Hæstiréttur íslands

Mál nr. 337/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                                        

Föstudaginn 4. júní 2010.

Nr. 337/2010.

Sýslumaðurinn á Selfossi

(Jónína Guðmundsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Sigurður Sigurjónsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 31. maí 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. júní sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 28. maí 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 25. júní 2010 klukkan 16 og sæta einangrun allt til föstudagsins 11. júní 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími. Einnig er þess krafist að kærði sæti ekki einangrun, en til vara að einangruninni verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að uppfyllt séu skilyrði fyrir því að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi samkvæmt a. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og að hann sæti einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga. Reynir þá ekki á það að svo stöddu hvort skilyrði c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu fyrir hendi. Rétt þykir að gæsluvarðhaldstími vegna rannsóknarhagsmuna verði ákveðinn allt til föstudagsins 11. júní 2010 klukkan 16.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Varnaraðili, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 11. júní 2010 klukkan 16 og má láta hann vera í einrúmi til þess tíma.

Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 28. maí 2010.

Lögreglustjórinn á Selfossi hefur gert þá kröfu að X kt. [...], með lögheimili að [...], Reykjavík, en dvalarstað að [...] þar í borg, verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 25. júní nk. kl. 16:00 á grundvelli a og c-liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.  Lögreglustjóri krefst þess að kærði sæti einangrun fyrri tvær vikurnar af 4, sbr. b lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008  

Kærði mótmælir kröfunni og krefst þess að henni verði hafnað, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími og að einangrunarhluta gæsluvarðhaldsins verði markaður skemmri tími.

Í greinargerð lögreglustjóra með kröfunni kemur fram að kærði hafi verið handtekinn af lögreglu höfuðborgarsvæðisins í gær, 27. maí 2010, vegna þjófnaðar á hvítri pallbifreið af gerðinni [...], mál lögreglu nr. [...]. Hafi verið gerð húsleit á dvalarstað hans [...] þar sem ýmiss varningur hafi fundist sem grunur leiki á að sé þýfi. Við nánari rannsókn hafi komið í ljós að tengja megi ýmsa hluti sem fundust við framangreinda húsleit við innbrot í sumarhús í umdæmi lögreglunnar á Selfossi:

Samskonar bifreið og stolið hafi verið í máli [...] og kærði hafi játað að hafa stolið hafi sést skammt frá vettvangi í máli [...] þar sem brotist hafi verið inn í [...] á [...] aðfaranótt 27. maí sl.

Þann 2. apríl 2010 hafi verið tilkynnt um innbrot í sumarhús við [...9 í Grímsnes- og Grafningshreppi þar sem stolið hafi verið Philips blandara, áfengi, hárþurrku og ruslafötu, mál lögreglu [...].

Að morgni gærdagsins, fimmtudagsins 27. maí 2009 hafi verið tilkynnt um innbrot í sumarhús við [...] í landi Búrfells í Grímsnes- og Grafningshreppi þar sem búið hafi verið að brjóta rúðu í útidyrahurð og þaðan stolið hvítum 40“ Samsung sjónvarpsflatskjá, sjónvarpsflakkara, Makita hleðsluborvél og myndavél sem tengd hafi verið öryggiskerfi sumarhússins. Mál lögreglu nr. [...]. Á sama tíma hafi verið tilkynnt um innbrot í sumarhús að [...] og þaðan stolið flatskjá, mál lögreglu nr. [...].

Kærði hafi verið yfirheyrður af lögreglunni á Selfossi rétt eftir hádegi í dag þar sem hann hafi játað aðild að málum [...], [...] og [...] en neitað aðild að innbroti í [...]. Með honum hafi verið þrír aðrir aðilar sem hann nafngreinir.

Eftir að rannsókn málsins hafi leitt í ljós að hluti þeirra muna sem fundust við húsleit lögreglu höfuðborgarsvæðisins á [...] í gær, 27. maí 2010, og aftur í dag hafi tengst innbrotum í embætti lögreglunnar á Selfossi hafi einnig beinst grunur að kærða vegna fleiri innbrota sem framin hafi verið á svæðinu, samtals 33 mál, en útprentun úr dagbók lögreglu vegna þessarar mála fylgir kröfu þessari. Í öllum þessum málum hafi sömu aðferð verið beitt við innbrotin, þ.e. útidyrahurð spennt upp eða það reynt og gluggar verið brotnir og ýmsum verðmætum stolið, þó aðallega sjónvarpsflatskjám og raftækjum, og í einhverjum tilvikum unnar skemmdir á innanstokksmunum þegar verðmæta hefur verið leitað. Rannsókn þessara 33 mála sé enn í gangi og eftir eigi að yfirheyra kærða vegna þeirra en sterkur og rökstuddur grunur sé uppi um að kærði ásamt þeim aðilum sem hann hafi nafngreint í skýrslutöku í morgun hafi átt aðild að umræddum málum. Megi meðal annars benda á að í máli [...] liggi fyrir upptaka úr öryggismyndavél þar sem þrír menn, hið minnsta, sjáist koma á bifreið akandi að sumarhúsi við Álftavatn. Á upptökunni heyrist hvar rætt mennirnir ræða saman á ensku en það muni kærði og félagar hans gera þar sem tveir þeirra tali ekki íslensku.

