Hæstiréttur íslands

Mál nr. 15/1999


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Föstudaginn 8

                                                    Miðvikudaginn 13. janúar 1999.

Nr. 15/1999.                                         Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum

                                                    (Karl Gauti Hjaltason sýslumaður)

                                                    gegn

                                                    Y

                                                    (Jón Hauksson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Y var undir rökstuddum grun um aðild að umfangsmiklu fíkniefnamáli. Var Y gert að sæta gæsluvarðhaldi í eina viku á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. janúar 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 11. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 9. janúar 1999, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til 16. janúar nk. kl. 18. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hún kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður dæmist ekki.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 9. janúar 1999.

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum hefur gert þá kröfu, að E, kt. ..., verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til laugardagsins 16. janúar 1999, kl. 18.00.

Af hálfu kærðu hefur framkominni kröfu verið mótmælt.

Lögreglan í Vestmannaeyjum kveðst hafa í nokkurn tíma haft grun um að maður, sem er skipverji á togaranum Breka VE-61, væri viðriðinn fíkniefnabrot. Skömmu eftir komu skipsins til hafnar í Vestmannaeyjum síðastliðna nótt handtók lögregla kærðu, framangreindan skipverja og sambýliskonu hans þar sem þau voru í bifreið kærðu við skipshlið. Í bifreiðinni fundust fimm kíló af efni sem lögreglan telur fullvíst að sé hass. Þá var skipverjinn með 33 grömm af sama efni á sér innan klæða og lítilræði af efni sem lögreglan telur vera marihuana. Í framhaldi af því gerði lögregla húsleit á heimili kærðu þar sem fundust tæki og tól til fíkniefnaneyslu.

Samkvæmt framlögðum gögnum er rannsókn máls þessa skammt á veg komin, en um er að ræða innflutning á miklu magni af fíkniefnum. Lögregla kveður rannsókn máls þessa verða umfangsmikla og nauðsynlegt sé að yfirheyra frekar kærðu og aðra, sem að öllum líkindum tengjast hinu meinta broti kærðu. Sýnist því ekki vera komist hjá að varna því, að kærða nái hugsanlega að spilla sakargögnum. Samkvæmt framansögðu og með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála, ber að fallast á kröfu sýslumannsins í Vestmannaeyjum um að kærða skuli sæta gæsluvarðhaldi, allt til klukkan 18.00, laugardaginn 16. janúar 1999.

Ólafur Börkur Þorvaldsson, dómstjóri, kveður upp þennan úrskurð.

Úrskurðarorð:

Kærða, E, kt. ..., til heimilis að ..., sæti gæsluvarðhaldi allt til klukkan 18.00, laugardaginn 16. janúar 1999.