Hæstiréttur íslands
Mál nr. 148/1999
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Miðvikudaginn 7. apríl 1999. |
|
Nr. 148/1999. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Sigurður Georgsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A-liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
X var undir rökstuddum grun um þjófnað. Var honum gert að sæta gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir og Hjörtur Torfason.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 5. apríl 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 6. apríl. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. apríl 1999, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til 9. apríl nk. kl. 16:00. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði fellur úr gildi. Hann krefst og kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdóms verði staðfestur.
Fyrir Hæstarétt hafa verið lögð nokkur ný gögn, þar á meðal lögregluskýrslur, þar sem fram kemur, að verkfæra þeirra, sem varnaraðili hefur fullyrt að séu sín eign, sé saknað eftir innbrot, og að kona sú, sem ljáði honum bifreið þá sem ætlað þýfi fannst í, hafi borið að farangursgeymsla bifreiðarinnar hafi verið tóm þegar varnaraðili tók við henni. Með vísan til þessa og forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Kærumálskostnaður dæmist ekki.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. apríl 1999.
Ár 1999, mánudaginn 5. apríl er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er af Sigurði T. Magnússyni héraðsdómara, kveðinn upp úrskurður þessi:
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 krafist þess að X verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 9. apríl nk. kl. 16:00.
Kærði hefur mótmælt framkominni kröfu.
Í kröfu um gæsluvarðhald kemur fram að við leit á kærða hafi fundist fíkniefni og bíllyklar. Vettvangsrannsókn hafi leitt í ljós að kærði var umráðamaður bifreiðar sem þarna var á staðnum. Bifreiðin sé Mitsubishi Lancer fólksbifreið, hvít að lit með skráningarnúmerið [...]. Kærði hafi heimilað lögreglu að leita í bifreiðinni og við þá leit hafi fundist verkfæri og munir sem tengjast innbrotum sem framin hafi verið í Reykjavík [...]. Einnig hafi fundist í bifreiðinni fíkniefni. Kærði hafi viðurkennt að eiga fíkniefnin og muni þá sem voru í svörtum Jansport bakpoka. Öðrum munum sem í bifreiðinni voru hafi hann ekki gert viðhlítandi grein fyrir.
Af hálfu lögreglunnar í Reykjavík er því haldið fram að rannsókn máls þessa sé á frumstigi. Kærði hafi ekki gert viðhlítandi grein fyrir handhöfn framangreindra muna. Eftir sé að yfirheyra hann nánar um málsatvik, bæði hvað varðar ofangreind innbrot og muni þeim tengdum. Þá þurfi ennfremur að yfirheyra eiganda bifreiðarinnar [...], og því þykir nauðsynlegt að hann sæti gæsluvarðhaldi meðan á rannsókn málsins stendur.
Af hálfu lögreglunnar er vísað til þess að kærði sé grunaður um brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1991 sem gæti varðað fangelsisrefsingu.
Af hálfu lögreglustjórans í Reykjavík er gæsluvarðhaldskrafan ennfremur studd þeim rökum að kærði hafi verið umráðamaður bifreiðar sem í hafi fundist varningur úr innbrotum. Ekki hafi enn tekist að taka skýrslur af öðrum þeim sem tengjast bifreiðinni vegna ölvunar þeirra og því sé nauðsynlegt að kærði verði í gæsluvarðhaldi þar til þeim þætti rannsóknarinnar er lokið.
Af hálfu verjanda ákærða er þess krafist að gæsluvarðhaldskröfunni verði synjað. Því er haldið fram að kærði hafi upplýst að fullu sinn þátt í málinu. Þá hafi þau verðmæti sem fundust í bifreiðinni óveruleg og ekkert bendi til þess að kærði tengist þeim innbrotum sem þessir munir stafi frá. Því séu ekki fyrir hendi skilyrði til þess að gæsluvarðhaldskrafan nái fram að ganga.
Kærði var sem fyrr segir handtekinn síðastliðna nótt með fíkniefni í vörslum sínum og með vörslur bifreiðar sem í funust munir úr innbrotum. Með vísan til rannsóknargagna þykir fram kominn rökstuddur grunur um að kærði kunni að tengjast meintum brotum á 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem varðað geta hann fangelsisrefsingu. Fram er komið að enn hafi ekki reynst unnt að yfirheyra aðra þá sem tengjast umræddri bifreið vegna ölvunar þeirra. Er fallist á þau sjónarmið lögreglustjórans í Reykjavík, að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins, sem er skammt á veg komin, með því að hafa áhrif á vitni eða samseka, gangi hann laus.
Samkvæmt framansögðu verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík um að kærði sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 9. apríl nk. kl. 16.00 tekin til greina með vísan til a-liðar, 1. mgr. 103. gr. l. nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, eins og hún er fram sett.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 9. apríl næstkomandi kl. 16:00.