Hæstiréttur íslands
Mál nr. 674/2012
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Mánudaginn 12. nóvember 2012. |
|
Nr. 674/2012. |
Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn X (Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. og 3. mgr. 97. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson, Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. nóvember 2012, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. nóvember 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hennar í Hæstarétti, en þó eigi lengur en til fimmtudagsins 1. febrúar 2013 klukkan 17. Kæruheimild er í b. lið 2. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að henni verði gert að sæta farbanni. Að því frágengnu krefst hún þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Sóknaraðili hefur upplýst í greinargerð sinni til Hæstaréttar að sá dráttur, sem varð á því að frumgögn hafi borist embættinu frá Héraðsdómi Reykjaness, verði skýrður með umfangi málsins og tímafrekri endurritun á skýrslum ákærðu og vitna við aðalmeðferð málsins. Liggi fyrir að endurritin verði 437 blaðsíður. Samkvæmt því og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. nóvember 2012.
Ríkissaksóknari hefur í dag krafist þess að dómfelldu, X, kt. [...], með lögheimili að [...], verði með úrskurði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hennar í Hæstarétti, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 1. febrúar 2013, kl. 17:00.
Í greinargerð með kröfunni kemur fram að með dómi Héraðsdóms Reykjaness, í máli nr. S-[...]/2012, uppkveðnum þann [...] 2012, hafi X, ásamt fleirum, verið sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. og 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hafi niðurstaða dómsins verið sú að um verkaskipta aðild dómfelldu og samverkamanna hennar hafi verið að ræða. Dómfelldu hafi verið gert að sæta fangelsi í 4 ár og 6 mánuði.
Með áfrýjunarstefnu útgefinni 13. júlí 2012, hafi dómnum verið áfrýjað til Hæstaréttar af hálfu dómfelldu. Málið sé afar umfangsmikið. Frumgögn málsins hafi borist til ríkissaksóknara frá Héraðsdómi Reykjaness þann 30. október sl. Ágrip málsins verði tilbúið á næstu dögum.
Dómfellda hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 22. desember 2011, sbr. úrskurði Héraðsdóms Reykjaness um gæsluvarðhald ákærðu, nr. R-439/2011, R-27/2012, R-49/2012, R-89/2012, R-131/2012, R-196/2012, R-242/2012, R-271/2012, R-287/2012, R-297/2012 og R-315/2012 og dóma Hæstaréttar nr. 695/2011, 21/2012, 107/2012, 166/2012, 323/2012, 395/2012 og 498/2012.
Í greinargerðinni segir einnig að dómfellda hafi verið sakfelld fyrir alvarleg brot. Með hliðsjón af því og að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo standi á, sé þess krafist að dómfelldu verði gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan málið er til meðferðar fyrir Hæstarétti, sbr. 2. mgr. 95. gr. og 3. mgr. 97. gr. laga nr. 88/2008.
Dómfellda sætti fyrst gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna en síðan með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Hinn 20. júní 2012 var hún sakfelld og dæmd í fangelsi í fjögur ár og sex mánuði fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. og 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Dómfellda áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar og var áfrýjunarstefna gefin út 2. júlí 2012. Fram er komið að frumgögn málsins bárust ríkissaksóknara 30. október sl. eða fjórum mánuðum eftir útgáfu áfrýjunarstefnu. Þykir þessi dráttur verða skýrður með umfangi málsins og tímafrekra uppskrifta á skýrslum ákærðu og vitna við aðalmeðferð málsins. Með vísan til framangreinds og 3. mgr. 97. laga nr. 88/2008 er fallist á kröfu ríkissaksóknara eins og hún er sett fram og nánar greinir í úrskurðarorði. Þegar litið er til umfangs málsins þykir ekki ástæða til að marka gæsluvarðhaldi skemmri tíma.
Úrskurð þennan kveður upp Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari.
ÚRSKURÐARORÐ
Dómfellda, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hennar í Hæstarétti, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 1. febrúar 2013, kl. 17:00.