Hæstiréttur íslands
Mál nr. 201/1999
Lykilorð
- Kærumál
- Nauðungarsala
- Aðild
- Frávísunarúrskurður felldur úr gildi
Mánudaginn 7. júní 1999.
Nr. 201/1999: Silungur ehf.
(Bjarni Þór Óskarson hdl.)
gegn
Laxalind ehf.
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf.
Den Norske Bank AS
Sæmundi Þórðarsyni
Anne May Sæmundsdóttur
Þórði Jóni Sæmundssyni
Siv E. Sæmundsdóttur
Geirlaugu Þorvaldsdóttur
Katrínu Þorvaldsdóttur og
Skúla Þorvaldssyni
(Valgarður Sigurðsson hrl.)
Kærumál. Nauðungarsala. Aðild. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi.
Einkahlutafélagið S krafðist þess að söluskilmálum yrði breytt við nauðungarsölu á varanlegum leiguréttindum L að landi sem fiskeldistöð hafði verið reist á. Var krafa S á því reist að félagið hefði leigt fiskeldisstöðina af L. Máli, sem S rak samkvæmt XIII. kafla laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu um þá ákvörðun sýslumanns að hafna kröfu þess, var sjálkrafa vísað frá héraðsdómi þar sem S þótti ekki hafa sýnt fram á að félagið ætti þinglýst réttindi eða önnur réttindi yfir fiskeldisstöðinni. Talið var að ekki hefði verið hnekkt staðhæfingu S um að félagið hefði gert leigusamning við L. Þótti S geta átt aðild að nauðungarsölunni samkvæmt 3. tölulið 2. gr. laga nr. 90/1991 án tillits til þess hvort rétti þess hefði verið þinglýst eða hvort L hefði verið óheimilt að leigja S fiskeldisstöðina vegna ákvæða í leigusamningi L við landeigendur. Var S því heimilt að leita úrlausnar héraðsdómara um ákvörðun sýslumanns samkvæmt 4. mgr. 22. gr. laga nr. 90/1991 og úrskurður héraðsdómara um frávísun felldur úr gildi.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Arnljótur Björnsson og Markús Sigurbjörnsson.
Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. maí 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 20. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 5. maí 1999, þar sem máli sóknaraðila gegn varnaraðilum var vísað frá dómi. Kæruheimild er 79. gr. laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar. Hann krefst einnig málskostnaðar í héraði og kærumálskostnaðar.
Varnaraðilarnir Laxalind ehf., Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf. og Den Norske Bank AS hafa ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.
Aðrir varnaraðilar krefjast þess að krafa þeirra „í héraði um frávísun málsins frá dómi verði tekin til greina“, svo og að sóknaraðili verði dæmdur til að greiða þeim málskostnað í héraði og kærumálskostnað.
I.
Eins og nánar greinir í hinum kærða úrskurði varðar mál þetta ákvörðun sýslumannsins í Keflavík um uppboðsskilmála við nauðungarsölu á fasteign, sem auðkennd er í þinglýsingarbók sem fiskeldisstöð í Vatnsleysuvík á spildu úr landi Minni-Vatnsleysu og Stóru-Vatnsleysu. Gerðarbeiðendur við nauðungarsöluna eru varnaraðilarnir Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf. og Den Norske Bank AS.
Réttindi yfir fyrrnefndri landspildu eru reist á leigusamningi, sem Lindalax hf. gerði 23. október 1987 við varnaraðilana Sæmund, Anne, Þórð, Siv, Geirlaugu, Katrínu og Skúla sem eigendur Minni-Vatnsleysu og Stóru-Vatnsleysu. Í samningnum voru ákvæði um að honum skyldi þinglýst og að leigutaka væri heimilt að veðsetja réttindi sín samkvæmt honum og láta þinglýsa slíku veði. Samkvæmt 15. gr. samningsins var leigutaka óheimilt að framselja réttindi sín nema með samþykki leigusala, en þeim bar þó að þola aðilaskipti að réttindunum vegna fullnustugerða kröfuhafa leigutakans eða gjaldþrotaskipta á búi hans.
Samkvæmt gögnum málsins mun varnaraðilinn Laxalind ehf. hafa keypt áðurnefnd réttindi af þrotabúi Lindalax hf. með samningi 22. febrúar 1990 og er nú þinglýstur eigandi þeirra. Af þeim sökum er þessi varnaraðili talinn gerðarþoli við nauðungarsöluna. Varnaraðilarnir Sæmundur, Anne, Þórður, Siv, Geirlaug, Katrín og Skúli hafa höfðað mál gegn Laxalind ehf. til staðfestingar á riftun leigusamningsins frá 23. október 1987 og greiðslu vangoldinnar leigu, en málið hefur ekki verið til lykta leitt.
II.
Í málinu staðhæfir sóknaraðili að hann hafi með munnlegum samningi tekið á leigu réttindi Laxalindar ehf., sem umrædd nauðungarsala lýtur að. Vísar hann til þess að fyrir liggi í málinu viðurkenning á þessu af hendi varnaraðilans Laxalindar ehf., svo og sameiginleg yfirlýsing þeirra beggja um efni samningsins. Þessu hafa varnaraðilarnir Sæmundur, Anne, Þórður, Siv, Geirlaug, Katrín og Skúli ekki hnekkt. Þau bera því hins vegar við að annmarki sé á réttindum sóknaraðila vegna þess að hann hafi fengið réttindin framseld frá Laxalind ehf. án þess að afla samþykkis þeirra, eins og áskilið sé í áðurnefndri 15. gr. samningsins frá 23. október 1987. Án tillits til þess hvort þessi mótbára varnaraðilanna eigi við rök að styðjast og þótt sóknaraðili hafi ekki þinglýst rétti sínum getur hann allt að einu notið stöðu aðila við nauðungarsölu á grundvelli réttarins eftir ákvæði 3. töluliðar 2. gr. laga nr. 90/1991. Í skjóli þess var á færi sóknaraðila að krefjast að sýslumaður tæki ákvörðun um að víkja frá almennum uppboðsskilmálum við sölu eignarinnar, sbr. 1. mgr. 29. gr. sömu laga, og leita í kjölfarið dómsúrlausnar þegar þeirri kröfu var hafnað.
Sýslumaðurinn í Keflavík ákvað 28. september 1998 að verða ekki við ósk sóknaraðila um að vikið yrði í nánar tilteknum atriðum frá almennum uppboðsskilmálum við umrædda nauðungarsölu. Sóknaraðili lýsti því yfir í bréfi til sýslumanns 29. sama mánaðar að hann leitaði úrlausnar héraðsdómara um ákvörðunina. Með bréfinu fylgdu yfirlýsingar beggja gerðarbeiðendanna, Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. og Den Norske Bank AS, þar sem þeir lýstu því yfir að þeir tækju undir kröfur og röksemdir sóknaraðila í þessum efnum. Með þessu var fullnægt skilyrðum 4. mgr. 22. gr. laga nr. 90/1991 til þess að sóknaraðili gæti sem aðili að nauðungarsölunni samkvæmt 3. tölulið 2. gr. sömu laga leitað dómsúrlausnar um ágreiningsefnið.
Samkvæmt framangreindu eru ekki efni til að vísa málinu frá dómi. Verður hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.
Eins og atvikum er háttað er rétt að aðilarnir beri hver sinn kostnað af málinu í héraði og fyrir Hæstarétti.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.
Málskostnaður í héraði og kærumálskostnaður fellur niður.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 5. maí 1999.
I.
Mál þetta var þingfest hinn 23. febrúar 1999 og tekið til úrskurðar að loknum munnlegum málflutningi um formhlið hinn 9. apríl 1999. Málið snýst um ágreining um þá ákvörðun sýslumanns í Keflavík að nauðungarsala nr. 980072/98 á eigninni Fiskeldisstöð í Vatnsleysuvík á spildu í landi jarðanna Stóru- og Minni- Vatnsleysu, Vatnsleysustrandarhreppi, nái fram að ganga og að söluskilmálar við væntanlega framhalds nauðungarsölu verði áfram í samræmi við auglýsingu um almenna skilmála fyrir nauðungarsölu á fasteignum nr. 41 frá 1992.
Af hálfu sóknaraðila, Silungs ehf., kt. 631192-2119 og varnaraðilanna Den Norske Bank A/S, Bergen, Noregi, Iðnþróunarsjóðs, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og Laxalindar ehf., kt. 631089-1009, eru þær dómkröfur gerðar, að héraðsdómari breyti ákvörðun sýslumannsins í Keflavík frá 28. september sl. á þann veg að fallist verði á þá ósk Silungs ehf. að breytt verði söluskilmálum við nauðungarsölu fiskeldisstöðvar í Vatnsleysuvík til samræmis við ósk sem kom fram við byrjun sölunnar 17.09.1998. Þá gerir sóknaraðili Silungur ehf. þær kröfur að héraðsdómur ákveði að eigendur jarðanna Stóru og Minni Vatnsleysu eigi ekki aðild að málinu eða nauðungarsölunni.
Af hálfu varnaraðila, eigenda Stóru- og Minni- Vatnsleysu, þeirra Sæmundar Þórðarsonar, Anne May Sæmundsdóttur, Þórðar Jóns Sæmundssonar, Sivjar E. Sæmundsdóttur, Geirlaugar Þorvaldsdóttur, Katrínar Þorvaldsdóttur og Skúla Þorvaldssonar, er þess krafist aðallega, að máli þessu verði vísað frá dómi, en til vara að staðfest verði ákvörðun sýslumanns um óbreytta söluskilmála.
II.
Í nauðungarsölubeiðni Iðnþróunarsjóðs, nú Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, móttekinni af sýslumanninum í Keflavík hinn 13. febrúar 1998, er nauðungarsöluandlag og aðild tilgreint svo:
„Fiskeldisstöð Laxalindar ehf. við Vatnsleysuvík, 190 Vogum, þ.e. öll mannvirki sem eru á leigulandi fiskeldisstöðvarinnar, sbr. þinglýstan leigusamning 23. nóvember 1987, þinglýst skjal nr. 5587/1987. Helstu mannvirki þar eru fiskeldisker, rafstöðvarhús, skrifstofuhús, dælur og tæki til fiskeldis, sbr. 6. gr. veðlaga nr. 17/1987. Ennfremur leiguréttur og öll önnur réttindi sem veðsett eru skv. framangreindum leigusamningi. Gerðarbeiðandi: Iðnþróunarsjóður, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík. Gerðarþoli: Laxalind ehf., kt. 631089, Vatnsleysuvík, Vogum.“
Sýslumaður tók beiðni þessa fyrir hinn 24. apríl 1998 og lagði þá einnig fram nauðungarsölubeiðni frá Den Norske Bank A/S. Auk framangreindra aðila var mætt af hálfu landeigenda, eigenda jarðanna Stóru- og Minni Vatnsleysu, og lögð fram tilkynning um riftun á framangreindum lóðarleigusamningi, útburðarbeiðni og fleiri skjöl er m.a. sýndu að leigutaki samkvæmt framangreindum samningi, Laxalind ehf., síðar þrotabú félagsins, hefði selt Silungi ehf., sóknaraðila í máli þessu, réttinn samkvæmt hinum þinglýsta leigusamningi, ásamt öðrum þeim eignum er nauðungarsölubeiðnin tekur til.
