Hæstiréttur íslands

Mál nr. 410/2008


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Mánudaginn 28

 

Mánudaginn 28. júlí 2008.

Nr. 410/2008.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Páll Arnór Pálsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103 gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Markús Sigurbjörnsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 25. júlí 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 23. júlí 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 13. ágúst 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur miðvikudaginn 23. júlí 2008.

Ár 2008, miðvikudaginn 23. júlí, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjatorg af Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómara, kveðinn upp svofelldur úrskurður.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, hollenskur ríkisborgari, sæti gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 13. ágúst 2008, kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnabrot, innflutning á fíkniefnum frá Hollandi gegnum Danmörku til Íslands.  Þann 10. júní sl. hafi hollenski ríkisborgarinn X verið handtekinn við komu til Íslands, Seyðisfjarðar, með Norrænu.  Í húsbíl kærða hafi fundist tæp 200 kg af ætluðum fíkniefnum, mest hass.  Kærði hafi játað aðild sína að málinu og við rannsókn málsins hafi einnig verið fengnir úrskurðir héraðsdóms varðandi síma þá sem kærði hafi verið með og símanúmer þeim tengdum. Við skoðun þeirra gagna hafi komið fram ítrekuð samskipti við aðila sem kærði hafi sagt vera Íslending kallaðan ,,Kimma“, sem hann hafi afhent efnin hér á landi.  Kærði hafi sagt við yfirheyrslur hjá lögreglu að ,,Kimmi“ sé sá aðili sem eigi fíkniefnin og hafi beðið hann að flytja þau inn til landsins oftar en einu sinni. Kærði hafi greint svo frá við skýrslutökur að hann hafi m.a. hitt „Kimma“ í sams konar ferð fyrir ári síðan og hafi gert grein fyrir ferð sinni um landið á sínum tíma, sem hann kvað hafa verið farna í sama tilgangi og nú, þ.e. að flytja inn fíkniefni og að þá hafi hann gert það með sömu verknaðaraðferð og svipað magn fíkniefna hafi verið flutt inn. Allar upplýsingar lögreglu bendi til að um sé að ræða Y og hafi kærði staðfest þann grun lögreglu með því að benda á Y við myndsakbendingu hjá lögreglu sem umræddan ,,Kimma.“

Með úrskurðum dómsins hafi símafyrirtækjum verið gert skylt að veita lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu símaupplýsingar um öll númer kærða og númerið [...] sem er skráð á Y og hafi rannsókn á þeim símagögnum farið fram. Samkvæmt bráðabirgðagögnum um umræddar símaupplýsingar sé ljóst að Y hafi ferðast austur á land á nákvæmlega sömu tímum og kærði hafi komið til landsins og sama á við um staðsetningar á landinu, sem kærði kveðst hafa verið með ,,Kimma” á. Við fyrstu yfirheyrslur hafi Y neitað alfarið að þekkja kærða og að hafa hitt hann hér á landi. Þegar þessar símaupplýsingar hafi verið bornar undir Y þá hafi hann sagst ferðast mikið um landið en hafi ekki getað skýrt ferðir sínar nánar en það. Við yfirheyrslu hjá lögreglu þann 16. júlí 2008 hafi Y breytt svo framangreindum framburði sínum og kvaðst hafa hitt Spánverja að nafni ,,Rapido” þann 5. júlí 2007 á Seyðisfirði. Þessi Spánverji hafi verið á rauðum húsbíl að sögn Y og hafi Y sagst hafa hitt hann vegna samkomulags sem hann hafði gert við spænska ferðaskrifstofu um að fylgja hópi spænskra ferðamanna um Ísland, en þessi Spánverji hafi bara komið einn til landsins. Lögregla hafi reynt að fá staðfestingu á þessum framburði Y en umrædd ferðaskrifstofa hafi fundist hvergi á Spáni. Auk þess sem fram hafi komið önnur gögn sem véfengja þennan framburð Y.

Sambærileg skoðun hafi farið fram á símanúmerinu [...] sem kærði kvað við yfirheyrslur vera símanúmer ,,Kimma” og við þá skoðun komið í ljós að símarnir [...] (sem er skráður á Y) og [...] hafi verið í fjölmörg skipti staðsettir á sama stað á landinu en í engum tilfella hafi þeir verið á mismunandi stöðum. Við skoðun á símaupplýsingunum hafi einnig verið að finna samskipti við þýskt par sem hafi komið til landsins í haustbyrjun 2007 á húsbíl með ferjunni Norrænu og talið sé að þau hafi komið í sama tilgangi og kærði gerði, þ.e. til að flytja inn fíkniefni til landsins að beiðni Y. Við rannsókn hafi einnig komið í ljós að símaupplýsingar sýni að hringt var úr símanúmeri ,,Kimma” í umrætt par, en við yfirheyrslur hjá lögreglu hafi Y viðurkennt að hafa hitt umrætt par hér á landi sumarið 2007 í þeim tilgangi að sýna þeim landið.  Réttarbeiðni hafi verið send til Þýskalands þess efnis að óskað sé eftir að parið verði yfirheyrt um samskipti sín við Y og kærða og ferð þeirra til Íslands. Sambærileg réttarbeiðni hafi verið send til Spánar vegna málsins, en við rannsókn símagagna hafi komið í ljós að þann 23. ágúst 2007, eða daginn sem kærði hafi farið frá Íslandi eftir fyrsta innflutning fíkniefna, hafi sama spænska símanúmerið verið í samskiptum við síma Y [...] kl. 13.32 og sýni símagögn stutt samtal. Sama spænska númer hafi svo verið í samskiptum við síma kærða kl. 13:34, en símagögn sýni að ekki hefur verið svarað. Að lokum hafi verið hringt úr sama spænska númeri í númer ,,Kimma” 857 2649. Ljóst sé að eigandi umrædds spænska númers sé í tengslum við bæði kærða, Y og ,,Kimma.” Réttarbeiðni hafi verið send til Spánar þess efnis að óskað sé að skráður eigandi númersins verði yfirheyrður um þessu samskipti sín. Nauðsynlegt sé því að kærði sæti gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarhagsmuna þar til yfirheyrslum sé lokið í Þýskalandi og á Spáni.

