Hæstiréttur íslands

Mál nr. 467/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                     

Þriðjudaginn 3. ágúst 2010.

Nr. 467/2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Stefán Eiríksson lögreglustjóri)

gegn

X

(Bjarni Hauksson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Garðar Gíslason og Gunnlaugur Claessen.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. júlí 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 30. júlí 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 6. ágúst 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

      Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur föstudaginn 30. júlí 2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X  f. [...]. [...] [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 6. ágúst 2010 kl. 16:00.  Þá er þess krafist að kærðu verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnabrot. Við tolleftirlit 17. júní sl. hafi tollverðir og lögregla fundið um 20 lítra af amfetamínvökva í eldsneytistanki bifreiðarinnar [...] við komuna til Seyðisfjarðar með Norrænu. Samkvæmt áliti lyfjafræðistofnunnar sé unnt að útbúa um 250 kíló af neysluhæfu amfetamíni úr hinum haldlagða vökva.

Kærða sem hafi verið farþegi bifreiðarinnar, neiti allri aðild að málinu. Hún hafi skýrt frá því að hún hafi komið hingað til lands í boði meðkærðu A sem sé eigandi bifreiðarinnar og hafi verið ökumaður hennar. Kærða og A hafi verið vinkonur og nágrannar til margra ára og tilgangur ferðarinnar hafi verið að heimsækja Bláa lónið.

Kærða hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarhagsmuna málsins frá 18. júní sl., nú síðast með dómi Hæstaréttar 13. júlí nr. 441/2010. Í dómi Hæstaréttar hafi úrskurður héraðsdóms verið staðfestur hvað varði gæsluvarðhaldið en einangrunarvist í gæsluvarðhaldinu stytt til 20. júlí. Með dómi Hæstaréttar 22. júlí nr. 456/2010 hafi úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur frá 20. júlí sl. hins vegar verið staðfestur um að kærða skyldi sæta áfram einangrun á meðan gæsluvarðhaldi stæði, allt til dagsins í dag kl. 16.

Rannsókn málsins miði vel áfram. En málið hafi meðal annars verið unnið með aðstoð þýskra lögregluyfirvalda, sjá nánar réttarbeiðnir, dags. 25. júní sl. og 2. júlí sl. Teknar hafi verið skýrslur af aðilum búsettum í Þýskalandi, jafnframt sem framkvæmdar hafi verið húsleitir þar í landi.

Við rannsókn málsins hafi komið fram að maður að nafni B, f. [...]. [...] [...], hafi gefið meðkærðu A umrædda bifreið um miðjan maí sl.  Þá hafi hann einnig greitt fyrir ferð hennar og kærðu X hingað til lands.  Um hafi verið að ræða vinargreiða.

Þá hafi einnig komið fram að meðkærða A hafi ekið ofangreindri bifreið, ásamt vinkonu sinni C, frá Þýskalandi til Litháen 5. júní sl.  Þar hafi ofangreindur maður, B, tekið á móti þeim.  Eigi B að hafa tekið við umræddri bifreið og ferðapappírum kærðu og C hingað til lands og skilað sólarhring seinna og þá með þeim fyrirmælum að ekki mætti aka bifreiðinni meira en 300 kílómetra án þess að taka eldsneyti.

Gruni lögreglu að umræddum fíkniefnum hafi verið komið fyrir í bifreiðinni í Litháen og að B hafi átt aðild að því.

Hafi umræddur B hlotið fjögurra ára fangelsisrefsingu með dómi Hæstaréttar Íslands 19. október 2006 í máli nr. 420/2006, fyrir að hafa flutt hingað til lands um 2 lítra af amfetamínvökva og brennusteinssýru.

Hafi lögregla með aðstoð Europol unnið hörðum höndum að því að hafa uppi á B í því skyni að handtaka hann og yfirheyra í þágu málsins.  Þá vinni lögregla að því að kanna hugsanleg tengsl B við aðila hér á landi.

Með réttarbeiðnum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags. 15. og 16. júlí sl., til þýskra og litháískra lögregluyfirvalda, hafi verið óskað eftir skýrslutökum af nánar tilgreindum aðilum.  Lögregla bíði enn eftir að ein skýrslutaka fari fram í Þýskalandi ásamt því að aðrar skýrslur komi úr þýðingu.  Ekki hafi enn borist svar frá yfirvöldum í Litháen. Ljóst sé að kærða kunni að setja sig í samband við umrædda aðila sæti hún ekki einangrun í gæsluvarðhaldsvist sinni og sé því afar brýnt að henni verði gert að sæta áfram einangrun í gæsluvarðhaldi með tilliti til þeirra rannsóknarhagsmuna sem að ofan sé getið.

Með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur föstudaginn 16. júlí sl. nr. 287/2010 hafi meðkærðu A verið gert að sæta gæsluvarðhaldi í einangrun skv. b.-lið 1. mgr. 99. gr. og á grundvelli a.-liðar 1. mgr. 95. gr. til 6. ágúst nk.  Hafi það verið á grundvelli þeirra rannsóknarhagsmuna er varði nýútgefnar réttarbeiðnir.

Lögregla telji því nauðsynlegt að kærða sæti einangrun allan gæsluvarðhalds­tímann eða til 6. ágúst nk.  Vonir standi til að sá tími ætti að duga hinum erlendu yfirvöldum til að ljúka umbeðnum beiðnum.  Sömuleiðis eigi lögregla að geta tryggt rannsóknarhagsmuni málsins innan þess tíma, en framburðir kærðu og meðkærðu A stangist á í veigamiklum atriðum.

Kærða sé undir rökstuddum grun um að eiga aðild að innflutningi á gífurlegu magni hættulegra fíkniefna þannig að varði við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.  Þá sé rannsókn málsins enn á viðkvæmu stigi og því brýnt að krafa lögreglustjóra verði tekin til greina, þannig að kærða fái ekki tækifæri til að torvelda rannsókninni, s.s. með því að koma undan munum eða hafa áhrif á aðra samseka eða vitni. 

Í málinu liggi fyrir mat Hæstaréttar Íslands um að lagaskilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála séu uppfyllt í máli þessu og sé ekkert nýtt komið fram í málinu sem breytt geti því mati.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a.liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála er þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Með vísan til þess sem fram kemur í greinargerð lögreglustjóra og þess sem rannsóknargögn bera með sér er fallist á að kærða sé undir rökstuddum grun um að hafa framið verknað sem varðað geti fangelsisrefsingu, en meint brot kærðu eru alvarleg og geta varðað allt að 12 ára fangelsi.  Þykir ljóst af gögnum málsins að rannsókn málsins er á viðkvæmu stigi en beðið er eftir niðurstöðum þýskra og litháískra lögregluyfirvalda í kjölfar réttarbeiðna frá lögreglustjóranum á höfuðborgar­svæðinu varðandi skýrslutökur af vitnum og/eða samsekum aðilum, auk þess sem beðið er eftir þýðingum skýrslna sem teknar hafa verið í Þýskalandi.  Er því fallist á að kærða geti torveldað rannsókn málsins með því að koma undan sönnunargögnum eða hafa áhrif á vitni eða samseka, haldi hún óskertu frelsi sínu. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfu lögreglustjóra, eins hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.  Í  ljósi hinna ríku rannsóknarhagsmuna sem í húfi eru og alvarleika þess brots sem kærða er grunuð um að hafa framið, en eins og að framan er rakið getur meint brot varðað allt að 12 ára fangelsi, er fallist á að kærða sæti einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.

Greta Baldursdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærða, X f. [...]. [...][...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 6. ágúst 2010 kl. 16.00.

Kærða skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.