Hæstiréttur íslands
Mál nr. 10/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Nr. 10/2010. |
Mánudaginn 11. janúar 2010. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Einar Hugi Bjarnason hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95 gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. janúar 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 8. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. janúar 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 3. febrúar 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Hún krefst þess til þrautavara að hún verði látin sæta farbanni. Þá krefst hún þess að hún verði ekki látin sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvist stendur.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. janúar 2010.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til miðvikudagsins 3. febrúar 2010, kl. 16:00. Þess er krafist að X verði látin vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi nú haft til rannsóknar stórfellt fíkniefnabrot er varði ætlaðan innflutning á fíkniefnum hingað til lands.
Þann 11. nóvember sl. hafi lögreglunni borist upplýsingar frá lögreglunni í Kaunas í Litháen þess efnis að tveir Litháískir karlmenn ætluðu að flytja inn til landsins rúmlega 10 kg af amfetamíni í bifreið og að þeir myndu ferðast hingað til lands með ferjunni Norrænu. Áætlað hafi verið að þeir kæmu með ferjunni til Seyðisfjarðar þann 12. nóvember sl. Síðar hafi komið í ljós að Litháarnir hafi misst af ferjunni er hún fór frá Færeyjum og hafi þeir orðið strandaglópar þar. Lögreglan í Færeyjum hafi handtekið mennina þann 13. nóvember og leitað í bifreið þeirra. Við leitina hafi fundist rúmlega 4.200 stk. af MDMA töflum og rúmlega 3 kg af amfetamíni og/eða metamfetamíni. Við leitina hafi einnig fundist miði með nafninu Y og íslenskt símanúmer. Við rannsókn málsins hafi komið í ljós að aðili að nafni Y sé skráður fyrir símanúmerinu. Litháarnir tveir sæti nú gæsluvarðhaldi í Færeyjum, en þeir hafi lítið viljað tjá sig um málið við yfirheyrslur hjá lögreglu.
Þann 18. nóvember sl. hafi kona að nafni X haft samband við skrifstofu ferjunnar Norrænu og spurst fyrir um Litháana sem sitji í varðhaldi í Færeyjum. X hafi viljað vita hvenær von væri á þeim til landsins. Hún hafi hringt úr ákveðnu símanúmeri en óskað eftir því að haft yrði samband við sig í annað ákveðið símanúmer. Rannsókn lögreglu hafi leitt í ljós að umrædd kona sé kærða X og sé aðili að nafni Z notandi símanúmersins sem hún hafi beðið um að hringt yrði í. Rannsókn lögreglu hafi einnig leitt í ljós að breytingar hafi verið gerðar á farmiðum Litháana sem sæti nú gæsluvarðhaldi í Færeyjum, og hafi X borgað fyrir þær breytingar.
Málið sé talið mjög umfangsmikið en lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi nú unnið að rannsókn málsins hér á landi í samvinnu við lögregluyfirvöld í Færeyjum, í Litháen og með aðkomu Europol. Þá hafi lögregluyfirvöld í Færeyjum einnig verið í samvinnu við yfirvöld í Danmörku en Litháarnir tveir sem sæti gæsluvarðhaldi í Færeyjum hafi átt viðkomu í Danmörku á leið sinni með fíkniefnin.
Lögreglan hafi á grundvelli úrskurðar héraðsdóms hlustað á símtöl í farsíma ofangreindra aðila. Rannsókn lögreglu beinist nú að því að finna ætlaða skipuleggjendur innflutningsins og hugsanlega móttakendur fíkniefnanna hér á landi, en ætlunin hafi verið að fíkniefnin yrðu flutt hingað til lands. Z, X og Y hafi öll verið handtekin í gær, þann 5. janúar.
Það sé ætlun lögreglu að X eigi þátt í ofangreindri tilraun til innflutnings á fíkniefnum hingað til lands og að hún hafi staðið að skipulagningu innflutningsins ásamt öðrum erlendum aðilum. Kærða hafi verið yfirheyrð í dag en um afstöðu hennar til sakarefnisins og nánar um framburð hennar sé vísað til upptöku af framburði kærðu sem fylgi með gögnum málsins. Rannsókn málsins sé á frumstigi en málið sé talið mjög umfangsmikið. Framundan séu frekari yfirheyrslur af kærðu og fleiri einstaklingum sem kunni að tengjast málinu. Um sé að ræða mjög mikið magn fíkniefna sem víst þyki að hafi átt að fara í sölu og dreifingu hér á landi. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins. Þá sé frekari gagnaöflun og gagnaúrvinnsla framundan sem skýrt geti frekar aðdraganda brots kærðu. Rannsaka þurfi nánar fjármál kærðu og upplýsa nánar um samskipti hennar við mögulega samverkamenn sem kunni að tengjast málinu. Nauðsynlegt sé að kærða sæti gæsluvarðhaldi en ljóst sé að gangi kærða laus geti hún sett sig í samband við meinta vitorðsmenn sem gangi lausir eða þeir sett sig í samband við hana. Þá geti kærða komið undan gögnum sem sönnunargildi hafi og enn hafi ekki verið lagt hald á. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærða gangi laus. Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 20. gr. laganna ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi ef sök sannist.
Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til b liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga hvað varðar kröfu um einangrun.
Með vísan til þess sem fram kemur í greinargerð lögreglustjóra og þess sem rannsóknargögn bera með sér er fallist á að kærða sé undir rökstuddum grun um að hafa framið verknað sem varðað getur fangelsisrefsingu. Rannsókn málsins er á frumstigi og er fallist á að kærða geti torveldað rannsókn málsins með því að koma undan sönnunargögnum eða hafa áhrif á vitni eða samseka, gangi hún laus. Þegar litið er til framanritaðs telur dómurinn að uppfyllt séu skilyrði a liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008, um meðferð sakamála, og er því fallist á kröfu um gæsluvarðhald eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði og með vísan til umfangs málsins þykja ekki efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma. Þá er með sömu rökum fallist á að kærða verði látin vera í einrúmi á meðan gæsluvarðhaldinu stendur skv. b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.
Greta Baldursdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
ÚRSKURÐARORÐ
Kærða, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 3. febrúar 2010, kl. 16:00.
Kærða skal látin vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.