Hæstiréttur íslands

Mál nr. 234/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


       

Föstudaginn 15. maí 2009.

Nr. 234/2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Arnþrúður Þórarinsdóttir, aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

(Jón Egilsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

  

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut til Hæstaréttar með kærum 11. og 12. maí 2009, sem bárust Hæstarétti ásamt kærumálsgögnum 12. sama mánaðar, tveimur úrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur 11. maí 2009, þar sem varnaraðila var annars vegar gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 29. maí 2009 klukkan 16 og hins vegar var vísað frá dómi kröfu hans um breytingu á tilhögun gæsluvarðhalds. Kæruheimild í fyrra tilvikinu er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála en hinu síðara í t. lið sömu lagagreinar. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður um gæsluvarðhald verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími og hann verði ekki látinn sæta frekari einangrun. Í síðara málinu gerir hann kröfu um að lagt verði fyrir héraðsdóm að taka kröfu hans um tilhögun gæsluvarðhaldsvistar til efnislegrar meðferðar.

Sóknaraðili kærði úrskurð héraðsdóms um framlengingu á gæsluvarðhaldsvist varnaraðila fyrir sitt leyti með kæru 12. maí 2009. Sóknaraðili krefst þess að úrskurði héraðsdóms verði breytt þannig að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 8. júní klukkan 16.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar um gæsluvarðhaldsvist varnaraðila verður hann staðfestur.

Úrskurður héraðsdóms um að vísa frá dómi kröfu varnaraðila um tilhögun gæsluvarðhalds verður staðfestur með vísan til forsendna.

 

Dómsorð:

Hinir kærðu úrskurðir eru staðfestir.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. maí 2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til mánudagsins 8. júní 2009, kl. 16:00.  Þess er krafist að X verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar ætlað stórfellt fíkniefnabrot. Þann 18. apríl 2009 hafi lögreglu borist upplýsingar um að seglskútu er sigldi eins og í átt til lands.  Hafi sama dag verið fylgst með ferðum þriggja manna á tveimur bílum sem hafi verið staddir á Djúpavogi, en þeir hafi verið með slöngubát með utanborðsvél með sér.  Síðar hafi komið í ljós að tveir af mönnunum og báturinn voru horfnir en einn mannanna verið á ferð um Djúpavog. Um kvöldið hafi sést til ferða slöngubátsins, þar sem honum hafi verið siglt inn í höfn í Gleðivík, vestan við aðalhöfnina á Djúpavogi.  Sá mannanna sem hafi verið á ferð um Djúpavog hafi komið akandi að höfninni þar sem báturinn hafi komið að landi. Hafi töskur verið teknar út úr bátnum og þeim komið fyrir í bifreiðinni. Bifreiðinni hafi í framhaldinu verið ekið á brott. Við Höfn hafi bifreiðin verið stöðvuð og ökumaður bifreiðarinnar verið A. Í bifreiðinni hafi verið töskur sem innihéldu verulega mikið magn af ætluðum fíkniefnum, um 109 kg af efnum sem hafi gefið svörun hjá tæknideild lögreglustjórans á höfuðborgar­svæðinu sem fíkniefni; amfetamín, MDMA, hass og marihuana.

Slöngubátnum hafi verið siglt úr höfninni í Gleðivík og inn í höfnina á Djúpavogi.  Fylgst hafi verið með tveimur mönnum sem hafi verið um borð í bátnum og  þeir síðar um kvöldið verið handteknir á bifreiðinni Y.  Ökumaður hafi verið B og farþegi kærði. 

Kærði hafi borið um hjá lögreglu að meðkærði B hafi beðið hann að koma með sér í köfunar- og veiðiferð út á land. Hafi hann beðið kærða að útvega jeppa til ferðarinnar. Þegar til kom hafi þeir ekið á Djúpavog og sjósett bát er hafi verið með í för daginn eftir.  Hafi þeir síðan siglt út frá Djúpavogi að skútu, þaðan sem þeir hafi tekið við nokkrum töskum. Hafi B sagt að töskurnar innihéldu stera.     

Rannsókn lögreglu miði að því að finna út hver/hverjir séu eigendur hinna ætluðu fíkniefna sem haldlögð hafi verið. Rannsaka þurfi þætti er snúi að aðdraganda brotsins, skipulagningu og fjármögnun.  Gagnaöflun sé í fullum gangi og mikil vinna við úrvinnslu þeirra gagna sem þegar liggi fyrir. Rökstuddur grunur sé um stórfellt fíkniefnabrot kærða. Nauðsynlegt sé  að hann sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins, svo honum sé fyrirmunað að setja sig í samband við ætlaða vitorðsmenn og/eða vitni og/eða að hann geti komið undan gögnum sem sönnunargildi hafi í málinu og hafi ekki verið haldlögð. Þyki þannig nauðsynlegt að vernda rannsóknarhagsmuni málsins með því að kærði sæti gæsluvarðhaldi og að hann verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Til rannsóknar er ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Er fallist á með lögreglu að brýnir hagsmunir séu fyrir því að kærða verði gert að sæta gæslu­varð­haldi á meðan mál hans er til rannsóknar, enda geti hann torveldað rannsókn málsins með því að koma undan sönnunargögnum eða hafa áhrif á vitni eða samseka, gangi hann laus. Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna og a- liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, er krafa lögreglustjórans á höfuðborgar­svæðinu tekin til greina, þó þannig að m.a. með vísan til aðkomu kærða að hinu meinta broti þykir mega stytta gæsluvarðhaldstímann frá því sem krafist er eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Þá er með sömu rökum fallist á að kærði sæti einangrun skv. b- lið 1. mgr. 99. gr. laganna.

Anna M. Karlsdóttir settur héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 29. maí 2009, kl. 16:00. 

Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.