Hæstiréttur íslands

Mál nr. 551/2014


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                                                                              

Mánudaginn 25. ágúst 2014.

Nr. 551/2014.

Sýslumaðurinn á Akranesi

(Halla Bergþóra Björnsdóttir settur sýslumaður)

gegn

X

(Jóhannes Árnason hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson og Ólafur Börkur Þorvaldsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. ágúst 2014 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Vesturlands 19. ágúst 2014 þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 15. september 2014 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Fallist er á með héraðsdómi að skilyrði séu til þess að varnaraðili sæti áfram gæsluvarðhaldi samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 þann tíma, sem í hinum kærða úrskurði greinir vegna atvika sem urðu aðfaranótt 17. júlí 2014. Verður  úrskurðurinn því staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Vesturlands 19. ágúst 2014.

Lögreglustjórinn á Akranesi hefur krafist þess að Héraðsdómur Vesturlands úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 15 september 2014 á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Kærði mótmælir kröfunni og krefst þess að henni verði hafnað.

Með úrskurði dómsins kveðnum upp 17. júlí sl. var kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og b-liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga með úrskurði Héraðsdóms Vesturlands nr. [...]/2014 sem staðfestur var með dómi Hæstaréttar nr. [...]/2014. Þá var kærði úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli 2. mgr. 95. gr. sömu laga af héraðsdómi Vesturlands þann 24. júlí 2014 sem var staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. [...]/2014 og því markaður tími til 20. ágúst nk. kl. 14:00.

Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að lögreglan á Akranesi hafi til rannsóknar stórfellda líkamsárás sem átti sér stað við [...] í [...] um kl. 2:30 aðfararnótt 17. júlí 2014. Þá um nóttina var lögreglu tilkynnt um að maður hafi orðið fyrir líkamsárás við höfnina í [...] og að hann væri meðvitundarlaus. Lögreglan fór á vettvang þegar hún kom þá voru sjúkraflutningamenn og læknir að hlú að brotaþola, A, kt. [...], sem var meðvitundarlaus og var stór blóðpollur á jörðinni þar sem höfuð hans hafði legið. Brotaþoli var skömmu seinna fluttur á brott í sjúkrabifreiðinni og þvínæst fluttur með þyrlu á bráðamóttöku Landsspítalans. Samkvæmt upplýsingum í málinu er áverki brotaþola mjög alvarlegur og er hann enn í lífshættu eins og fram kemur í upplýsingaskýrslu lögreglu í málinu.

Á vettvangi hafði lögreglan tal af vitni sem sá atburðinn, B, sagðist hann hafa verið að vinna á lyftara á hafnarsvæðinu þegar hann tók eftir því að brotaþoli hafi verið að kítast eitthvað við tvo aðila á hafnarsvæðinu. Vitnið sagði að brotaþoli og aðilarnir hefðu slegið til hvers annars. Þá sagði vitnið að aðilarnir tveir hefðu verið að slást saman á móti brotaþola. Sagði vitnið að brotaþoli hefði verið sleginn í höfuðið með krepptum hnefa af öðrum aðilanum með þeim afleiðingum að brotaþoli féll í jörðina. Vitnið sagði að brotaþoli hefði fallið með höfuðið í malbikið á hafnarsvæðinu. Vitnið kvaðst ekki hafa séð hvor þeirra hefði slegið brotaþola fyrst. Vitni sagði að eftir að brotaþoli hefði fallið í jörðina hefði hann sennilega rotast. Vitnið sagði að þvínæst hefði annar aðilinn stigið yfir brotaþola og staðið klofvega yfir honum og slegið hann með krepptum hnefa einu sinni eða tvisvar í höfuðið. Vitnið sagði að höfuð brotaþola hefði skollið niður í malbikið við höggin. Vitnið sagði að þegar hann kom að hefðu aðilarnir eitthvað farið að rífa sig en síðan hefði fljótlega einhver aðili komið að frá bátnum Baldvini og þá hefðu árásaraðilarnir farið um borð í bátinn Baldvin.

Í framhaldi af því voru kærðu Y og X handteknir klukkan 04:00 sömu nótt og þeim tilkynnt að þeir væru grunaðir um meiriháttar líkamsárás.

