Hæstiréttur íslands

Mál nr. 70/2004


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Mánudaginn 16

Mánudaginn 16. febrúar 2004.

Nr. 70/2004.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Guðmundur Ágústsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. febrúar 2004. Kærumálsgögn bárust réttinum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 12. febrúar 2004, þar sem fallist var á kröfu sóknaraðila um að varnaraðili sætti áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 4. mars 2004 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 12. febrúar 2004.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að þann 4. febrúar sl. hafi verið gerð húsleit í íbúð kærða að [...] vegna gruns um að hann hafi framið kynferðisbrot gegn ungmennum. Lögreglan hafi haldlagt í íbúðinni [...] Þann 5. febrúar sl. hafi kærði verið úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi til dagsins í dag til þess að lögreglu gæfist ráðrúm til að rannsaka betur það efni sem haldlagt hafi verið í íbúð hans.

                [...]

Lögreglan kveðst rannsaka ætluð brot kærða sem talin sé geta varðað við ákvæði XXII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og við ákvæði 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Með vísan til framanritaðs, framlagðra gagna og með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 sé þess krafist að krafa þessi verði tekin til greina eins og hún sé fram sett.

          Fallist er á það með lögreglustjóra að nauðsynlegt sé að kærði sæti gæslu þar sem hann geti hugsanlega torveldað rannsókn málsins, svo sem með því að hafa áhrif á vitni, hafi hann óskert frelsi. 

          Samkvæmt framansögðu eru að mati dómsins uppfyllt lagaskilyrði til að taka kröfu þessa til greina, sbr. a- lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

          Með því að sýnt þykir að mikil rannsóknarvinna sé fyrir höndum hjá lögreglu er fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett.

Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð

Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi til fimmtudagsins 4. mars 2004 kl. 16.00.