Hæstiréttur íslands
Mál nr. 236/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Föstudaginn 15. maí 2009. |
|
Nr. 236/2009. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Arnþrúður Þórarinsdóttir, aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 11. maí 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 12. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. maí 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 2. júní 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og honum verði ekki gert að sæta einangrun.
Sóknaraðili kærði úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti með kæru 12. maí 2009. Hann krefst þess að úrskurði héraðsdóms verði breytt þannig að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 8. júní klukkan 16.
Varnaraðili telur meðal annars að óheimilt sé að úrskurða hann til að sæta einangrun í gæsluvarðhaldinu um lengri tíma samfleytt en fjórar vikur, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008. Hann hafi nú sætt gæsluvarðhaldi í einangrun frá 19. apríl 2009. Verði hinn kærði úrskurður staðfestur verði einangrun hans búin að standa í um sex vikur, þegar gæsluvarðhaldstíma ljúki 2. júní 2009. Svo sem fram kemur í hinum kærða úrskurði er varnaraðili grunaður um brot sem varðað getur allt að 12 ára fangelsi. Framangreind regla um tímalengd einangrunar á því ekki við um hann, sbr. undantekningarreglu sem fram kemur í nefndu lagaákvæði.
Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. maí 2009.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til mánudagsins 8. júní 2009, kl. 16:00. Þess er krafist að X verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar ætlað stórfellt fíkniefnabrot. Þann 18. apríl 2009 hafi lögreglu borist upplýsingar um seglskútu er sigldi eins og í átt til lands. Hafi sama dag verið fylgst með ferðum þriggja manna á tveimur bílum sem voru staddir á Djúpavogi, en þeir hafi verið með slöngubát með utanborðsvél með sér. Síðar hafi komið í ljós að tveir af mönnunum og báturinn voru horfnir en einn mannanna verið á ferð um Djúpavog. Um kvöldið hafi sést til ferða slöngubátsins, þar sem honum hafi verið siglt inn í höfn í Gleðivík, vestan við aðalhöfnina á Djúpavogi. Sá mannanna sem hafi verið á ferð um Djúpavog hafi komið akandi að höfninni þar sem báturinn kom að landi. Hafi töskur verið teknar út úr bátnum og þeim komið fyrir í bifreiðinni. Bifreiðinni hafi í framhaldinu verið ekið á brott. Við Höfn hafi bifreiðin verið stöðvuð og ökumaður bifreiðarinnar verið X. Í bifreiðinni hafi verið töskur sem innihéldu verulega mikið magn af ætluðum fíkniefnum, um 109 kg af efnum sem hafi gefið svörun hjá tæknideild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sem fíkniefni; amfetamín, MDMA, hass og marihuana.
Slöngubátnum hafi verið siglt úr höfninni í Gleðivík og inn í höfnina á Djúpavogi. Fylgst hafi verið með tveimur mönnum sem voru um borð í bátnum og þeir síðar um kvöldið handteknir á bifreiðinni Y. Ökumaður var A og farþegi B.
X hafi borið um hjá lögreglu að hann hafi tekið að sér fyrir meðkærða A að fara með honum í ferð út á land til að sækja þar töskur sem A kvað að innihéldu stera. Hafi X átt að koma á öðrum bíl en A og hafi átt að taka töskurnar með í bæinn.
Rannsókn lögreglu miði að því að finna út hver/hverjir séu eigendur hinna ætluðu fíkniefna sem haldlögð voru. Rannsaka þurfi þætti er snúi að aðdraganda brotsins, skipulagningu og fjármögnun. Sé gagnaöflun í fullum gangi og mikil vinna við úrvinnslu þeirra gagna sem þegar liggja fyrir.
Rökstuddur grunur sé um stórfellt fíkniefnabrot X. Nauðsynlegt sé talið að hann sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins, svo honum sé fyrirmunað að setja sig í samband við ætlaða vitorðsmenn og/eða vitni og/eða að hann geti komið undan gögnum sem sönnunargildi hafa í málinu og hafa ekki verið haldlögð. Þykir þannig nauðsynlegt að vernda rannsóknarhagsmuni málsins með því X sæti gæsluvarðhaldi og að hann verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.
Til rannsóknar er ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Er fallist á með lögreglu að brýnir hagsmunir séu fyrir því að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til rannsóknar, enda geti hann torveldað rannsókn málsins með því að koma undan sönnunargögnum eða hafa áhrif á vitni eða samseka, gangi hann laus. Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna og a- liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, er krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu tekin til greina, eins og hún er fram sett, þó þannig að kærði sæti gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 2. júní nk. kl. 16.00. Þá er með sömu rökum fallist á að kærði sæti einangrun skv. b- lið 1. mgr. 99. gr. laganna.
Anna M. Karlsdóttir settur héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til þriðjudagsins 2. júní 2009, kl. 16:00. Kærði skal látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.