Hæstiréttur íslands
Mál nr. 408/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 13. nóvember 2000. |
|
Nr. 408/2000. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Sigurður Gísli Gíslason fulltrúi) gegn X(Sigurmar K. Albertsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. nóvember 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 10. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. nóvember 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 28. nóvember nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. nóvember 2000.
Lögreglan hefur krafist þess að kærða, X, verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 28. nóvember 2000 nk. kl. 16.00 á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
[ . . . ]
Fyrir liggur að verið er að rannsaka nokkur alvarleg brot gegn fíkniefnalöggjöfinni sem grunur leikur á að kærði eigi aðild að og sem getur varðað hann fangelsisrefsingu samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og/eða 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ef sök sannast. Rannsóknargögn gefa vísbendingu um að kærði tengist fíkniefnainnflutningi þeim sem er til rannsóknar þannig að telja verður að rökstuddur grunur sé fyrir hendi um aðild hans að þessum málum, en hann neitar allri aðild að málunum. Að því er varðar kærða er rannsókn málsins á frumstigi og ljóst að frekari rannsókn mun fylgja í kjölfarið. Vegna alvarleika og umfangs rannsóknarinnar þykja brýnir rannsóknarhagsmunir vera fyrir því að tryggt verði að kærði hafi ekki samband við aðra sem tengjast umræddum málum á þessu stigi. Fallast ber á að kærði geti torveldað rannsókn þessara brota fari hann frjáls ferða sinna. Með vísan til a liðar 1. mgr 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála ber að taka til greina kröfu lögreglustjórans í Reykjavík eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
ÚRSKURÐARORÐ
Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 28. nóvember 2000 kl. 16:00.