Hæstiréttur íslands
Mál nr. 410/2007
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Fimmtudaginn 2. ágúst 2007. |
|
Nr. 410/2007. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Hilmar Ingimundarson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. c. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 31. júlí 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 1. ágúst sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 31. júlí 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í málum hans, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 25. september 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 12. júlí 2007 var varnaraðili dæmdur til að sæta fangelsi í nítján mánuði vegna þjófnaða, nytjastuldar og fleiri brota sem framin voru á tímabilinu mars 2005 til og með janúar 2007. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 31. júlí 2007.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að dómurinn úrskurði að X, kt. [...], Reykjanesbæ verði gert að sæta gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í málum hans, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 25. september 2007, kl. 16:00 vegna ætlaðra brota gegn 244. gr., 248. gr., og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.
Í kröfu lögreglustjóra kemur fram að kærði hafi verið handtekinn í nótt þar sem hann hafi verið að brjótast inn í bifreið og bílskúr. Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi nú til rannsóknar fjölmörg mál á hendur kærða og sé ljóst að hann hafi einbeittan brotavilja og virðist ekkert lát vera á brotastarfsemi hans. Frá því að hann hafi losnað úr gæsluvarðhaldi 2. júlí s.l. séu til rannsóknar á hann fjöldi mála og muni þau líklega öll sæta ákærumeðferð á næstunni:
M. 007-2007-51832:
Akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi, laugardaginn 7. júlí. Þá hafi kærði verið grunaður um að hafa ekið bifreiðinni undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Blóðsýni hafi verið sent í rannsókn en sé ekki komið aftur.
M. 007-2007-52076:
Varsla á 0,39 gr. af amfetamíni, sunnudaginn 8. júlí s.l. Efnið hafi fundist í pilluboxi sem kærði hafi verið með á sér, er lögregla hafði afskipti af bifreið sem hann var farþegi í.
M. 007-2007-57068:
Akstur, án þess að hafa öðlast ökuréttindi, þann 26. júlí s.l. Þá sé hann grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, en bæði þvag- og blóðsýni hafi verið send í rannsókn, þar sem hann hafi verið mjög sljór í tali og þreytulegur til augnanna.
M. 007-2007-57087:
Innbrot í bifreiðina [...], miðvikudaginn 25. júlí s.l. þar sem hún stóð fyrir utan [...], Reykjavík.
M. 0007-2007-57086:
Innbrot í bifreiðina [....] fimmtudaginn 26. júlí s.l. þar sem hún stóð fyrir utan Þín Verslun, við Seljabraut, Reykjavík og stolið þaðan geislaspilara, sjónauka og smámynt.
M. 007-2007-57089:
Kærði hafi verið handtekinn fimmtudaginn 26. júlí s.l. ásamt tveimur öðrum þar sem hann var nálægt bifreiðinni PI-909, sem tilkynnt hafði verið stolin. Er lögreglumenn höfðu afskipti af félaga kærða kastaði hann frá sér kveikjuláslyklum í götuna. Hafi þetta verið kveikjuláslyklar að umræddri bifreið. Sagðist eigandi bifreiðarinnar sakna fartölvu sem hafi verið í bifreiðinni og að skráningarmerki bifreiðarinnar að framan hefðu verið fjarlægð. Við skýrslutöku hjá lögreglu hafi kærði neitað að hafa stolið bifreiðinni. Kærði segist ekki vita neitt um munina úr bifreiðinni.
M. 007-2007-57855:
Akstur, án þess að hafa öðlast ökuréttindi, sunnudaginn 29. júlí s.l. Þá sé hann grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, og blóðsýni verið sent í rannsókn. Þá hafi fundist ætluð fíkniefni á kærða.
M. 007-2007-58199:
Þjófnað, með því að hafa mánudaginn 30. júlí s.l. stungið inn á sig vörum í verslun Hagkaupa í Smáralind, Kópavogi.
M. 007-2007-58279:
Innbrot í bifreið, með því að hafa aðfararnótt þriðjudagsins 31. júlí 2007 brotist inn í bifreiðina [...], þar sem hún stóð fyrir utan [...], Reykjavík, og stolið þaðan svartri leðurpyngju með smámynt.
M. 007-2007-58283:
Innbrot og þjófnað, með því að hafa aðfararnótt þriðjudagsins 31. júlí 2007 reynt að stela bifreiðinni [...]þar sem hún hafi staðið fyrir utan [...], Reykjavík og brotist svo inn í bílskúr við [...], Reykjavík og tekið þaðan Olympus Digital 800 myndavél í tösku. Myndavélin hafi fundist í bakpoka félaga kærða en þeir hafi verið saman í innbrotinu ásamt þriðja aðila.
Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 23. febrúar 2007, í máli nr. S-1570/2007, hafi kærði verið dæmdur til 15 mánaða fangelsisrefsingar fyrir þjófnaði, fjársvik, umboðssvik, nytjastuldi og umferðarlagabrot. Brotaferill kærða hafi verið óslitinn frá byrjun þessa árs. Kærði hafi setið í síbrotagæslu á þessu ári allt til 2. júlí 2007 er Hæstiréttur hafi fellt úrskurð um gæsluvarðhald úr gildi. Öll þau brot sem hér að framan séu rakin og séu til rannsóknar hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu séu framin eftir 2. júlí s.l. Sé því ljóst að um sé að ræða einbeittan brotavilja kærða. Með vísan til framangreinds ferils kærða telji lögregla yfirgnæfandi líkur á því að kærði muni halda brotastarfsemi áfram fari hann frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að kærði sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sæti dómsmeðferð.
Með vísan til framanritaðs, framlagðra gagna og c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Hjá lögreglu eru 10 tilvik til rannsóknar þar sem kærði hefur ýmist viðurkennt að hafa gerst brotlegur, ekki muna atvik eða neitað sök. Í öllum tilvikum kemur hann við sögu. Ætluð brot kærða eru framin á tímabilinu frá 7. júlí sl. Kærða var sleppt úr síbrotagæslu í framhaldi af dómi Hæstaréttar 2. júlí sl. Fyrir hendi er rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um verknaði sem geta varðað hann fangelsisrefsingu. Þá verður á því byggt að ætla megi að kærði muni halda áfram brotum meðan málum hans er ekki lokið þegar litið er til hegðunar hans sl. þrjár vikur. Eru því skilyrði c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála uppfyllt. Samkvæmt framansögðu verður krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu tekin til greina eins og hún er fram sett.
Allan V. Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í málum hans, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 25. september nk. kl. 16.00.