Lögreglan ræddi við sakborninga á vettvangi, sbr. frumskýrslu lögreglu. Fram kom hjá kærða X að hann kvaðst hafa verið staddur á barnum í [...] ásamt skipsfélögum sínum umrætt kvöld. Kærði sagði að aðili hefði komið til þeirra og hefði hann verið ofurölvi. Kærði sagði að aðili þessi hefði þröngvað sér í sæti hjá honum og skipsfélögum hans á barnum. Kærði sagði að þessi ölvaði aðili hefði reynt að fá sig og félaga hans til þess að slást við sig. Kærði sagði að hann og skipsfélagar hans hefðu kvartað við aðilann sem á barinn vegna þessa ölvaða manns. Kærði X sagði eftir að barnum var lokað hefði hann og skipsfélagar hans farið af stað í átt að skipinu [...]. X sagði að þegar þeir voru komnir að versluninni [...] þá hefði hinn fulli komið að þeim og verið að rífast við X og félaga hans. Kærði sagði að C hefði reynt að róa hinn fulla niður. Þá hefði hinn fulli slegið C með krepptum hnefa í andlitið. Kærði sagði að eftir þetta hefðu þeir haldið áfram og hefði hinn fulli elt þá að skipinu [...]. Kærði sagði að hinn fulli hefði reynt að komast um borð í skipið en að þeir hefðu bannað honum að koma um borð. Kærði sagði að hann og Y hefðu ýtt hinum fulla í burtu. Kærði sagði að hinn fulli hefði verið að ögra þeim og hefði svo slegið til Y. Kærði sagði að Y hefði ýtt til baka og hrinti hinum fulla þannig að hann datt. X sagði að þvínæst hefði lyftaramaður komið að og sagði að hann og Y hefðu hörfað frá.

Skýrslutaka af kærða fór fram hjá lögreglunni á Akranesi 17. júlí 2014 og var frásögn um aðdragandann á sama veg og hér að framan. Hann greindi frá því við skýrslutökuna að eftir að áhöfn [...] var komin um borð hafi kærði Y ákveðið að fara á eftir brotaþola í þeim tilgangi að láta hann bæta gleraugu C sem brotnað höfðu er brotaþoli hefði slegið hann í andlitið. Kærði X kvaðst hafa talið víst að til áfloga myndi koma og að Y yrði undir í þeim þar sem brotaþoli væri bæði stærri og öflugri en Y. Hann hafi því farið á eftir Y. Kærði kvaðst ekki vita hvort Y hrinti eða sló A með þeim afleiðingum að hann skall í götuna eftir að A hafi slegið til hans. Hann kvaðst sjálfur hafa farið klofvega yfir A þar sem hann lá og tekið í föt hans á brjósti til að halda honum niðri. Allt þetta hafi gerst mjög snöggt og hafi lyftarinn komið þarna að í sömu andrá og hann sleppt takinu.

Honum var sýnd upptaka úr öryggismyndavélum og þekkti hann mennina í myndskeiðinu sem sjálfan sig, Y og brotaþola. Á myndskeiðinu sést að kærði stendur klofvega yfir A eftir að hann fellur í götuna og slær hann tvö hægrihandar hnefahögg í andlitið. Aðspurður kvaðst kærði ekki muna þetta svona en jafnframt að hann geti ekki rengt það sem hann væri að horfa á. Lagði áherslu á að þetta hafi gerst mjög hratt og að hann myndi ekki eftir að hafa slegið brotaþola.

Í skýrslutöku af kærða Y kvaðst hann ekki getað vitnað um þátt kærða X í atburðarásinni þar sem hann hafi verið upptekinn við að verja sig.

Þá talaði lögreglan við vitnið C og staðfesti hann að komið hefði til ryskinga eins og kærði hefur lýst.

Þá hafði lögreglan samband við Hafstein Garðarsson, hafnarvörð hjá [...] og var óskað eftir að sjá upptökur af höfninni. Við skoðun á myndbandsupptökunni sést að kærði Y slær brotaþola bylmingshöggi í höfuðið svo hann fellur aftur fyrir sig í malbikið og höfuðið skellur í malbikið, því næst sést er kærði X beygir sig yfir brotaþola, sem liggur óvígur í götunni, kýlir með krepptum hnefa hægri handar tvö mjög þung högg í höfuðið. Þá sést að árásin hætti þegar vitnið á lyftaranum kom aðvífandi að vettvangi. Þessi átök áttu sér stað frá klukkan 02:24 til klukkan 02:25 samkvæmt klukku á myndbandsupptökunni sem fylgir málinu.

