Hæstiréttur íslands
Mál nr. 432/2004
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 1. nóvember 2004. |
|
Nr. 432/2004. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Egill Stephensen saksóknari) gegn X(Jón Egilsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. október 2004. Kærumálsgögn bárust réttinum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 28. október 2004, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 11. nóvember 2004 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Til vara krefst hann að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og hann leystur undan heimsóknar- og fjölmiðlabanni meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdóms verði staðfestur.
Varnaraðili hefur ekki borið þann hluta varakröfu sinnar, sem varðar heimsóknar- og fjölmiðlabann, undir héraðsdóm, sbr. 75. gr. laga nr. 19/1991. Verður þeim hluta varakröfu hans því vísað frá Hæstarétti.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 28. október 2004.
Ár 2004, fimmtudaginn 28. október, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni héraðsdómara, kveðinn upp úrskurður þessi.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 11. nóvember 2004, klukkan 16:00.
[...]
Lögregla kveður að verið sé að rannsaka ætluð brot kærða í félagi við aðra á fíkniefnalöggjöfinni sem getur varðað hann þungri fangelsisrefsingu ef sannast. Rannsóknargögn málsins, svo sem framburðarskýrslur annarra manna sem sætt hafa rannsókn og símagögn benda til aðildar kærða að innflutningi verulegs magns fíkniefna til Íslands. Samkvæmt því þykir vera fyrir hendi rökstuddur grunur um aðild kærða að verknaði sem fangelsisrefsing er lögð við. Þá má ætla að kærði kunni að geta torveldað rannsókn málsins gangi hann laus. Eru því uppfyllt skilyrði a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Ber því að fallast á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 11. nóvember 2004, klukkan 16:00.