Hæstiréttur íslands
Mál nr. 539/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Föstudaginn 17. september 2010. |
|
|
Nr. 539/2010. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Oddgeir Einarsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 15. september 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 16. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. september 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 29. september 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann þess að sér verði ekki gert að sæta einangrun á gæsluvarðhaldstíma.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Fallist er á með sóknaraðila að fram sé kominn rökstuddur grunur um að varnaraðili hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Er fullnægt skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 fyrir því að hann verði látinn sæta gæsluvarðhaldi. Þá verður einnig talið að rannsóknarhagsmunir leiði til þess að fallist verði á kröfu sóknaraðila um að varnaraðila verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi hans stendur, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008. Með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. september 2010.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til miðvikudagsins 29. september n.k. kl. 16:00.
Þá er gerð krafa um að sakborningur sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsaki nú ætluð stórfelld brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og gegn peningaþvættisákvæði almennra hegningarlaga sbr. 264 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Upphaf þessa máls séu tilkynningar frá Íslandsbanka og frá Arion banka um peningafærslur sem hafi þótt grunsamlegar og ekki samræmast upplýsingum og eða viðskiptum hjá reikningshöfum í bönkunum.
Við nánari skoðun lögreglu hafi komið í ljós að um hafi verið að ræða greiðslur inn og út af reikningum tveggja fyrirtækja A, kt. [...], og B, kt. [...]. Hafi reikningsyfirlit sýnt háar fjárgreiðslur frá tollstjóra inn á reikninga þessar tveggja fyrirtækja. Fjárhæðirnar voru síðan smám saman teknar út af reikningunum fyrirtækjanna að mestu í reiðufé. Innlagnir og úttektir sem til rannsóknar eru áttu sér stað frá október 2009 til júní 2010.
Við upplýsingaöflun lögreglu m.a. hjá skattrannsóknarstjóra hafi komið í ljós að hinar háu greiðslur inn á reikningana hafi verið endurgreiðslur á innskatti vegna endurbóta á húsnæði en slíkar endurgreiðslur séu gerðar á grundvelli sérstakrar skráningar á virðisaukaskattsskrá skv. reglugerð nr. 577/1989. Við nánari eftirgrennslan um grundvöll þessara endurgreiðslna vöknuðu grunsemdir um að tilefni þeirra byggði á röngum og tilhæfulausum gögnum.
Rannsókn málsins hafi leitt í ljós að húsnæði það sem félögin fengu endurgreiddan innskatt hefur aldrei verið í eigu félaganna. Endurgreiðslur til A, samtals að fjárhæð kr. 174.330.155 sé vegna endurbóta húsnæðis að [...] í Reykjavík. Það húsnæði hafi skv. gögnum málsins aldrei verið í eigu A. Endurgreiðslur til B, samtals að fjárhæð kr. 103.000.000 hafi verið vegna endurbóta á iðnaðarhúsnæði að [...] í Reykjavík. Það húsnæði er hins vegar í eigu annars félags, C, og virðist aldrei hafa verið í eigu B. Þá þykir einnig þykir grunsamlegt að áætlaðar endurbætur sem endurgreiðslan byggir á eru langt yfir fasteignamati þeirra eigna sem endurbæta átti.
Samkvæmt reglugerð nr. 577/1989 sé skylt að leggja fram ýmis gögn er sýni fram á eignarhald á húsnæði og fyrirhugaðar endurbætur áður en unnt er að afgreiða erindi um sérstaka skráningu og endurgreiðslu. Starfsmaður í virðisaukaskattdeild ríkisskattstjóra hafi staðfest að hafa afgreitt þessi erindi og að þá hafi legið fyrir þau gögn sem krafist er m.a. kaupsamningar um húsnæði. Hjá skattstjóra finnist hins vegar engin gögn varðandi fyrrnefnd tvö félög. Séu möppur sem hafi átt að innihalda þau gögn af óútskýranlegum ástæðum tómar. Ljóst sé að ef að þessi gögn lágu einhvern tíman fyrir þá var um fölsuð gögn að ræða.
Sakborningur, X, sé með prókúru á bankareikning B og annist samkvæmt bankayfirliti þrjár úttektir af reikningi félagsins í október 2009, samtals kr. 2.400.000.
Við yfirheyrslur hafi X tjáð lögreglu að vinur hans Y hefði komið honum í samband við annan sakborning í málinu, Z, sem væri eigandi B. Z hefði beðið X um að aðstoða sig við úttektir af reikningi B. Hún hefði látið hann hafa miða þar sem skráð voru útibú sem hann átti að heimsækja og hefði hann átt taka út hámarksfjárhæðir sem félaginu var heimilt að taka út í hvert skipti. Sagðist X hafa gert þetta í 8 til 10 skipti og minnti hann að samtals hefði hann tekið út um 15 milljónir króna. Hann hefði svo farið með féð heim til sín en ónafngreindur maður hafi komið í tvö skipti, kynnt sig sem svo að hann væri að sækja fé fyrir B og sótt þær upphæðir sem safnast höfðu upp á heimili X. Sagði X að hann hefði talið sig vera að aðstoða Z við að taka út framangreinda fjárhæð þar sem hún byggi úti á landi og ætti ekki auðvelt með að nálgast þessa peninga. X kvaðst hafa fengið um kr. 250.000 sem greiðslu fyrir fyrrnefnda aðstoð.
Með vísan til framangreinds og til gagna málsins sé uppi rökstuddur grunur um að sakborningur hafi gerst sekur um peningaþvætti og átt hlutdeild í umfangsmiklum brotum gegn skattalögum þar sem yfir hundrað milljónir hafi sviknar úr ríkissjóði.
Rannsókn málsins sé á frumstigi. Að mati lögreglu sé uppi rökstuddur grunur um að sakborningur eigi aðild að því broti sem til rannsóknar sé. Þegar hafa 7 aðilar verið handteknir í tengslum við málið og liggi fyrir umfangsmikil vinna við yfirheyrslur og gagnaöflun. Lögregla leiti nú samverkamanna sakbornings eins eða fleiri, m.a. þess aðila sem talinn er hafa skipulagt brotin. Megi ætla að ef sakborningur verði látinn laus muni hann eiga þess kost að torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að hafa samband við ætlaða samverkamenn og koma undan gögnum. Lögregla telji það brýnt fyrir framgang málsins að fallist verði á framkomna kröfu um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna svo unnt sé að reyna að hafa upp á framangreindum aðilum og til að koma í veg fyrir að sakborningur geti spillt rannsókn málsins. Af framangreindum ástæðum er einnig farið fram á að sakborningur sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.
Meint sakarefni séu stórfelld skattalagabrot og peningaþvætti en brotin eru talin geta varðað við almenn hegningarlög nr. 19/1940 og lög um virðisaukaskatt nr. 50/1988. Við þessum brotum liggur allt að 6 ára fangelsisrefsing. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Um heimild til einangrunar á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur er vísað til b-liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga.
Rannsókn málsins er á frumstigi en kærði var handtekinn í gærkvöldi. Í ljósi þessa þykir hætta á að kærði muni torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á vitni og samseka, fari hann frjáls ferða sinna.
Með vísan til þess sem að framan greinir svo og til rannsóknargagna málsins er fallist á að fullnægt sé skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi svo sem krafist er. Kærði skal sæta einangrun á meðan gæsluvarðhaldinu stendur.
Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til miðvikudagsins 29. september n.k. kl. 16:00.
Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.