Kærði á að baki nokkurn sakarferil þrátt fyrir ungan aldur en hann hefur þrisvar hlotið dóm fyrir brot gegn 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Nú síðast hlaut kærði dóm í Héraðsdómi Suðurlands þann 10. júní 2009 þar sem hann var dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið í 2 ár.

Hjá lögreglunni í Borgarfirði og Dölum séu til rannsóknar 18 mál sem kærði og þrír félagar hans séu grunaðir um aðild að en þeir hafi verið stöðvaðir  þann 13. maí sl. á Vesturlandsvegi við Hafnará í samskonar bifreið og áður hafði verið tilkynnt um vegna grunsamlegra mannaferða í sumarbústaðabyggð í Skorradal og innbrota í sumarhús á því svæði. Rannsókn þessara mála sé enn í gangi en um sé að ræða samskonar verknaðaraðferð og í öllum þeim málum sem eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Selfossi.

Kærði hafi áður viðurkennt innbrot í 5 sumarhús í landi Sogsbakka, Grímsnes- og Grafningshreppi þann 14. apríl sl. þar sem mjög miklum verðmætum hafi stolið. Málin séu á lokastigi rannsóknar og muni verða ákært í þeim von bráðar. Þá séu jafnframt til meðferðar hjá Lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins 11 mál á hendur kærða.

Miðað við þann fjölda mála sem um ræðir hjá kærða þá þyki það vera ljóst að verði kærði fundinn sekur fyrir ofangreind brot mun hann fá óskilorðsbundna fangelsisrefsingu.

Ljóst sé að kærði hafi verið mjög virkur í brotastarfsemi að undanförnu og í mikilli neyslu fíkniefna. Með vísan til þess og samfellds brotaferils kærða, sem hafi færst mjög í aukanna á síðustu dögum og vikum, sé það mat lögreglustjóra að hann muni halda áfram afbrotum verði hann látinn laus.  Þá sé það jafnframt mat lögreglustjórans á Selfossi að rannsóknarhagsmunir þeirra mála sem kærði er grunaður um aðild að mæli eindregið með því að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi og að honum verði gert að sæta einangrun í tvær vikur af þeim fjórum vikum sem krafist er, á grundvelli b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, þar sem rannsókn málanna er skammt á veg kominn og hætta sé á að kærði muni geta torvelað hana ef hann sæti ekki einangrun. Þá sé jafnframt hætta á að kærði setji sig í samband við samverkamenn sína þrjá, en lögregla hafi á þessari stundu ekki haft upp á þeim.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a- og c.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Það er mat dómsins að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið þau afbrot sem vísað er til í kröfu lögreglustjóra og geta varðað hann fangelsisrefsingu ef sannast.  Er bent á það að á dvalarstað kærða við húsleit í gær fannst mikill fjöldi muna sem lögregla telur vera þýfi og hefur verið unnt að tengja við tiltekin innbrot.  Ekki er allt þýfi úr umræddum innbrotum komið fram.  Fyrir liggur að í brotum þessum hafa fleiri en einn staðið að verki en ætlaðir samverkamenn kærða ganga nú lausir og er þeirra leitað af lögreglu. 

Samkvæmt framansögðu má fallast á það með lögreglustjóra að miklar líkur séu til þess að kærði muni torvelda rannsókn málanna haldi hann frelsi sínu óskertu, s.s. með því að koma undan munum og hafa áhrif á möguleg vitni og samseka, en af því hefur hann augljósa hagsmuni.  Jafnframt verður að fallast á að ætla megi að hann haldi brotastarfsemi sinni áfram haldi hann óskertu frelsi.  Kærði er grunaður um brot sem geta varðað hann fangelsisrefsingu samkvæmt ákvæðum 26. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þ. á m. 244. gr., 257. og 1. mgr. 259. gr. sömu laga.

Með tilliti til fjölda þeirra mála sem lögregla hefur rökstuddan grun um að kærði eigi aðild að þykja ekki vera efni til að stytta gæsluvarðhaldstímann, hvorki í heild sinni né að því er varðar einangrunarhlutann.

Með vísan til þessa og á grundvelli a og c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 verður því fallist á kröfu lögreglustjóra eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Ekki eru efni til að úrskurða skipuðum verjanda málsvarnarlaun á þessu stigi sbr. 38. gr. laga nr. 88/2008

Sigurður G. Gíslason héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, kt. [...], sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 25. júní 2010. kl. 16:00.  Kærði skal sæta einangrun skv. b lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 allt til föstudagsins 11. júní 2010 kl. 16.00