Hæstiréttur íslands

Mál nr. 43/2012


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
  • Sératkvæði


                                                                                              

Þriðjudaginn 17. janúar 2012.

Nr. 43/2012.

Ákæruvaldið

(Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari)

gegn

X

(Brynjólfur Eyvindsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Sératkvæði.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Eiríkur Tómasson og Greta Baldursdóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. janúar 2012 sem barst Hæstarétti ásamt kærumálsgögnum 16. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. janúar 2012, þar sem varnaraðila var áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 10. febrúar 2012 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að sér verði gert að sæta banni við brottför af landinu í stað gæsluvarðhalds. Að því frágengnu krefst hann þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Í dómi Hæstaréttar 25. október 2011 í máli nr. 575/2011 var staðfestur úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 21. sama mánaðar um að varnaraðili skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi til 18. nóvember 2011. Var sú niðurstaða reist á því að sterkur grunur lægi fyrir um að varnaraðili hefði gerst sekur um brot, sem að lögum getur varðað allt að tíu ára fangelsi. Með dómum Hæstaréttar 23. nóvember og 20. desember 2011 í málum nr. 616/2011 og 681/2011 voru staðfestir úrskurðir Héraðsdóms Reykjavíkur um að varnaraðili skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi til 13. janúar 2012.

Ákæra var gefin út á hendur varnaraðila 7. desember 2011 og hún þingfest 16. sama mánaðar. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er aðalmeðferð málsins fyrirhuguð á morgun, 18. janúar 2012.  Í ljósi þessa þykir meðferð þess ekki hafa farið í bága við fyrirmæli um hraða málsmeðferð, sbr. 2. mgr. 53. gr. og 1. mgr. 171. gr. laga nr. 88/2008, þannig að skilyrði séu fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi.

Að framangreindu virtu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Sératkvæði

Jóns Steinars Gunnlaugssonar

Að mínum dómi hafa orðið óþarfar og óforsvaranlegar tafir á máli varnaraðila, sbr. sératkvæði mín í málum nr. 616 og 681/2011. Hæstiréttur hefur ítrekað tekið fram í forsendum dóma að sérstaklega sé rík skylda til að hraða meðferð máls þegar sakborningur sætir gæsluvarðhaldi. Hefur jafnframt komið fram að það sé beinlínis skilyrði fyrir framlengingu gæsluvarðhalds samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 að mál sé rekið með fullnægjandi hraða. Með vísan til þess og fyrrnefndra sératkvæða tel ég að fella beri hinn kærða úrskurð úr gildi en hins vegar sé rétt að varnaraðili sæti banni við brottför frá landinu þann tíma sem kveðið er á um í hinum kærða úrskurði.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. janúar 2012.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að ákærða, [X], verði með úrskurði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 10. febrúar 2012, kl. 16:00.

Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að með ákæru ríkissaksóknara dags. 7. desember sl., sem send hafi verið Héraðsdómi Reykjavíkur sama dag, hafi [Y] og [X] verið ákærðir fyrir nauðgun með því að hafa, að morgni sunnudagsins 16. október 2011 í bifreiðinni [...], sem lagt hafi verið í stæði við Reykjavíkurflugvöll, haft önnur kynferðismök en samræði við [Z] með því að beita hana ofbeldi. Ákærði [Y] með því að neyða konuna til að hafa við sig munnmök og ákærði [X] með því að hafa við hana endaþarmsmök auk þess að setja fingur í leggöng hennar. Sé brot þeirra heimfært undir 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Málið hafi verið þingfest 16. desember sl. og hafi ákærðu neitað sök. Aðalmeðferð í málinu fari fram 18. janúar nk.

Ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 16. október sl. og hafi hann sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 frá 21. s.m. (síðasti úrskurður R-620/2011 sem staðfestur hafi verið með dómi Hæstaréttar í máli nr. 680/2011.)

Að mati ríkissaksóknara liggi ákærði undir sterkum grun um að hafa framið ofangreint brot. Þá liggi fyrir að brotið geti varðað allt að 16 ára fangelsisrefsingu. Með hliðsjón af alvarleika sakarefnis og þess að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo standi á, sé þess krafist að ákærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans er til meðferðar hjá dómstólum.Vísist um kröfuna til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Um beitingu og túlkun ákvæðis 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála sé hér vísað til dóms Hæstaréttar Íslands í máli 473/2011, þar sem um hafi verið að ræða nauðgun á almannafæri.

Loks vísist til þess að Hæstiréttur hafi þrívegis staðfest úrskurði héraðsdóms, um að lagaskilyrðum almannagæslu sé fullnægt í máli þessu. Ekkert nýtt hafi komið fram í málinu sem breytt geti því mati Hæstaréttar og héraðsdóms.

Eins og rakið hefur verið er ákærði undir sterkum grun um að hafa, í félagi við annan mann, framið kynferðisbrot sem varðað getur allt að 16 ára fangelsi.  Ákæra vegna brotsins var gefin út 7. desember sl. og var hún þingfest 16. desember sl.  og er aðalmeðferð málsins fyrirhuguð 18. janúar nk. Ákærði hefur setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 frá 21. október sl. Þegar litið er til eðlis hins ætlaða brots verður fallist á það að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna, samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008,  og er ekkert fram komið í málinu sem breytir því mati.  Verður því orðið við kröfu Ríkissaksóknara um að framlengja gæsluvarðhald ákærða, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.  Samkvæmt því verður ekki talið að farbann geti komið í stað gæsluvarðhalds og þykja ekki efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma.

Hervör Þorvaldsdóttir  héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Ákærði, [X], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 10. febrúar 2012, kl. 16:00.