Hæstiréttur íslands
Mál nr. 50/2002
Lykilorð
- Skuldamál
- Útivist
- Kröfugerð
- Vextir
- Vanreifun
- Frávísun frá Hæstarétti
|
|
Fimmtudaginn 18. apríl 2002. |
|
Nr. 50/2002. |
Húsanes ehf. (Magnús Guðlaugsson hrl.) gegn Hljómalind ehf. (enginn) |
Skuldamál. Útivist. Kröfugerð. Vextir. Vanreifun. Frávísun máls frá Hæstarétti.
H ehf. áfrýjaði útivistardómi til endurskoðunar á niðurstöðu héraðsdóms um dráttarvexti. Málatilbúnaður H ehf. þótti slíkum annmörkum háður að óhjákvæmilegt væri að vísa málinu sjálfkrafa frá Hæstarétti.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen.
Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 30. janúar 2002. Hann krefst þess að stefndi verði dæmdur til að greiða sér 5.978.022 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt „III. kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001“ frá 15. september 1999 til 5. janúar 2000, af 4.216.705 krónum frá þeim degi til 18. apríl sama árs, af 2.970.726 krónum frá þeim degi til 2. júní sama árs, en af 2.152.618 krónum frá þeim degi til greiðsludags. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti.
Stefndi hefur ekki látið málið til sín taka.
Málið hefur verið flutt skriflega samkvæmt 3. mgr. 158. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 12. gr. laga nr. 38/1994.
Í héraðsdómsstefnu krafðist áfrýjandi 5.978.022 króna úr hendi stefnda, ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 25/1987 af þeirri fjárhæð frá 15. september 1999 til greiðsludags, allt að frádregnum innborgunum að fjárhæð 4.889.720 krónur. Útivist varð af hálfu stefnda í héraði. Með hinum áfrýjaða dómi var honum gert að greiða mismuninn á höfuðstól umkrafinnar skuldar og áðurgreindum innborgunum, 1.088.302 krónur, ásamt dráttarvöxtum af nánar tilgreindum fjárhæðum. Í þeim efnum var lagt til grundvallar að allar innborganirnar kæmu óskertar til lækkunar á höfuðstól skuldarinnar. Fyrir Hæstarétti kveðst áfrýjandi telja þessa niðurstöðu andstæða langvarandi venju um að innborganir á kröfu skuli fyrst ganga til greiðslu á kostnaði, því næst á dráttarvöxtum en síðast á höfuðstól.
Eins og ráðið verður af framangreindu hefur áfrýjandi breytt kröfu sinni fyrir Hæstarétti þannig að nú er þar meðal annars tíundað í einstökum atriðum af hvaða fjárhæð hann krefst dráttarvaxta eftir hverja innborgun stefnda á skuldina. Þessar breytingar á kröfugerð eru ekki skýrðar sérstaklega í greinargerð áfrýjanda, en með henni hefur hann lagt fram þrjár kvittanir fyrir innborgunum stefnda. Er sú fyrsta fyrir 2.489.720 krónum, sem greiddust 5. janúar 2000, sú næsta frá 18. apríl sama árs fyrir 1.500.000 krónum, en sú þriðja fyrir greiðslu að fjárhæð 900.000 krónur 2. júní sama árs. Dómkrafa áfrýjanda fyrir Hæstarétti miðar að því er varðar dráttarvexti við stöðu skuldarinnar samkvæmt þessum kvittunum eftir að innborgun hefur hverju sinni verið dregin frá henni. Til þess verður hins vegar að líta að í öllum þessum kvittunum er höfuðstóll skuldarinnar tilgreindur óskertur, dráttarvextir eru reiknaðir af honum til dagsetningar hverrar kvittunar og áfallinn kostnaður sundurliðaður, en í síðustu kvittununum tveimur er fyrri innborgun dregin frá samtölunni. Samkvæmt þessum tveimur kvittunum hefur innborgunum stefnda ekki verið ráðstafað til greiðslu kostnaðar og dráttarvaxta og til að lækka höfuðstól skuldarinnar, svo sem áfrýjandi telur rétt að gera samkvæmt áðurgreindum málatilbúnaði hans fyrir Hæstarétti, heldur hafa verið reiknaðir áfram dráttarvextir af óskertum höfuðstól skuldarinnar og fjárhæð áfallins kostnaðar. Þá er þess að gæta að eins og áfrýjandi hefur nú gert kröfu sína úr garði gerir hann ekki lengur ráð fyrir að innborganir á kröfu hans komi til frádráttar skuld stefnda í öðru tilliti en við útreikning dráttarvaxta. Að öllu þessu athuguðu eru slíkir annmarkar á málatilbúnaði áfrýjanda að óhjákvæmilegt er að vísa málinu sjálfkrafa frá Hæstarétti.
Málskostnaður dæmist ekki.
Dómsorð:
Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.
Málskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur 30. október 2001.
Mál þetta sem dómtekið var 26. júní sl. er höfðað fyrir dómþinginu af Húsanesi ehf., kt. 510691-1059, Iðavöllum 13a, Keflavík, með stefnu birti hinn 18. júní sl. á hendur Hljómalind ehf., kt. 711293-2729, Laugavegi 21, Reykjavík, fyrirsvarsmaður Sigríður Kristinsdóttir, kt. 260846-2729, Unufelli 3, Reykjavík.
Dómkröfur: Þess er krafist að stefndi greiði stefnanda skuld að fjárhæð kr. 5.978.022,00, ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 25/1987 af kr. 5.978.022,00 frá 15/09/1999 til greiðsludags, allt að frádregnum innborgunum að upphæð kr. 4.889.720,00.
