Hæstiréttur íslands
Mál nr. 822/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Benedikt Bogason og Karl Axelsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. desember 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 12. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. desember 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. desember 2016 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að honum verði gert að sæta farbanni, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. desember 2016.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. desember nk. kl. 16. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar mál er varði stórfelldan innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands frá Hollandi. Upphaf málsins megi rekja til þess að tilkynning hafi borist frá tollvörðum um að það hefði borist póstsending frá Hollandi með Fedex sem innihéldi ætluð fíkniefni. Skráður viðtakandi póstsendingarinnar hafi verið aðili að nafni A, kt. [...], [...] í [...].
Við skoðun lögreglu á sendingunni hafi verið að finna nokkur ílát sem við rannsókn tæknideildar lögreglu hafi leitt í ljós að innihéldu 4 kg af amfetamíni. Efnunum hafi verið skipt út af hálfu lögreglu og með heimild Héraðsdóms Reykjavíkur, hafi eftirfararbúnaði og hlustunarbúnaði verið komið fyrir í pakkningunni. Þann 1. desember hafi pakkanum verið keyrt út og komið til A. Þegar A hafi opnað pakkann og séð að í honum væri upptökubúnaður frá lögreglu hafi hann haft samband við B og spurt hvað hann ætti að gera, tekið mynd af innihaldi sendingarinnar og sent honum. A hafi verið handtekinn af lögreglu að kvöldi 1. desember og hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins.
Samkvæmt rannsóknargögnum þá hafi B hitt aðila að nafni C á veitingastaðnum [...] að kvöldi 1. desember sl., sama kvöld og A hafi verið handtekinn, og hafi þeir rætt sendinguna og fleiri aðila sem mögulega tengist málinu.
Lögreglan hafi nú farið yfir símagögn A og B en þar megi sjá skilaboð á milli þeirra þar sem verið sé að ræða um sendingu sem væntanleg væri með Fedex. Þá liggi fyrir í gögnum málsins að aðili að nafni D hringi í farsíma A um 10 mínútum eftir að hann hafi verið handtekinn og sendi honum skilaboð á Facebook í kjölfarið.
B hafi verið handtekinn þann 2. desember sl. og C og D hafi verið handteknir 9. desember sl. Þeir sæti allir gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins.
Í gærkvöldi hafi einn sakborninga málsins óskað eftir því að fá að ræða við lögreglu og viljað koma þeim upplýsingum á framfæri að maður að nafni X hefði staðið að innflutningi efnanna. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafi X starfað hjá Fedex þar til nokkrum dögum áður en áðurnefnd sending hafi borist hingað til lands. Þá hafi lögreglu áður borist upplýsingar um að X stæði að innflutningi fíkniefna hingað til lands. Vegna fyrrgreinda upplýsinga hafi lögregla handtekið X á flugstöð Leifs Eiríkssonar í nótt en þá hafi hann verið á leið úr landi til Hollands.
Rannsókn málsins sé á frumstigi. Lögreglan vinni að því að skoða þau gögn sem nú þegar hafi verið lagt hald á og í samstarfi við erlend yfirvöld sé verið að rekja sendingu pakkans hingað til lands. Ljóst sé að ef kærði gangi laus þá geti hann haft mikil áhrif á rannsókn málsins m.a. með því að setja sig í samband við meinta samverkamenn sem gangi lausir eða þeir setji sig í samband við hann og þá gæti hann komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögreglan hafi ekki lagt hald á nú þegar. Þá þyki nauðsynlegt að bera undir kærða sjálfstætt þau gögn sem lagt hafi verið hald á. Það sé því mjög brýnt fyrir lögreglu að vernda rannsóknarhagsmuni málsins á þessu stigi og sé það mat lögreglu að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt í málinu. Kærði sé undir rökstuddum grun um stórfellt fíkniefnalagabrot sem talið sé varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga og geti það varðað allt að 12 ára fangelsi.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún sé sett fram.
Niðurstaða:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar ætluð stórfelld brot kærða á fíkniefnalöggjöfinni og kærði er að mati lögreglu undir rökstuddum grun um stórfellt fíkniefnalagabrot sem talið er varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ásamt síðari breytingum. Refsing getur, ef sök er sönnuð, varðað allt að 12 ára fangelsi. Þann 30. nóvember sl. lagði lögreglan hald á póstsendingu hjá Fedex sem innihélt rúmlega 4 kg af amfetamíni. Sendingin hafi verið skráð á A, [...] í [...]. Vegna rannsóknar málsins sæta nú gæsluvarðhaldi B, C og D. Í gærkvöldi upplýsti einn sakborninga að kærði hafi staðið að innflutningi umræddra fíkniefni en hann starfaði hjá flutningsaðila efnanna þar til nokkrum dögum áður en umrædd sending barst hingað til lands. Lögreglu hafi áður borist upplýsingar um að kærði standi að innflutningi fíkniefna hingað til lands. Kærði var handtekinn á flugstöð Leifs Eiríkssonar í nótt, á leið úr landi til Hollands.
Af því sem fram hefur komið er fallist á það með lögreglu að rannsóknarhagsmunir krefjist þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan frekari rannsókn fer fram. Lögregla vinnur í samstarfi við erlend yfirvöld að rekja sendingu pakkans hingað til lands. Ætla má að kærði muni reyna að torvelda rannsókn málsins gangi hann laus, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni. Brýnir rannsóknarhagsmunir mæla gegn því að farbann komi til greina. Þá er ekkert tilefni til þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími þar sem rannsókn á ætlaðri aðild kærða er á frumstigi. Skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er því fullnægt svo fallast má á kröfu lögreglustjórans um að kærði sæti gæsluvarðhaldi.
Þá hefur sækjandi fært að því fullnægjandi rök, sbr. og skilyrði b. liðar 1. mgr. 99. gr., sbr. 2. mgr. 98. gr. sakamálalaga nr. 88/2008 að nauðsynlegt sé að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldi standi.
Verður, að öllu framangreindu virtu, krafan tekin til greina eins og í úrskurðarorði greinir.
Þórður Clausen Þórðarson kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
X, kt. [...], er gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. desember nk. kl. 16.00. Þá verður kærða gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.