Hæstiréttur íslands
Mál nr. 639/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Mánudaginn 9. nóvember 2009. |
|
Nr. 639/2009. |
Ákæruvaldið(Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn X(Jón Egilsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 5. nóvember 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 5. nóvember 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt þar til dómur gengur í máli hans en þó ekki lengur en til föstudagsins 27. nóvember 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 5. nóvember 2009.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2009 um meðferð sakamála að X, kt. [...],[...], verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, þó ekki lengur en til fimmtudagsins 3. desember 2009 kl. 16:00.
Í kröfu ríkissaksóknara kemur m.a. fram að með ákæru, útgefinni 13. ágúst sl., hafi sakamál verið höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjaness á hendur ákærða. Þar sé honum gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot á árinu 2009 með því að hafa staðið að innflutningi á 6.149,8 g af amfetamíni frá Hollandi til Íslands, ætluðu til sölu og dreifingar í ágóðaskyni. Tollgæsla og lögregla hafi lagt hald á efnin þriðjudaginn 21. apríl sl. í vörugeymslu á Keflavíkurflugvelli. Í ákærunni sé ákærða gefið að sök að hafa lagt á ráðin um innflutninginn og verið í samráði við vitorðsmenn í Hollandi varðandi tilhögun sendingar efnanna til landsins. Málið hafi verið þingfest 28. ágúst sl. og ákærði þá neitað sök. Málið hafi verið tekið fyrir 10. september sl. og þá lögð fram greinargerð ákærða. Ákveðið hafi verið að aðalmeðferð skyldi fara fram 24. september 2009. Aðalmeðferð hafi verið frestað til 16. október nk. að ósk verjanda sem hafi óskað eftir að leiða þrjú erlend vitni fyrir dóminn. Auk þess hafi verið beðið gagna frá hollenskum yfirvöldum varðandi þann hluta rannsóknarinnar, sem farið hafi fram í Hollandi. Aðalmeðferð hafi síðan farið fram föstudaginn 30. október sl. og hafi málið verið dómtekið þann sama dag. Nú sé beðið dómsuppkvaðningar í málinu.
Meðal gagna í málinu séu símagögn, þar með talin hljóðrituð símtöl erlends karlmanns í Hollandi og íslensks karlmanns á Íslandi og hafi sá síðarnefndi notað íslenskt símanúmer. Í þessum símtölum sé m.a. rætt um skipulag á sendingu fíkniefnanna til landsins og telji ákæruvaldið að gögn málsins beri það með sér að rætt hafi verið um fyrrgreinda fíkniefnasendingu. Þá telji ákæruvaldið nægilega upplýst að ákærði hafi notað fyrrgreint símanúmer á Íslandi. Þá telji ríkissaksóknari önnur rannsóknargögn renna stoðum undir meinta aðild ákærða að hinu stórfellda fíkniefnalagabroti.
Ákæruvaldið kveðst telja að fyrir liggi sterkur grunur um að ákærði hafi átt veigamikinn þátt í að flytja til landsins mikið magn hættulegra ávana- og fíkniefna. Vegna alvarleika sakarefnisins sé nauðsynlegt vegna almannahagsmuna að ákærði sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans. Ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 22. maí sl., upphaflega á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, en frá 17. júlí á grundvelli 2. mgr. 95. gr. sömu laga, sbr. dóm Hæstaréttar frá 23. júlí 2009 og síðan samkvæmt úrskurðum héraðsdóms Reykjaness frá 13. ágúst, 10. september og 8. október 2009.
Að öllu framangreindu virtu, sem og gögnum málsins að öðru leyti, verður fallist á það með ríkissaksóknara að sterkur grunur sé um að ákærði hafi framið afbrot sem að lögum geti varðað allt að 12 ára fangelsi samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Verður talið að brotið sé þess eðlis að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tillit til almannahagsmuna. Skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 88/2008 er því fullnægt til að framlengja gæsluvarðhald ákærða þar til dómur gengur í máli hans. Með vísan til fyrrgreindra lagaákvæða verður gæsluvarðhaldi markaður fjögurra vikna tími frá dómtöku fyrrgreinds sakamáls á hendur ákærða og ákveðið eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
ÚRSKURÐARORÐ
Ákærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 27. nóvember 2009 kl. 16:00.