Hæstiréttur íslands
Mál nr. 374/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Föstudaginn 6. október 2000. |
|
Nr. 374/2000. |
Sýslumaðurinn í Kópavogi (Tryggvi Þórhallsson fulltrúi) gegn X (Erlendur Gíslason hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Talið var að sterkur grunur væri kominn fram um að X hefði framið manndráp og þótti verknaður sá, sem X var grunaður um, vera þess eðlis að gæsluvarðhald væri nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. október 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 5. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 2. október 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 13. nóvember nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 2. október 2000.
Mál þetta var tekið til úrskurðar í dag á grundvelli kröfu sýslumannsins í Kópavogi um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir X, [...].
Þess er krafist að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 13. nóvember nk. kl. 16:00.
Í greinargerð fyrir ofangreindri kröfu vísar sýslumaður m.a. til þess að kærði hafi játað að hafa átt sök á vofveiflegu láti stúlkunnar Á.
Við fyrirtöku málsins í dag var af hálfu kærða andmælt kröfu um framlengingu gæsluvarðhalds á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meinta háttsemi vísað til ákvæða 215. gr. laga nr. 19/1940. Til vara var þess krafist að gæsluvarðhaldinu yrði markaður styttri tími en krafist er.
Með úrskurði dómsins þann 9. júní sl. var kærði úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins 3. júlí á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Með dómi Hæstaréttar frá 15. júní sl. var úrskurðurinn staðfestur.
Með úrskurði dómsins þann 3 júlí sl. og aftur þann 2. ágúst var kærða gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, fyrst til 2. ágúst og síðan til dagsins í dag kl. 16.00
Með dómi Hæstaréttar frá 10. ágúst sl. var síðari úrskurðurinn staðfestur.
Eins og málið liggur nú fyrir að virtum rannsóknargögnum sem fyrir lágu í dóminum í dag þykir vera fyrir hendi sterkur grunur um að kærði hafi með háttsemi sinni framið afbrot, sem varðað getur við 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en brot gegn því ákvæði getur varðað allt að ævilöngu fangelsi. Sá verknaður, sem kærði er grunaður um, þykir þess eðlis að ætla má að það sé nauðsylegt í þágu almannahagsmuna að gæsluvarðhaldi sé beitt. Eru því skilyrði til þess að kærði sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Er því krafa sýslumannsins í Kópavogi tekin til greina og kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 13. nóvember nk. kl. 16:00, en þó eigi lengur en þar til dómur gengur í máli hans sbr. 106. gr. laga um meðferð opinberra mála.
Úrskurð þennan kveður upp Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kærði, X, sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 13. nóvember nk. kl. 16:00, en þó aldrei lengur en þar til dómur gengur í máli hans.