Hæstiréttur íslands
Mál nr. 656/2015
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með ódagsettri kæru sem barst réttinum 1. október 2015. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 29. september 2015 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 6. október 2015 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 29. september 2015.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, að kærða, X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 13. október nk., kl. 16. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Kærði mótmælir kröfu lögreglustjóra og krefst þess aðallega að henni verði hafnað, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími en krafist er.
I
Í greinargerð lögreglustjóra segir meðal annars að 28. september sl. hafi lögreglan lagt hald á mikið magn af sterkum fíkniefnum sem fundist hafi í bifreið sem staðsett hafi verið við gistiheimili að [...] í [...]. Tveir erlendir aðilar hafi verið handteknir í húsnæðinu grunaðir um aðild að innflutningi fíkniefnanna hingað til lands. Lögregla hafi haft eftirlit með bifreiðinni, sem innihélt fíkniefnin, undanfarna daga. Við það eftirlit hafi lögregla orðið vör við aðra bifreið sem virst hafi fylgja hinni eftir. Í bifreiðinni hafi kærði X verið. Kærði hafi verið handtekinn í gær ásamt fleirum og framkvæmd leit á heimili hans og í bifreið sem hann sé skráður fyrir. Við þá leit hafi lögreglan lagt hald á muni og gögn sem styrki grun lögreglu enn frekar um að kærði sé aðili að ofangreindum innflutningi fíkniefna hingað til lands.
II
Lögreglustjóri vísar til þess að í ljósi framangreinds og þeirra gagna sem lögregla hafi aflað sé kærði undir rökstuddum grun um aðild að innflutningi á miklu magni af sterkum fíkniefnum hingað til lands. Ljóst sé að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar hér á landi og telji lögregla að fleiri aðilar kunni að tengjast málinu. Lögregla vinni að rannsókn málsins og sé talin brýn nauðsyn á því að kærði sæti gæsluvarðhaldi á þessu stigi máls þar sem ljóst sé að ef kærði gangi laus þá geti hann sett sig í samband við meinta samverkamenn sem gangi lausir eða þeir sett sig í samband við hann. Þá geti kærði einnig komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögregla hafi ekki lagt hald á nú þegar. Þykir þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga, sé þess krafist að krafa lögreglustjóra nái fram að ganga.
III
Með vísan til alls framanritaðs, svo og gagna málsins, er fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við.
Rannsókn málsins er á frumstigi. Ætla verður lögreglu nokkuð svigrúm til rannsóknarinnar, meðal annars til þess að kanna möguleg tengsl kærða við vitorðsmenn, bæði hér á landi og erlendis. Gangi kærði laus má ætla að hann muni torvelda rannsókn málsins með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni. Samkvæmt þessu telst skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála fullnægt til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Er krafa lögreglustjóra því tekin til greina með þeim hætti sem nánar greinir í úrskurðarorði.
Með vísan til framangreinds er jafnframt fallist á kröfu um að kærða verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvist hans stendur, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Úrskurð þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.
Ú r s k u r ð a r o r ð :
Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 6. október nk. kl. 16:00.
Kærða er gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.