Kærði þyki vera undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnabroti. Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð opinberra mála frá 11. júní sl., sbr. úrskurð Héraðsdóms Austurlands nr. R-10/2008, en gæsluvarðhaldið hafi svo verið framlengt til 23. þ.m. með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur nr. 359/2008. Meint aðild kærða sé talin varða pökkun og móttöku fíkniefnanna erlendis og flutning fíkniefnanna til landsins. Nauðsynlegt sé að upplýsa nánar um einstaka verknaðarþætti hinna grunuðu og nánar um meinta aðild kærða að brotinu. Mál þetta sé talið umfangsmikið, en framundan séu frekari yfirheyrslur af kærða og Y, auk þess sem ekki sé útilokað að fleiri geti átt aðild að máli sem þarf að handtaka og yfirheyra vegna málsins bæði hérlendis og erlendis. Kærði hafi verið samvinnuþýður við skýrslutökur hjá lögreglu og greint frá sínum þætti. Rannsókn hvað varðar hlut meðkærða, kærða Y, miði áfram og ljóst sé að nánari yfirheyrslur verði að fara fram af Y og mögulega af öðrum óþekktum samverkamönnum. Auk þess sem frekari gagnaöflun og gagnaúrvinnsla sé framundan sem skýrt getur frekar aðdraganda brotsins og möguleg samskipti kærða við meinta samverkamenn sem kunni að tengjast málinu. En unnið sé m.a. úr banka- og símagögnum. Beðið sé gagna sem óskað hefur verið eftir frá erlendum lögregluyfirvöldum, en lögreglan njóti aðstoðar erlendra yfirvalda við rannsókn málsins. Upplýsa þurfi nánar og afla sönnunargagna um það hvar, hvenær og hvernig fíkniefnunum hafi verið komið fyrir í bifreiðinni og hverjir hafi komið þeim fyrir, hver hafi fjármagnað innflutninginn og hver hafi átt að móttaka fíkniefnin hér á landi. Nauðsynlegt sé að kærði sæti gæsluvarðhaldi, en ljóst sé að gangi kærði laus geti hann sett sig í samband við meinta vitorðsmenn sem gangi lausir eða þeir geti sett sig í samband við hann eða kærði geti komið undan gögnum með sönnunargildi sem ekki hefur verið lagt hald á. Þykir þannig brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus.

Verið sé að rannsaka ætluð brot gegn fíkniefnalöggjöfinni og má ætla að ef þau sönnuðust, þá myndu þau geta varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.  Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð opinberra mála.

Mikið magn fíkniefna fannst í bifreið kærða við komu hans til landsins 8. júlí sl. og hefur kærði viðurkennt að hafa flutt þau inn til landsins. Kærði er undir rökstuddum grun um brot gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað getur allt að 12 ára fangelsi. Um er að ræða umfangsmikið brot á fíkniefnalöggjöfinni og rannsókn þess enn á frumstigi hvað varðar hlut meintra samverkamanna kærða. Nauðsynlegt er að upplýsa nánar um einstaka verknaðarþætti hinna grunuðu og nánar um meinta aðild kærða að brotinu. Mál þetta er talið umfangsmikið, en framundan eru frekari yfirheyrslur af kærða og Y, auk þess sem ekki er útilokað að fleiri geti átt aðild að málinu sem þurfi að handtaka og yfirheyra vegna málsins bæði hérlendis og erlendis. Rannsókn hvað varði hlut kærða, og Y miði áfram og ljóst sé að nánari yfirheyrslur verði að fara fram af Y og mögulega af öðrum óþekktum samverkamönnum. Lögregla vinnur nú m.a. úr banka- og símagögnum, en beðið er gagna sem óskað hefur verið eftir frá erlendum lögregluyfirvöldum. Er fallist á með lögreglu að upplýsa þurfi nánar og afla sönnunargagna um það hvar, hvenær og hvernig fíkniefnunum hafi verið komið fyrir í bifreiðinni og hverjir hafi komið þeim fyrir, hver hafi fjármagnað innflutninginn og hver hafi átt að móttaka fíkniefnin hér á landi.

Er fallist á með lögreglu að brýnir hagsmunir séu fyrir því að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til rannsóknar, enda verður að telja hættu á að hann geti spillt fyrir rannsókn málsins gangi hann laus, til dæmis með því að hafa áhrif á vitni eða samseka. Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna og a- liðar 1. mgr. 103. gr. um meðferð opinberra mála nr. 19/1991, er krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu tekin til greina, eins og hún er fram sett.

Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, hollenskur ríkisborgari, skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 13. ágúst 2008, kl. 16.00.