Hæstiréttur íslands

Mál nr. 696/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Fimmtudaginn 16. desember 2010.

Nr. 696/2010.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Júlíus Magnússon fulltrúi)

gegn

X

(Ásbjörn Jónsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. og b. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar og b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. desember 2010 sem barst réttinum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 14. desember 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 21. desember 2010 klukkan 16 og einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvist stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                           

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 14. desember 2010.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum krafðist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til a og b liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að X, fæddum [...], lettneskur ríkisborgari, verði með úrskurði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 21. desember 2010 kl. 16:00. Þess er ennfremur krafist að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stefndur.

Kærði krefst þess aðallega að kröfunni verði hafnað, til vara að gæsluvarðhaldstíma verði markaður skemmri tími en til þrautavara að hann verði einungis úrskurðaður í farbann.

Krafan er reist á því að kærði sé undir rökstuddum grun um brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni.

Í kröfu lögreglustjórans og öðrum gögnum málsins kemur fram að kærði hafi komið til landsins laugardaginn 4. desember 2010 með flugi frá Kaupmannahöfn. Í farangri hans hafi fundist þrjár pakkningar með dufti sem gefið hafi svörun um fíkniefni og því hafi efnin verið haldlögð af lögreglu. Í ljós hafi komið að um var að ræða 485,52 g af ávana- og fíkniefninu mefedron. Samkvæmt matsgerð A, prófessors við Háskóla Íslands, sé efnið með umtalsverðum styrkleika. Sé styrkur mefedronbasa 69% sem samsvari 83% af mefedronklóríði. Samkvæmt reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni sé efnið óheimilt á íslensku yfirráðasvæði, sbr. reglugerð nr. 789/2010. Við tolleftirlit hafi kærði skýrt svo frá að efnið væri baðsalt og hygðist hann nota það til gjafa. Hafi honum verði sleppt í framhaldi af því. Kærði hafi síðan verið handtekinn þegar framangreind rannsókn Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði lá fyrir.

Í greinargerð lögreglu kemur ennfremur fram að Y, búsettur að [...], Reykjavík, hafið komið út á flugvöll til að taka á móti kærða þann 4. desember sl. Y hafi einnig komið á lögreglustöðina 13. desember er kærði hafi verið handtekinn. Í skýrslu kærða hjá lögreglu komi fram að Y hafi keypt farseðil kærða til Íslands og að Y ætti fíkniefnin. Skýrslum þessara tveggja manna hjá lögreglu beri hins vegar engan veginn saman. Í dag var Y úrskurðaður í farbann.

Lögreglustjóri styður kröfu sína þeim rökum að málið sé á frumstigi og eftir sé að yfirheyra hugsanlega vitorðsmenn. Kærði sé útlendingur sem hafi engin tengsl við landið svo vitað sé. Megi því búast við að hann reyni að komast úr landi eða leynast verði honum ekki gert að sæta gæsluvarðhaldi. Þá bendi allt til þess að brot kærða sé stórfellt og varði við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þegar litið er til gagna málsins er fallist á það með lögreglu að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga sem varðað getur fangelsisrefsingu allt að 12 árum. Rannsókn málsins er á frumstigi og haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins, m.a. með því að hafa áhrif á framburð vitorðsmanna eða vitna. Skilyrði a liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála eru því fyrir hendi í málinu. Kærði er erlendur ríkisborgari og hefur að því er virðist engin tengsl við Ísland. Eru því einnig uppfyllt skilyrði b liðar 1. mgr. 95. gr. laganna. Samkvæmt framansögðu verður fallist á kröfu lögreglustjóra og kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 21. desember 2010 kl. 16:00.

Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

ÚRSKURÐARORÐ

Kærða, X, er gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 21. desember  2010 kl. 16.00.

Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur.