Hæstiréttur íslands

Mál nr. 75/2002


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Miðvikudaginn 13

 

Miðvikudaginn 13. febrúar 2002.

Nr. 75/2002.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Jón Magnússon hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. C liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. febrúar 2002, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 8. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. febrúar 2002, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. sama mánaðar kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

          Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 1. febrúar 2002 var varnaraðila gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til 22. febrúar nk. á grundvelli a. og c. liða 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Hæstiréttur ómerkti úrskurð héraðsdóms 7. þessa mánaðar og vísaði málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar með vísan til þess að sóknaraðili hafi ekki lagt fram gögn til stuðnings staðhæfingum um tiltekin ætluð brot varnaraðila í kröfugerð sinni. Fyrir héraðsdómara hafi því ekki legið nauðsynleg gögn til að tekin yrði afstaða til kröfunnar. Var talið að dómaranum hafi verið rétt að krefja sóknaraðila um þessi gögn áður en hann tók kröfuna til úrskurðar, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga nr. 19/1991. Sóknaraðili gerði á ný kröfu fyrir héraðsdómi að kvöldi sama dags og lágu þá fyrir framangreind gögn.

Varnaraðili hefur viðurkennt að hafa í desember 2001 í félagi við nafngreindan mann svikið út vörur og fé í verslunum í Garðabæ og Reykjavík að andvirði tæplega 700.000 krónur með afhendingu á fölsuðum tékkum. Hann hefur jafnframt viðurkennt að hafa átt tiltekna hlutdeild í brotum sama manns 9. og 10. janúar 2002, er sá síðarnefndi sveik út og reyndi að svíkja út vörur í tveimur verslunum í Hafnarfirði og Reykjavík, og er sá þáttur, sem varnaraðili hefur viðurkennt í þeim samtals að verðmæti rúmlega 300.000 krónur. Þá hefur hann einnig viðurkennt að hafa dagana 22. og 23. janúar sl. í félagi við umræddan mann staðið að því að svíkja út eða reyna að svíkja út parkett að verðmæti rúmlega 3.000.000 krónur.

Eins og að framan greinir hefur varnaraðili viðurkennt að hafa í desember 2001 og byrjun janúar 2002 svikið út vörur, einn eða í félagi við annan mann, að andvirði á aðra milljón króna. Hann var yfirheyrður um þessi brot 16. janúar sl. og sleppt að yfirheyrslu lokinni. Nokkrum dögum síðar var hann handtekinn á ný vegna gruns um umfangsmikil fjársvik og hefur hann, eins og að framan greinir, viðurkennt að eiga þar tiltekinn hlut að máli. Þegar til þessa er litið verður að ætla að varnaraðili haldi áfram brotum meðan málum hans er ekki lokið gangi hann laus. Er því fallist á með sóknaraðila að fyrir hendi séu skilyrði c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 til að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. febrúar 2002.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X verði með úrskurði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. febrúar nk. kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglustjórans í Reykjavík kemur fram að [...].

Eins og fram kemur í greinargerð lögreglunnar hefur kærði gengist við mörgum alvarlegum afbrotum sem framin voru í desember og janúar sl. Þegar litið er til rannsóknargagna og þess sem fram hefur komið þykir sýnt að ætla megi að kærði muni halda áfram afbrotum meðan umræddum málum er ekki lokið.  Þegar litið er til þess sem að framan er rakið ber að fallast á það að allar líkur séu á að kærði muni halda áfram afbrotum gangi hann laus.  Teljast skilyrði c. liðar 103. gr. laga nr. 19/1991 vera fyrir hendi. 

Með vísan til c. liðar 103. gr. laga nr. 19/1991 ber að taka til greina kröfu lögreglustjórans í Reykjavík eins og hún er fram sett.

Kristjana Jónsdóttir kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi til föstudagsins 22. febrúar nk. kl. 16:00.