunarinnar sem tengjast flutningi peninga, kaupum á gjaldeyri og öðru sem tengist ekki rekstrinum. Samkvæmt þessum framburði sé ljóst að í versluninni er varslað mikið magn af reiðufé sem ekki sé vitað hvaðan kemur og er það fé m.a. flutt erlendis. Þá hafir einnig komið fram í framburði meðkærða að hann, sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins, fái aukalega greitt svart fyrir vinnu sína, fasta fjárhæð í hverjum mánuði, en sú greiðsla komi beint frá kærða og tengist ekki rekstrinum. Þegar þetta hafi verið borið undir kærða þá kveðst hann ekki kannast við það. Þá hafi komið fram í framburði kærða að meðkærði B hafi lánað fyrirtækinu D 10 milljónir króna fyrir nokkrum árum, en B kveðst ekki kannast við það. Það sé því ljóst að á þessu stigi þá ber kærðu ekki saman um tilurð, greiðslur og færslur á miklu magni af reiðufé og þarf lögregla að taka skýrslur af fleiri aðilum og jafnvel afla frekari gagna.

Í ljósi ofangreinds og þeirra gagna sem lögreglan hafi aflað sé kærði undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu peningaþvætti og innflutningi fíkniefna. Rannsókn málsins sé í fullum gangi en rannsóknin sé mjög umfangsmikil og teygir anga sína til annarra landa. Lögregla vinni að því að fara í gegnum þau gögn sem lagt hefur verið hald á, yfirheyra sakborninga og hafa upp á og taka skýrslur af vitnum. Í ljósi þess telur lögreglan brýna nauðsyn á því að kærða verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, í einangrun, á þessu stigi málsins þar sem ljóst er að ef kærði gengur laus þá geti hann sett sig í samband við meinta samverkamenn og vitni eða þeir sett sig í samband við hann. Þá gæti kærði komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögreglu hafi ekki enn tekist að leggja hald á nú þegar.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr., sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.

Niðurstaða

Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi haft til rannsóknar um nokkurt skeið mál er varði skipulagða brotastarfsemi sem tengist innflutningi fíkniefna og peningaþvætti. Rannsókn lögreglu hafi verið unnin í samstarfi við pólsk og hollensk yfirvöld. Rannsókn lögreglu hafi beinst að fyrirtækinu A ehf. og aðilum er tengist því. Kærði sé einn af tveimur eigendum fyrirtækisins A ehf. sem reki þrjár matvöruverslanir og rannsókn lögreglu sýni að ein þeirra hafi verið stofnuð fyrir ágóða af brotastarfsemi kærða og meðeiganda hans C en hann sé búsettur í Hollandi. Lögreglu hafi ítrekað borist upplýsingar þess efnis að kærði, ásamt fleirum, standi að reglulegum fíkniefnasendingum hingað til lands og að fyrirtækið A sé notað til að þvætta ólögmætan ávinning af brotastarfsemi, m.a. sölu fíkniefna. Rannsóknargögn sýni millifærslur hárra fjárhæða inn á fyrirtæki í eigu kærða. Peningarnir hafi svo verið millifærðir yfir á A ehf. og tilgreint að um lán væri að ræða í bókhaldi fyrirtækjanna en hvergi sé að sjá í gögnum málsins að lánin hafi verið endurgreidd.

Við rannsókn málsins hafi lögreglu borist upplýsingar þess efnis að kærði standi að innflutningi á fíkniefnum hingað til lands. Til viðbótar rannsókn lögreglu hafi pólsk lögregluyfirvöld haft til rannsóknar mál sem varði skipulagða brotastarfsemi og hafi þau formlega óskað eftir aðstoð lögreglu hér á landi við rannsókn málsins. Pólska lögreglan telji kærða vera undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnalagabroti þar sem kærði hafi á skipulegan hátt með öðrum aðilum komið að inn- og útflutningi á ótilgreindu magni af fíkniefnum frá Póllandi til Íslands og Bretlands. Talið sé að kærði hafi hagnast um hundruð milljóna króna á þess konar ólöglegum viðskiptaháttum og hafi pólsk yfirvöld gefið út evrópska handtökuskipun á hendur kærða vegna þessa máls og óskað eftir því formlega við íslensk lögregluyfirvöld að kærði verði handtekinn hér á landi.

Leit á heimili kærða og í verslunum A ehf. sem og hjá öðrum sakborningum hafa leitt til haldlagningar fjölda gagna sem þarf að rannsaka, auk reiðufjár að andvirði nokkurra milljóna króna.

Í ljósi alls framangreinds og þeirra gagna, sem liggja frammi, verður fallist á það með lögreglu að kærði sé undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnalagabroti sem og peningaþvætti. Ætluð brot kærða eru talin varða við 175. gr. a, 173. gr. a og 264.gr. almennra hegningarlaga og geta varðað allt að 6 ára fangelsi og eftir atvikum 12 ára fangelsi.

Ljóst er að lögregla þarf að fara yfir haldlögð gögn og er fallist á að nauðsynlegt sé að lögreglan fái tækifæri til að bera gögnin undir kærða sjálfstætt á meðan hann sætir gæsluvarðhaldi. Þá er fallist á að brýna nauðsyn beri til að kærði sæti gæsluvarðhaldi í einangrun á þessu stigi máls þar sem kærði gæti sett sig í samband við meinta samverkamenn eða þeir haft samband við hann og mögulega einnig vitni. Fyrir liggur að enn er unnið að því að fara yfir gögn sem lagt hefur verið hald á og taka skýrslur af vitnum og sakborningum í fleiri en einu landi.

  Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, alvarleika málsins og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála er fallist á að krafan skuli ná fram að ganga eins og hún er sett fram og nánar greinir í úrskurðarorði. Ekki eru á þessu stigi efni til að marka gæsluvarðhaldi skemmri tíma þar sem með hliðsjón af atvikum öllum, gögnum málsins og því sem rakið hefur verið, er ljóst að rannsókn er umfangsmikil og teygir sig til annarra landa. Um heimild til einangrunar meðan á gæsluvarðhaldinu stendur er vísað til 2. mgr. 98. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr., sbr. 2.mgr.98. gr. sömu laga en eins og rakið hefur verið krefjast brýnir rannsóknarhagsmunir þess að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, X, kt. [...], skal áfram sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 12. janúar nk. kl. 16.  Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.