Hæstiréttur íslands
Mál nr. 22/2003
Lykilorð
- Kærumál
- Vitni
- Úrskurður
- Ómerking ákvörðunar héraðsdóms
|
|
Fimmtudaginn 16. janúar 2003. |
|
Nr. 22/2003. |
Ákæruvaldið(Helgi Magnús Gunnarsson fulltrúi) gegn X (sjálfur) |
Kærumál. Vitni. Úrskurður. Ómerking ákvörðunar héraðsdóms.
Héraðsdómari ákvað að hafna kröfu X um að fá að leiða þrjú nafngreind vitni í máli, sem ákæruvaldið hafði höfðað gegn honum fyrir brot gegn 120. gr. a. almennra hegningarlaga. Hæstiréttur felldi þessa ákvörðun úr gildi með vísan til þess að dómaranum hefði borið að kveða upp úrskurð í stað þess að taka ákvörðun, sbr. 61. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. janúar 2003, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærð er ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur 13. janúar 2003, þar sem hafnað var kröfu varnaraðila um að fá að leiða þrjú nafngreind vitni í máli ákæruvaldsins gegn honum. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að honum verði heimilað að leiða þessi vitni í málinu.
Sóknaraðili krefst þess að ákvörðun héraðsdómara verði staðfest.
Ríkissaksóknari gaf út ákæru í málinu á hendur varnaraðila 2. desember 2002 fyrir ætluð brot gegn 120. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum. Þegar málið var tekið fyrir í héraðsdómi 13. janúar 2003 krafðist varnaraðili þess að fá að leiða nánar tiltekin vitni fyrir dóm til að bera um atvik, sem hann taldi tengjast málinu. Því mótmælti sóknaraðili. Féllst héraðsdómari á þau mótmæli með hinni kærðu ákvörðun.
Samkvæmt 61. gr. laga nr. 19/1991 ber héraðsdómara að úrskurða ágreining um atriði, sem varða vitni. Af þeim sökum var honum ekki fært að taka afstöðu til deilu aðilanna með ákvörðun, heldur bar honum að kveða upp úrskurð samkvæmt 2. mgr. 134. gr. laga nr. 19/1991 um ágreiningsefnið. Verður því ekki komist hjá að fella ákvörðun héraðsdómara úr gildi og leggja fyrir hann að kveða upp úrskurð um ágreining málsaðilanna.
Dómsorð:
Hin kærða ákvörðun er felld úr gildi.