Hæstiréttur íslands
Mál nr. 786/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Kæra
- Frávísun frá Hæstarétti
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 23. nóvember 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. nóvember 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 30. nóvember 2016 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími og að honum verði ekki gert að sæta einangrun.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Við uppkvaðningu hins kærða úrskurðar á dómþingi 23. nóvember 2016 var bókað eftir varnaraðila, að viðstöddum verjanda hans, að hann kærði úrskurðinn til Hæstaréttar. Ekki var bókað í þingbók í hvaða skyni kært væri eins og áskilið er í 2. mgr. 193. gr. laga nr. 88/2008. Úr þessum annmarka var ekki bætt með skriflegri kæru til héraðsdóms. Breytir þar engu þótt varnaraðili hafi skilað greinargerð til Hæstaréttar sem hefur að geyma röksemdir hans fyrir kröfunni. Samkvæmt þessu verður að vísa málinu frá Hæstarétti.
Dómsorð:
Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. nóvember 2016.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess fyrir dóminum í dag, að X fæddur [...], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 30. nóvember kl. 16.00. Þá er þess krafist að kærði sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Krafan er reist á a-c lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Meint brot kærða er talið varða við 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum kemur fram að til rannsóknar sé hjá lögreglunni á Suðurnesjum rán sem framið var í [...], Reykjanesbæ, 15. nóvember 2016 um kl. 18:47. Maður hafi komið inn í [...], ógnað starfsfólki með hnífi, krafðist þess að fá [...] og peninga og yfirgefið verslunina þegar orðið hafði verið við kröfum hans. Brotið sé talið varða við 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Lögreglan hafi þegar hafið eftirgrennslan eftir aðilanum samkvæmt lýsingu frá starfsfólki [...]. Við næsta hús eða við [...] hafi á bílastæði þar fundist svartur trefill sem talin er hafa getað dottið af kærða. Lögreglan hafi leitað til annara lögregluembætta og óskað eftir vitnum af atburðinum í fjölmiðlum. Lögregluembættið á [...] hafi sett sig í samband þar sem þeir höfðu haft afskipti af kærða þann 9. nóvember sl. Þar hafi kærði framið vopnað rán í [...] og verið handtekin og úrskurðaður í gæsluvarðhald í kjölfarið sbr. úrskurður nr. R-[...]/2016, til mánudagsins 14. nóvember og í farbann til 12. desember 2016. Að auki hafi Lögreglustjórinn á [...] haft samband þar sem þeir hafi kærða grunaðan um samskonar rán í tveimur tilvikum. Kærði sem sé [...] ríkisborgari tali ekki íslensku. En í öllum þessum málum, þ.e. hjá lögreglunni á [...], og [...] sé það sameiginlegt að vitni lýsa því að kærði talaði [...].
Þá segir að í ljós hafi kom að í málinu á [...] að að kærði hafi verið með íslenskri stúlku sem hafi sagst vera kærasta hans. A, kt. [...], kvaðst hafa kynnst kærða á netinu og í kjölfarið hafi hann komið hingað til lands og hún ætlað að sýna honum landið. A hafi borið kennsl á kærða á myndbandsupptöku sem lögreglan [...] bar undir hana. Lögregla hafi farið að heimili A í [...] þar sem kærði hafi fundist. Hafi kærði verið handtekinn í kjölfar, grunaður um rán, og færður á lögreglustöðina við Hringbraut þar sem hann hafi verið vistaður.
Einnig segir í greinargerðinni að kærði hafi verið yfirheyrður af lögreglu tvisvar sinnum og neiti hann alfarið að tjá sig um það sem hann sé sakaður um. Það sem kærði hafi tjáð sig um sé að mati lögreglu afar ótrúverðugt og í hrópandi ósamræmi við það sem önnur vitni segi. Að auki hafi kærði haft í hótunum við lögreglumenn sem tóku af honum framburðarskýrslu. A hafi einnig verið yfirheyrð vegna málsins tvisvar sinnum. Þegar föt sem fundust ekki langt frá ránstaðnum hafi verið borin undir hana, kvað hún þau vera föt kærða.
Vísast nánar til gagna málsins. Fyrir liggi nokkuð umfangsmiklar rannsóknaraðgerðir lögreglu til að upplýsa nánar um framangreind atriði. Hafi þegar verið haft samband við löggæsluyfirvöld annar staðar á landinu vegna málsins. Þá vinni lögregla nú að því að rannsaka þá muni sem kærði á, þ.á.m. snjallsíma. Þyki það sem fram hefur komið við rannsóknina eindregið benda til þess að kærði hafi verið að verki. Fram hafi komið upplýsingar um að kærði hafi verið eða sé haldinn fíkniefnafíkn og reynslan sýni að veruleg hætta sé á að fólk í þeirri stöðu haldi áfram brotum á meðan málunum sé ekki lokið. Verið sé að rannsaka vopnað rán í [...] sem hafði í för með sér umtalsvert fjártjón lögaðila hér á landi. Samkvæmt því sem að framan hefur verið rakið og með vísan til gagna málsins telur lögreglustjóri fram kominn rökstuddan grun um að kærði hafi með háttsemi sinni gerst sekur um brot á 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem við liggi allt að 16 ára fangelsi og telur lögreglustjóri að brot kærða muni ekki hafa í för með sér sektir eða skilorðsbundna refsingu, verði hann fundinn sekur af slíku broti. Af framansögðu telur lögreglustjóri nauðsynlegt að kærði sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til rannsóknar hjá lögreglu. Megi einsýnt ætla að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á samseka eða vitni. Auk þessa megi telja að mikil hætta sé á að kærði muni reyna að komast úr landi eða leynast og koma sér þannig undan málsókn eða fullnustu refsingar, gangi hann laus. Að mati lögreglustjóra er ekki völ á vægari úrræðum til að tryggja þá hagsmuni sem í húfi eru.
Með vísan til alls framangreinds, gagna málsins, a- b- og c- liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 telur lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuna og hættu á áframhaldandi brotum kærða standa til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 30. nóvember kl. 16:00. Þess er einnig krafist að kærða verði gert að sæta einangrun, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, á meðan gæsluvarðhaldi stendur með vísan til framangreindra rannsóknarhagsmuna. Eins og að framan er rakið er fyrirliggjandi frekari öflun upplýsinga í tengslum við framangreind tilvik svo. Er eðli slíkra upplýsinga þess eðlis að auðvelt er að spilla þeim. Af þeim sökum telur lögreglustjóri nauðsynlegt að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan gæsluvarðhaldi stendur.
Kærði mótmælir kröfunni en til vara krefst hann þess að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími. Þá mótmælir hann kröfunni um einangrun. Telur kærði að rannsókn málsins sé nánast lokið og muni það engu breyta fyrir rannsóknina hvort kærði sé laus eða ekki.
Rökstuddur grunur er komin fram um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við og að ætla megi að enn sé hætta á að ákærði muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna eða hafi áhrif á rannsókn málsins. Þá er kærði erlendur ríkisborgari, ekki búsettur hér á landi og er því fallist á með lögreglustjóra að skilyrði a-c liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/ 2008 séu uppfyllt. Er krafa um gæsluvarðahald því tekin til greina eins og nánar greinir í úrskurðarorði en ekki þykja efni til að marka varðhaldinu skemmri tíma en krafist er. Þá skal kærði sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú r s k u r ð a r o r ð:
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 30. nóvember nk. kl. 16:00.
Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.