Af hálfu landeigenda var því mótmælt að nauðungarsalan næði fram að ganga, en af hálfu gerðarbeiðenda var krafa um sölu ítrekuð. Sýslumaður féllst eigi á mótmæli landeigenda og ákvað framhald nauðungarsölu. Er sýslumaður tók málið fyrir hinn 17. september 1998 var m.a. bókað:
„Af hálfu gerðarþola (Laxalindar ehf.) mætir Bjarni Þór Óskarsson hdl. Uppboðið var auglýst í Víkurfréttum þann 10.09. sl. Gætt er að því sem segir í 2. og 3. mgr. 31. gr. laga nr. 90/1991. Bjarni Þór Óskarsson hdl. mætir fyrir leigutaka landsins, Silung ehf., og fer fram á að söluskilmálum vegna sölu eignarinnar verði breytt á þann hátt að uppboðskaupandi fái ekki umráð eignarinnar fyrr en að liðnum þremur árum frá því að honum er endanlega slegin eignin. Mætt er af hálfu allra veðhafa og samþykkja þeir framangreinda breytingu á uppboðsskilmálum og gerðarþoli samþykkir einnig framangreint. Af hálfu landeigenda er mættur Ingimundur Einarsson hrl. og mótmælir að framangreind breyting á skilmálum fari fram. Af hálfu gerðarþola og veðhafa er því haldið fram að landeigendur séu ekki aðilar nauðungarsölunnar. Af hálfu landeigenda er bent á að þeir séu aðilar að leigusamningi um eignina. Sýslumaður mun tilkynna aðilum málsins þegar uppboðsskilmálar hafa verið ákveðnir. Hörður F. Harðarson hdl. vegna Fjárfestingarbanka atvinnulífsins býður kr. 300.000. Frekari boð komu ekki fram. Ákveðið er að þessu uppboði verði fram haldið á eigninni sjálfri miðvikudaginn 14. október nk. kl. 13.30.“
Með bréfi dags. 28. september 1998 tilkynnti sýslumaður lögmönnum gerðarbeiðenda, gerðarþola og landeigendum eftirfarandi:
„Í þinghaldi 17. september 1998 við byrjun uppboðs eignarinnar Vatnsleysuvíkur fiskeldistöð, ásamt öllum mannvirkjum og leigurétti á spildu úr landi Minni og Stóru Vatnsleysu, Vatnsleysustrandarhreppi, var þess krafist af óþinglýstum leigutaka landsins Silungi ehf., kt. 621192-2119 að uppboðsskilmálum vegna væntanlegrar nauðungarsölu eignarinnar yrði breytt á þann hátt að væntanlegur uppboðskaupandi eignarinnar fengi ekki umráð hennar fyrr en að liðnum þrem árum frá því honum væri endanlega slegin eignin við framhaldsnauðungarsölu. Var þetta samþykkt af hálfu veðhafa og gerðarþola við nauðungarsöluna.
Af hálfu leigusala þ.e.a.s. landeigenda framangreinds lands var þessu mótmælt.
Sýslumaðurinn í Keflavík hefur nú tekið þá ákvörðun að söluskilmálar við væntanlega framhaldsnauðungarsölu eignarinnar 14. október 1998 kl. 13.30 verði óbreyttir eins og þeir eru tilgreindir í auglýsingu um almenna skilmála fyrir uppboðssölu á fasteigninni nr. 41 frá 1992.“
III.
Máli því sem hér er til úrlausnar var hrundið af stað með bréfi lögmanns leigutakans Silungs ehf. til sýslumannsins í Keflavík dagsettu 29.9.1998 er hljóðar svo:
„Undirritaður, f.h. Silungs ehf., kt. 631192-2119, mótmælir þeirri ákvörðun sýslumanns að hafna ósk um breytingu á söluskilmálum á fiskeldisstöð í Vatnsleysuvík, sem fram kom í þinghaldi 17.09.1998, sbr. ákvörðun dags. 28.09.1998, sem barst undirrituðum í dag.
Þá er því sjálfstætt mótmælt að landeigendur séu aðilar málsins, eða eigi af sölunni nokkra lögvarða hagsmuni, eins og ákvörðunin virðist gera ráð fyrir. Andlag sölunnar er ekki réttindi þeirra, en í þinglýstum grunnleigusamningi er beinlínis gert ráð fyrir því að réttur sem sá samningur veitir verði seldur nauðungarsölu, sbr. 2. mgr. 15. gr. málskjals nr. 12.
Rökstuðningur fyrir því að sýslumaður eigi að verða við ósk um breytingu á söluskilmálum er annars vegar sá, að nauðungarsalan sé framkvæmd af hálfu opinbers valds f.h. gerðarbeiðenda, að teknu tilliti til hagsmuna þeirra sem rétt eiga til söluandlagsins. Í þessu tilviki hefur komið fram einróma ósk allra þeirra sem eiga lögvarðra hagsmuna að gæta af sölunni, um að söluskilmálum verði breytt með tilteknum hætti. Engin rök séu því til þess að sýslumaður gangi gegn óskum þessara rétthafa, enda engin rök færð fyrir ákvörðuninni.
