Hæstiréttur íslands

Mál nr. 235/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                                        

Fimmtudaginn 15. apríl 2010.

Nr. 235/2010.

Lögreglustjórinn á

höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Jóhann H. Hafstein hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. apríl 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. apríl 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 23. apríl 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími og að einangrun verði aflétt.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurður verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                           

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. apríl 2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 23. apríl nk. kl. 16.  Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að í gærkvöldi, um kl. 23:00, hafi lögreglan fundið og lagt hald á mikið magn hættulegra fíkniefna, sem flutt hafi verið til landsins með flugi frá Alicante á Spáni fyrr um daginn. Efnin, sem hafi verið kyrfilega falin í ferðatöskum, hafi reynst vera kókaín og við frumathugun tæknideildar lögreglu virðist vera um að ræða mjög sterk efni, sem hafi verið tæp 1.600 grömm. 

Kærði sé sterklega grunaður um aðild að fíkniefnainnflutningnum, enda hafi lögreglan fylgst með honum fara með meðkærða Y í gærkvöldi  að efnunum þar sem þau hafi verið geymd í bifreið við Ofanleiti. Þar hafi þeir báðir sést opna og eiga við töskurnar, sem efnin hafi verið í.

Kærði hafi fyrr í dag ekkert viljað kannast við málið og neitað að svara spurningum lögreglu.

Í nótt, um kl. 05.00, hafi lögregluyfirvöld á Keflavíkurflugvelli stöðvað ungt par við komu sína frá Alicante. Parið hafi verið með í fórum sínum samskonar töskur og meðkærði Z og efnunum verið komið fyrir í töskunum með sama hætti.  Lögreglan telji fullvíst að málin tengist.

Lögreglan, í samstarfi við Europol á Spáni, leiti nú Íslendings sem búsettur sé á Spáni.  Það sé ætlun lögreglu að sá aðili standi að ofangreindum fíkniefnainnflutningum til landsins, sbr. meðfylgjandi upplýsingaskýrsla lögreglu.

Þá leiti lögreglan sömuleiðis ungs Íslendings, sem nú sé staddur erlendis, en sá aðili sé talinn tengjast fíkniefnainnflutningunum, sbr. meðfylgjandi lögregluskýrsla, og eigi hann pantað flug til landsins nú í næstu viku.

Rannsókn málsins sé á frumstigi, en málið sé talið tengjast vel skipulögðum og umfangmiklum innflutningi á fíkniefnum hingað til lands.

Ljóst sé að taka þurfi frekari skýrslur af kærða, meðkærðu og hugsanlegum vitnum málsins og öðrum sem kunni að tengjast málinu. Þá sé nauðsynlegt í þágu rannsóknar að hafa upp á ofangreindum aðilum sem nú séu staddir erlendis. Málið sé mjög umfangsmikið og hafi lögreglan handtekið og yfirheyrt sjö aðila vegna þess.

Í ljósi þess að rannsókn málsins sé á viðkvæmu stigi sé afar brýnt að krafa lögreglustjóra verði tekin til greina, þannig að kærði fái ekki tækifæri til að torvelda rannsóknina, s.s. með því að koma undan munum, hafa áhrif á aðra samseka eða vitni. 

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um að aðild að innflutningi á miklu magni hættulegra fíkniefna. Rannsókn málsins er umfangsmikil og á frumstigi. Haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins með því að koma sönnunargögnum undan eða hafa áhrif á samseka og vitni. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfur lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 23. apríl 2010, kl. 16.00.

Kærða er gert að vera í einangrun meðan á gæslu stendur.