Hæstiréttur íslands
Mál nr. 394/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 14. júlí 2009. |
|
Nr. 394/2009. |
Ákæruvaldið(Sigríður J. Friðjónsdóttir vararíkissaksóknari) gegn X (Brynjólfur Eyvindsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, nú á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. júlí 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. júlí 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 7. ágúst 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. júlí 2009.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, að X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt þar til dómur fellur í máli hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 7. ágúst 2009 kl. 16.00.
Í greinargerð Ríkissaksóknara kemur fram að með ákæru ríkissaksóknara, útgefinni í dag, 10. júlí 2009, hafi X verið ákærður, ásamt tveimur öðrum mönnum, fyrir brennu, með því að hafa hellt bensíni úr bensínbrúsa á útidyrahurð íbúðahússins að [...], Reykjavík, kveikt í bensíninu og valdið með því eldsvoða sem hafði í för með sér almannahættu. Teljist brot ákærða varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 164. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Samkvæmt skýrslu dómkvadds matsmanns, dagsettri í gær, hafi íkveikjan leitt til almannahættu, bæði varðandi húseignina og íbúa hennar, en eldurinn hafi verið í anddyri hússins, einu fullgildu flóttaleiðinni frá íbúðinni.
Ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 6. júní sl., fyrst á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, sbr. úrskurð nr. R 250/2009, og frá 15. júní sl. á grundvelli 2. mgr. 95. gr. sömu laga, sbr. úrskurð nr. R-280/2009. Hinn síðarnefndi úrskurður hafi verið kærður til Hæstaréttar, sem staðfesti úrskurðinn, sbr. mál nr. 333/2009.
Ákæra hafi verið gefin út í málinu og sé því uppfyllt það skilyrði ákvæðis 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 að um sterkan grun sé að ræða. Að mati ákæruvaldsins krefjist almannahagsmunir þess að maður, sem sé undir sterkum grun um að hafa gerst sekur um jafn alvarlegt brot og brenna sé, og varði allt að 16 ára fangelsi, sæti gæsluvarðhaldi allt þar til máli hans sé lokið með dómi.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Eins og fram hefur komið var ákæra á hendur kærða gefin út í dag. Með vísan til þess sem að framan er rakið er fallist á með ríkissaksóknara að sterkur grunur leiki á að kærði hafi framið afbrot sem að lögum getur varðað allt að 16 ára fangelsi. Enn fremur er fallist á að brotið sem kærði er grunaður um að hafa framið sé þess eðlis að varðhald teljist nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Samkvæmt þessu eru uppfyllt skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og veður því fallist á kröfu ríkissaksóknara eins og nánar greinir í úrskurðarorði
Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð :
Ákærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt þar til dómur fellur í máli hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 7. ágúst 2009 kl. 16.00.