Hins vegar er á því byggt að söluandlagið sé svo sérstakt að það beinlínis kalli á það að sýslumaður ótilkvaddur breyti útfrá hinum almennu skilmálum. Þannig er um mannvirki að tefla sem eru sérútbúin til eldis fisks og eðlilegur eldistími er tvö til þrjú ár. Í fiskeldisstöðinni er fiskur að verðmæti yfir 200 milljónir, verði unnt að ljúka eldisferlinu. Verði hinum almennu söluskilmálum ekki breytt leiðir það til þess að Silungur ehf. gæti þurft að slátra fiskinum langt fyrir heppilegan og fyrirhugaðan sláturstíma. Af því leiðir sóun verðmæta upp á a.m.k. 100 milljónir.
Að framansögðu virtu telur Silungur ehf. ljóst að sýslumanni sé rétt að breyta ákvörðun sinni, en krefst þess ella að málinu verði þegar skotið til Héraðsdóms Reykjaness og að frekari aðgerðir við nauðungarsöluna verði stöðvaðar meðan málið er rekið fyrir dómstólum.
Hjálagðar eru yfirlýsingar veðhafa og gerðarþola um stuðning við kröfu þessa, sbr. og bókun í þingbók við fyrirtöku málsins 17.09.1998.“
Bréfi þessu svarar sýslumaður með bréfi dags. 1. október, þar sem m.a. segir:
„Sýslumaðurinn í Keflavík lítur svo á, sbr. 2. mgr. 73. gr. l. nr. 90 frá 1991, að Silungur ehf. sé með fyrrgreindu bréfi sínu að leita úrslausnar héraðsdómara um þá ákvörðun sýslumanns sem kom fram í bréfi hans til aðila málsins dags. 28. september s.l., en sú ákvörðun er þar kemur fram varðandi söluskilmála við nauðungarsöluna stendur óhögguð. Samkvæmt 3. mgr. 73. gr. l. nr. 90 frá 1991 sendast yður gögn málsins.“
Þess má geta að þann 24. febrúar 1999 var þingfest í héraðsdómi Reykjaness almennt einkamál þar sem að eigendur jarðanna Stóru- og Minni- Vatnsleysu, Vatnsleysustrandarhreppi, Gullbringusýslu krefjast þess að staðfest verði riftun þeirra á leigusamningi, upphaflega við Lindalax hf., nú við Laxalind ehf. og auk þess krefjast þeir greiðslu vangoldins leigugjalds. Silungi ehf. er stefnt til réttargæslu í þessu máli.
IV.
Varnaraðilar, eigendur jarðanna Stóru- og Minni-Vatnsleysu, Vatnsleysustrandarhreppi, Gullbringusýslu, krefjast þess sem fyrr er greint, aðallega að máli þessu verði vísað frá dómi, en til vara að ákvörðun sýslumannsins í Keflavík um að hafna kröfu sóknaraðila um breytingu á nauðungarsöluskilmálum nauðungarsölu nr. 980072/98, Vatnsleysuvík, spilda úr landi Minni og stóru vatnsleysu, verði staðfest. Aðild sína að máli þessu rökstyðja landeigendur með því að þeir hafi sem eigendur þess lands sem leiguréttindi þau sem selja á á uppboði náðu yfir, mikla hagsmuni af því að nauðungarsalan fari ekki fram. Þær breytingar sem krafist hafi verið á uppboðsskilmálum séu miklar og hefðu afdrifarík áhrif á möguleika þeirra til að gæta réttar síns við söluna, t.d. með því að bjóða í hana. Ljóst sé að það skerði til muna þá eign sem krafist er sölu á ef uppboðskaupandi fengi ekki að njóta arðs af eigninni fyrr en eftir þrjú ár. Ljóst sé því að hagsmunir þeirra af framgangi og meðferð nauðungarsölunnar séu miklir og með hliðsjón af höfðun riftunarmálsins sé einnig ljóst að þeir séu brýnir. Salan í heild og þá einkum óeðlilegir og ósanngjarnir söluskilmálar geti samkvæmt þessu augljóslega valdið þeim miklu tjóni og óþægindum. Vísa þeir m. a. til 3. mgr. 29.gr. 4. tl. 2. gr. nsl.