Í framhaldi af handtöku kærða var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og b-liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga með úrskurði Héraðsdóms Vesturlands nr. [...]/2014.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Akranesi hefur tekið skýrslur af 18 aðilum, skipsverjum á skipinu [...], starfsmönnum [...] skemmtistaðarins og af þeim aðilum sem að voru við störf á [...] á umræddum tíma. Þá var rætt við 7 skipverja á [...] sem að voru vissulega í [...] en sáu ekki neitt og vissu ekkert um málið. Alls hefur lögreglan tekið 25 vitnaframburði. Samkvæmt þeim liggur það fyrir að meirihluti skipsverja á [...] fóru um kvöldið á skemmtistaðinn [...] og kom brotaþoli þangað einnig um kvöldið. Samkvæmt vitnaframburðum liggur fyrir að flestir voru að drekka bjór og sumir orðnir nokkuð ölvaðir en ekkert ofbeldi eða hótanir um ofbeldi átti sér stað á skemmtistaðnum. Þá kom fram hjá vitnunum að brotaþoli ásamt fleirum hefðu verið að metast um hitt og þetta og vitnum ber saman um að brotaþoli hefði verið nokkuð ölvaður á þessum tíma. Þegar skemmtistaðnum lokaði klukkan 01:00 fóru þá allir skipverjarnir ásamt brotaþola út af staðnum í nokkrum hópum. Samkvæmt vitnisframburðum var æsingur í kærða X og brotaþola á leiðinni en ekki kom til slagsmála eða ryskinga þeirra á milli. Við verslunina [...] sló brotaþoli einn skipverjann með þeim afleiðingum að gleraugun hans skekktust og ekki er vitað um ástæðuna fyrir því höggi. Vitni sögðu að brotaþoli hefði beðið afsökunar og engir eftirmálar hafi orðið af því. Skipverjarnir fóru síðan um borð í skipið [...] og elti brotaþoli þá og var honum bönnuð innganga í skipið en vitni sögðu að hann hefði tekið því banni ágætlega og verið rólegur að spjalla við skipverjana í landganginum. Skömmu síðar hafi brotaþoli farið niður landganginn og gengið áleiðis í burtu frá skipinu án allra vandræða.

Eitt vitnið, D sagðist hafa verið í setustofunni þegar kærði Y kom inn eftir árásina og sagði hann að X hefði sagt við sig m.a. að hann væri í slæmum málum hann hefði verið að banka einhvern uppi á bryggju og að sá hefði steinrotast og að lögreglan myndi örugglega koma og ná í hann. Vitnið sagði að kærði X hefði farið í hálfgert „panik" eftir að hafa sagt frá þessu.

Samkvæmt ofangreindu og gögnum málsins er kærði undir sterkum grun um að hafa framið í félagi við annan mann stórfellda líkamsárás gegn ungum manni. Afleiðingar árásarinnar eru mjög alvarlegar og er brotaþoli enn í öndunarvél og í lífshættu. Ljóst er að afleiðingar árásarinnar eru mjög alvarlegar og m.t.t. almannahagsmuna er ekki forsvaranlegt að hann gangi laus. Ríkir almannahagsmunir standa til þess, að þegar svo stendur á sem í þessu máli, að menn sem eru sterklega grunaðir um alvarlega brot gangi ekki lausir. Myndi það jafnframt særa réttarvitund almennings yrði kærði látinn laus. Meint brot kærða varðar við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og refsiramminn allt að 16 ára fangelsi.

Rannsókn málsins er langt komin. Kærði hefur sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og með vísan til framanritaðs og gagna málsins verður talið að nauðsynlegt sé að ákærði sæti áfram gæsluvarðhaldi meðan mál hans er til rannsóknar og til meðferðar í réttarvörslukerfinu og þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Kærði er undir sterkum grun um að hafa ásamt öðrum manni ráðist að brotaþola og valdið honum stórfelldum áverkum á höfði aðfaranótt 17. þess mánaðar, en brotaþoli er nú á sjúkrahúsi alvarlega slasaður. Samkvæmt frásögn læknis sem fram kemur í upplýsingaskýrslu lögreglu frá því í gær er brotaþoli lamaður vinstra megin í líkamanum og líkur taldar á að áverki hans muni valda breytingum á persónuleika hans þótt fullsnemmt sé að segja hverjar þær muni verða. Skammtímaminni brotaþola sé um 1 mínúta og hann viti ekkert um sjálfan sig eða hvar hann sé staddur. Að mati læknis sé það með hreinum ólíkindum að brotaþoli sé enn á lífi en hann hafi sýnt hægar framfarir.

Kærði hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 17. júlí á grundvelli 1. mgr. 95. gr.laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála frá 17. júlí til 24. júlí þ.á. en á grundvelli 2. mgr. 95. gr. sömu laga frá 24. júlí sl.en sá úrskurður var staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. [...]/2014 og því markaður tími til 20 ágúst nk. kl. 14:00.

Fallast verður á það með lögreglu að þegar litið er til afleiðinga brots þess sem kærði er sakaður um eins og þeim er lýst hér að framan standi almannahagsmunir til þess að hann sæti áfram gæsluvarðhaldi en brot hans getur varðað allt að 16 ára fangelsi. Skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 þykja uppfyllt hér og verður krafa lögreglustjóra tekin til greina eins og hún er fram sett.

Allan V. Magnússon dómstjóri kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

   Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 15. september 2014 kl. 16:00.