Hæstiréttur íslands
Mál nr. 552/2007
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
|
|
Þriðjudaginn 23. október 2007. |
|
Nr. 552/2007. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason, saksóknari) gegn X(Oddgeir Einarsson hdl.) |
Kærumál. Farbann.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta farbanni samkvæmt b. lið 1. mgr. 103. gr. og 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 21. október 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 23. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. október 2007, þar sem varnaraðila var bönnuð för frá Íslandi, meðan lögregla lýkur rannsókn og tekur ákvörðun um saksókn í nokkrum málum, sem snúa að ætlaðri aðild varnaraðila að skipulögðum þjófnaðarbrotum í félagi við aðra á höfuðborgarsvæðinu, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 1. nóvember 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að farbanni verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 18. október 2007.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt fram kröfu um að úrskurðað verði að X, kt. [...], litháískur ríkisborgari, [...], Garðabæ, verði bönnuð för frá Íslandi á meðan lögregla lýkur rannsókn og tekur ákvörðun um saksókn í nokkrum málum, sem snúa að aðild kærða í skipulögðum þjófnaðarbrotum á höfuðborgarsvæðinu, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 1. nóvember. 2007, kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu rannsaki nú rúmlega 20 þjófnaði úr verslunum, þar sem í öllum tilvikum er um að ræða að stolið hefur verið á opnunartíma verslana með kerfisbundnum hætti dýrum smávarningi. Um síðustu mánaðamót vöknuðu grunsemdir um að hópur fólks, frá Litháen, sem hér dvelur, stæði að þjófnuðunum. Gerð hafi verið húsleit í íbúð á 3. hæð í [...], Reykjavík, 2. október sl. Í íbúðinni halda til nokkrir Litháar, þar á meðal kærði. Við húsleitina var lagt hald á mikið magn af munum, svo sem fatnað, snyrtivöru og ýmsan tæknibúnað. Í kjölfarið hafi kærði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fimmtudaginn 4. október sl. og í áframhaldandi gæsluvarðahald frá miðvikudeginum 10. október sl. til dagsins í dag. Meðfylgjandi kröfu þessari er afrit af gæsluvarðhaldskröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dagsett 10. október sl. þar sem þau mál, sem til rannsóknar eru, eru reifuð nánar.
Rannsókn málanna sé langt á veg komin. Kærði sé grunaður um að vera aðili að hóp sem sér um skipulagða þjófnaði í verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Í öllum þeim málum sem lögregla hefur nú til rannsóknar hefur hún þekkt gerendur sem aðila úr þessum hópi. Þá fundust munir sem tengjast ofantöldum málum á dvalarstað kærðu. Er hópurinn grunaður um að stela úr verslunum með kerfisbundnum hætti, þar sem þeir skipuleggja sig saman og skipta með sér verkum hverju sinni.
Kærði hefur dvalið á Íslandi síðan í júlí 2006. Kærði hafi takmörkuð tengsl við landið, bæði fjölskyldu og önnur. Nauðsynlegt sé að tryggja nærveru kærða hér á landi til að hann geti ekki komið sér undan frekari rannsókn málsins, mögulegri saksókn og málsmeðferð fyrir dómi. Sé því nauðsynlegt að kærði sæti farbanni meðan á meðferð máls þessa stendur en vinnslu þess verður reynt að hraða eftir föngum, og mun ákvörðun um saksókn liggja fyrir á næstu tveimur vikum.
Í ljósi framangreinds, hjálagðra gagna og þeirra sjónarmiða sem fram koma í b-lið 1. mgr. 103. gr. og 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, sé þess farið á leit að fallist verði á framkomna kröfu.
Fallist er á það með sækjanda svo sem fram kemur í framangreindri lýsingu lögreglu að skilyrði b-liðar 1. mgr. 103. gr. og 110 gr. laga nr. 19/1991 séu uppfyllt. Verður því fallist á beiðni lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að ákærði sæti farbanni svo sem greinir í úrskurðarorði.
Sigurður H. Stefánsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú r s k u r ð a r o r ð:
X, kt. [...], litháískum ríkisborgara, er bönnuð för frá Íslandi á meðan lögregla lýkur rannsókn og tekur ákvörðun um saksókn í nokkrum málum, sem snúa að aðild kærða í skipulögðum þjófnaðarbrotum á höfuðborgarsvæðinu, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 1. nóvember 2007 kl. 16.