Hæstiréttur íslands
Mál nr. 636/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Mánudaginn 15. nóvember 2010. |
|
|
Nr. 636/2010. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur en fallist á kröfu um að hann sætti geðrannsókn.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir, Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. nóvember 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 12. nóvember 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 10. desember 2010 klukkan 16 og synjað var kröfu hans um að hann skyldi sæta geðrannsókn. Kæruheimild er í l. og o. liðum 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og að honum verði gert að sæta geðrannsókn á gæsluvarðhaldstíma.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Að virtri játningu varnaraðila hjá lögreglu, skýrslugjöf kæranda og vitna um frásögn varnaraðila af atviki því sem til rannsóknar er, sem og rannsóknargögnum öðrum, er nægilega fram kominn sterkur grunur um að varnaraðili hafi gerst sekur um líkamsárás sem varðað getur við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þegar litið er til málsatvika, eins og þeim er lýst í rannsóknargögnum, verður einnig fallist á með sóknaraðila að almannahagsmunir standi til þess að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi. Samkvæmt framansögðu eru uppfyllt skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi eins og krafist er. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur um það efni.
Fyrir Hæstarétt hefur verið lagt endurrit af dómsúrskurði 13. júní 2008 þar sem varnaraðili var sviptur sjálfræði í sex mánuði. Af gögnum málsins verður ráðið að hann kunni að vera veikur andlega þannig að við eigi 2. mgr. 77. gr. laga nr. 88/2008. Af þeim sökum verður fallist á kröfu varnaraðila um að hann sæti geðrannsókn.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur um gæsluvarðhald varnaraðila, X.
Varnaraðili skal sæta geðrannsókn.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 12. nóvember 2010.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 10. desember nk. kl. 16.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi haft til rannsóknar stórfellda líkamsárás, en þann 11. október sl. hafi verið ráðist á A, kt. [...], þar sem hún hafi verið á gangi á leið heim úr skóla á göngustíg í [...]. A hafi verið lamin með þungu áhaldi í höfuðið. Hún kvaðst hafa vankast við höggið og fallið til jarðar, en þá hafi maðurinn stokkið ofan á hana og tekið hana kverkataki og hert að, þannig að hún hafi misst meðvitund. Maðurinn hafi síðan sleppt henni og hlaupið í burtu. Þegar lögreglan hafi komið á vettvang hafi mátt sjá stóran skurð á höfði A og hafði blætt mikið niður á andlit og föt hennar.
A hafi hlotið skurði bæði á enni og á hnakka. Skurðurinn á enni hafi náð alveg inn á kúpu og er það álit lækna að skurðurinn sé eftir högg með barefli. Þá hafi hún hlotið mar víðsvegar á líkamann m.a. á hálsi og kjálka, en einnig hafi hún verið þverfingurbrotin á vísifingri hægri handar, sem læknir taldi vera líkleg varnarsár.
Í gær kl. 10:50 hafi kærði X verið handtekinn grunaður um að hafa ráðist á A í umrætt sinn. Höfðu lögreglu borist upplýsingar sem taldar hafi verið áreiðanlegar og hafi því böndin borist að X. Á heimili hans hafi fundist inni í klæðaskáp skór sem hafi samræmst þeirri lýsingu sem A hafði gefið á skóm árásarmannsins í skýrslutöku hjá lögreglu.
Í skýrslutökunni hafi X viðurkennt verknaðinn, en kvaðst ekki muna mikið eftir atburðarásinni sökum ölvunar. Hann kvað enga sérstaka ástæðu hafa verið fyrir árásinni, nema hann hafi verið mjög reiður, þar sem honum hafi verið vísað út úr strætisvagni. Kvaðst hann muna eftir því að hafa ráðist á stúlku og tekið eftir því þegar heim hafi verið komið að skór og fatnaður hans hafi verið blóðug.
Um sérlega fólskulega árás sé að ræða þar sem tilviljun réð því hver fyrir varð. Tilgangurinn hafi verið sá einn að beita ofbeldi. Sú aðferð sem notuð var þykir sérlega vítaverð og þyki mildi að ekki fór verr. Áverkar séu auk þess verulegir, m.a. beinbrot. Þá sé óhætt að segja að árás sem þessi sé til þess fallin að hafa veruleg áhrif á sálarheill manna. Verði líkamsárás X því felld undir 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem varði allt að 16 ára fangelsi.
Rannsókn málsins sé lokið og sé stefnt að því að ljúka rannsókninni innan þess tíma sem hér sé krafist.
Telja verði að skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu uppfyllt þegar litið er til eðlis verknaðarins og alvarleika. Sterkur grunur, sem m.a. sé byggður á játningu kærða og fyrirliggjandi sönnunargögnum, teljist vera fyrir hendi. Þykja almannahagsmunir krefjast þess að kærði verði látinn sæta gæsluvarðhaldi en brotið er eins og áður segir svívirðilegt og því ekki hægt að réttlæta að kærði gangi laus.
Eins og gögn málsins bera með sér er kærði grunaður um stórfellda líkamsárás á A á göngustíg í [...] þann 11. október sl. Sú líkamsárás var mjög fólskuleg og algjörlega tilefnislaus. Við skýrslutöku hjá lögreglu viðurkenndi kærði verknaðinn, en dró þá játningu til baka fyrir dómi. Gögn málsins bera með sér að fram sé komin rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsgin er lögð við sbr. 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Samkvæmt fyrirliggjandi læknisvottorði var A lamin í höfuðið með barefli og hlaut sár á hnakka og enni og missti meðvitund. Hún hlaut marbletti á hálsi, framhandlegg, úlnlið og hendi auk axlar og upphandleggs. Hún reyndist brotin á nærkjúku hægri vísifingurs vegna árásarinnar. Þá kemur fram í læknisvottorðinu að hún hafi verið í miklu uppnámi vegna fólskulegrar árásar. Af gögnum kemur fram að kærði hafi verið ölvaður tiltekið sinn og búinn að vera í mikilli neyslu undanfarið og ber við minnisleysi af þeim sökum.
Brot það sem kærða er gefið að sök er mjög alvarlegt og verknaðurinn þess eðlis að ætla má að varðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna skv. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Verður því fallist á kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um gæsluvarðhald hans og eru ekki efni til að marka því skemmri tíma en krafist er. Engin gögn liggja fyrir í málinu sem gefa til kynna að ástæða sé til að efast um sakhæfi kærða. Kröfu hans um geðrannsókn á gæsluvarðhaldstíma er því hafnað.
Eggert Óskarsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 10. desember nk. kl. 16. Hafnað er kröfu hans um geðrannsókn á gæsluvarðhaldstíma.