Þá er krafist málskostnaðar að mati dómsins eða e.a. skv. framlögðum málskostnaðarreikningi, en nýr málskostnaðarreikningur verður lagður fram við aðalflutning málsins ef til kemur. Auk þess er krafist virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.
Málsatvik og málsástæður: Stefnandi kveður kröfu sína vera byggða á kaupsamningi dags. 4. júní 1999 um húseignina nr. 21 við Laugaveg í Reykjavík. Stefndi hafi keypt eignina og skuldbundið sig til þess að greiða kaupverð hennar, kr. 21.500.000,00 þannig:
|
Með yfirtöku áhvílandi lán |
kr. 7.209.313,00 |
|
Við undirritun kaupsamnings |
kr. 6.500.000,00 |
|
Hinn 15. júlí 1999 |
kr. 2.000.000,00 |
|
Hinn 15. september 1999 |
kr. 5.790.687,00 |
Eignin hafi verið afhent stefnda hinn 1. júní 1999.
Vanskil hafi orðið á lokagreiðslu kaupverðs og hafi stefnandi falið lögmanni hana til innheimtu.
Stefnufjárhæðin sundurliðist þannig:
|
Lokagreiðsla kaupverðs |
kr. 5.790.687,00 |
|
Hlutdeild stefnda í fasteignagjöldum (tímabilið 1/6 99 - 31/12 99) |
kr. 187.231,00 |
|
Hlutdeild stefnda í brunatr.iðgj. (tímabilið 1/6 99 - 31/12 99) |
kr. 104,00 |
|
Samtals |
kr. 5.978.022,00 |
Vaxta sé krafist frá 15. september 1999 sem hafi verið umsaminn gjalddagi lokagreiðslu og fyrirhugaður afsals- og uppgjörsdagur, ef ekki hefðu komið til vanefndir stefnda.
Í stefnu málsins segir síðan svo: ,,Inn á skuldina hafi verið greiddar innborganir, kr. 2.489.720 hinn 5. janúar 2000, kr. 1.500.000,00 hinn 18. apríl 2000 og kr. 900.000,00 hinn 2. júní 2000, sem dragist frá kröfunni miðað við stöðu hennar á innborgunardögum.
Inn á skuldina hafi verið greiddar þessar innborganir: 05/01/2000 kr. 2.489.720,00; 18/04/2000 kr. 1.500.000,00; 02/06/2000 kr. 900.000,00; og verði tekið tillit til þeirra við uppgjör kröfunnar. Eftirstöðvar skuldarinnar hafi ekki fengist greiddar þrátt fyrir innheimtutilraunir og sé því nauðsynlegt að höfða mál til greiðslu hennar.”
Lagarök: Vísað er til meginreglu kröfuréttarins um efndir fjárskuldbindinga, en regla þessi fær m.a. lagastoð í 5., 6. og 28. gr. laga 39/1922. Um gjalddaga kröfunnar er einkum vísað til meginreglu 12. gr. sömu laga. Kröfur um dráttarvexti, þmt. vaxtavexti, styður stefnandi við reglur III. kafla vaxtalaga nr. 25/1987, með síðari breytingum. Krafan um málskostnað styðst við l. mgr. 130. gr. laga 91/1991 um meðferð einkamála. Krafa um virðisaukaskatt af málflutningsþóknun er reist á lögum númer 50/1988. Stefnandi er ekki virðisaukaskattskyldur og ber honum því nauðsyn til að fá dóm fyrir skatti þessum úr hendi stefndu. Varðandi varnarþing vísast til 33. gr. laga númer 91/1991.
Af hálfu stefnda hefur hvorki verið sótt þing né látið sækja þing og er því þó löglega stefnt. Verður þá eftir 96. gr. laga nr. 91/1991 að dæma málið eftir framlögðum skjölum og skilríkjum að því leyti sem þau eru í samræmi við dómkröfur stefnanda.
Stefnandi krefst í máli þessu greiðslu á skuld að fjárhæð kr. 5.978.022 ásamt dráttarvöxtum eins og fram kemur í dómkröfum, allt að frádregnum innborgunum að upphæð kr. 4.889.720. Ekki er skýrt nánar frá því í dómkröfum hvernig innborganirnar skuli dragast frá skuldinni. Þykir því rétt að þær dragist frá skuldinni á þann veg sem skuldara er hagkvæmast, þ.e. frá höfuðstól á innborgunardögum. Höfuðstóll kröfu stefnanda á hendur stefnda lækkar því sem þessu nemur og dæmist vera kr. 1.088.302 með dráttarvöxtum eins og nánar greinir í dómsorði.
Þá krefst stefnandi greiðslu á virðisaukaskatti af málflutningsþóknun samkvæmt lögum nr. 50/1988. Ekki verður séð að Húsanes ehf. sé undanþegið virðisaukaskatti samkvæmt lögum nr. 50/1988. Því verður ekki fallist á kröfu stefnanda um greiðslu á virðisaukaskatti.
Málskostnaður ákveðst vera kr. 123.000.
Dóminn kvað upp Skúli J. Pálmason héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð:
Stefnda, Hljómalind ehf., greiði stefnanda, Húsanesi ehf., kr. 1.088.302 auk dráttarvaxta samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 25/1987 með síðari breytingum af kr. 5.978.022 frá 15. september 1999 til 5. janúar 2000, af kr. 3.488.302 frá 5. janúar 2000 til 18. apríl 2000, þá af kr. 1.988.302 frá 18. apríl 2000 til 2. júní 2000, af kr. 1.088.302 frá 2. júní 2000 til 1. júlí 2001, en dráttarvaxta af kr. 1.088.302 frá 1. júlí 2001 til greiðsludags, samkvæmt lögum nr. 38/2001.
Stefnda greiði stefnanda kr. 123.000 í málskostnað.