Kröfu um frávísun byggja landeigendur á því að sóknaraðili, Silungur ehf., sé ekki aðili að nauðungarsölunni. Silungur ehf. sé ekki gerðarþoli, heldur Laxalind ehf., og hann sé heldur ekki gerðarbeiðandi. Silungur njóti ekki þinglýstra réttinda yfir söluandlaginu og hafi heldur ekki sýnt óvéfengjanlega fram á óþinglýst réttindi sín yfir því. Silungur hafi ekki verið aðili að þeim leigusamningi sem liggi til grundvallar þeim leiguréttindum sem krafist er uppboðs á, og samkvæmt 15. gr. leigusamningsins geti hann ekki orðið það nema með samþykki landeigenda. Silungur hafi því ekki neina hagsmuni af nauðungarsölunni og sé því ekki réttur aðili að henni skv. 2. gr. nsl.
Landeigendur byggja á því að óheimilt sé að víkja frá almennum söluskilmálum ef telja megi að það torveldi sölu á eigninni eða horfi aðila að nauðungarsölunni eða þriðja manni ólöglega til tjóns, nema fyrir liggi samþykki þessara aðila. Telja þeir að svo mikil frávik frá hinum almennu uppboðsskilmálum geti torveldað sölu á eigninni og valdið þeim miklu tjóni og réttarspjöllum. Vegna þessa krefjast þeir þess að staðfest verði sú ákvörðun sýslumanns að láta almenna uppboðsskilmála gilda við nauðungarsöluna
Niðurstaða.
Við uppboð það sem er grunnur þess ágreinings sem nú er fyrir dómi er gerðarþolinn Laxalind ehf., og er hafið yfir allan vafa að hann gæti verið sóknaraðili í þeim ágreiningi sem nú er uppi um ákvörðun sýslumanns um tilhögun uppboðsskilmála. Samkvæmt 3. tl. 2. gr. nauðungarsölulaga geta þeir einnig verið aðilar sem njóta annars þinglýstra réttinda yfir eign eða réttinda sem ekki er þinglýst. Sóknaraðili Silungur ehf. hefur ekki þinglýst réttindi yfir eigninni. Í málflutningi var því haldið fram af talsmanni Silungs ehf. og einnig af talsmanni Laxalindar ehf. að aðilar þessir hefðu gert ótímabundinn leigusamning um eignina. Hvorki hefur leigusamningur þessi verið lagður fram í málinu né tilvist hans sönnuð á annan hátt. Í 15. gr. samnings þess sem í gildi er milli landeigenda sem leigusala og Laxalindar ehf. sem leigutaka er það tekið fram að leigutaka sé óheimilt að framselja réttindi sín samkvæmt samningi þessum nema með samþykki leigusala. Ekki hefur verið leitað til landeigenda um samþykki á framsali þessara réttinda. Við meðferð þessa máls fyrir dómi hefur sóknaraðili hvorki sýnt fram á það að hann eigi þinglýst réttindi né önnur réttindi yfir eigninni sem ekki eru þinglýst sem réttlætt gætu aðild hans að málinu. Í 4. mgr. 22. gr.nauðungarsölulaga er ákvæði sem kveður á um að aðrir en gerðarbeiðendur geti leitað úrlausnar héraðsdóms um ákvörðun sýslumanns eftir ákvæðum XIII. kafla laganna með þar til greindum skilyrðum. Af greinargerð með frumvarpinu má ráða að heimild þessi er ætluð gerðarþola og aðilum skv. 3. og 4. tl. 2. gr.laganna. Hefur sóknaraðili byggt aðild sína að málinu á 3. tl. 2. gr. nauðungarsölulaganna. Í samræmi við framangreint hefur dómara orðið það ljóst, eftir flutning um frávísunarkröfu varnaraðila og töku hennar til úrskurðar, að sóknaraðili Silungur ehf. getur ekki átt aðild skv. 3. tl. 2. gr. nauðungarsölulaga og þykir því ekki ástæða til þess að fjalla sérstaklega um frávísunarkröfu varnaraðila heldur ber að vísa málinu frá dómi án kröfu
Samkvæmt þessu verður máli þessu vísað frá dómi ex officio.
Rétt þykir að málskostnaður falli niður.
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Máli þessu er vísað frá dómi.
Málskostnaður fellur niður.