Hæstiréttur íslands
Mál nr. 248/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Þriðjudaginn 20. apríl 2010. |
|
|
Nr. 248/2010. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Einar Gautur Steingrímsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. apríl 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 19. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. apríl 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 23. apríl 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að honum verði ekki gert að sæta einangrun. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. apríl 2010.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 23. apríl nk. kl. 16.00. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að um kl. 23.00 að kvöldi laugardagsins 10. apríl sl. hafi lögreglan fundið og lagt hald á mikið magn hættulegra fíkniefna, sem flutt höfðu til landsins með flugi frá Alicante á Spáni fyrr um daginn. Efnin hafi verið kyrfilega falin í þremur ferðatöskum. Við skoðun á töskunum hafi mátt sjá hvar efnunum hafði verið komið fyrir í innvolsi þeirra og ekki hafi verið unnt að ná efnunum úr nema rífa upp innvolsið. Hin haldlögðu efni hafi vegið tæp 1.600 grömm af mjög sterku kókaíni, en samkvæmt matsgerð lyfjafræðistofnunar sé styrkur kókaínsins um og yfir 80%.
Að morgni 11. apríl 2010, um kl. 05.00, hafi lögregluyfirvöld á Keflavíkurflugvelli stöðvað ungt par við komu sína frá Alicante. Hafi parið verið með í fórum sínum þrjár samskonar töskur og hafi efnunum verið komið fyrir í töskunum með sama hætti. Hin haldlögðu efni hafi vegið rúm 1.700 grömm af mjög sterku kókaíni, en samkvæmt matsgerð lyfjafræðistofnunar sé styrkur kókaínsins um og yfir 80%. Lögregla telji fullvíst að málin tengist.
Þá segir í greinargerðinni að lögreglan hafi um nokkurt skeið hlustað á og hljóðritað símtöl aðila, sem lögreglan gruni að tengist umræddum innflutningi. Við þá hlustun hafi komið í ljós ákveðin tengsl milli kærða X og umræddra manna og hafi því verið ákveðið að framkvæma húsleit á heimili hans að kvöldi laugardagsins 10. apríl. Við þá leit hafi fundist m.a. fíkniefni og taska samskonar þeim sem notaðar hafi verið í áðurgreind tvö skipti. Í töskunni hafi verið að finna brotið innvols innan úr annarri tösku og sé það grunur lögreglu að sú taska hafi verið notuð við fíkniefnainnflutning, enda hafi fíkniefnahundur lögreglunnar merkt fíkniefni í töskunni.
Mánudaginn 12. apríl hafi lögreglan framkvæmt leit í bankahólfi kærða og fundið þar muni, sem hún telji tengjast fíkniefnamisferli.
Kærði hafi neitað allri aðild að málinu hjá lögreglu hinn 11. apríl sl. Í skýrslutöku í gær hafi kærði neitað að svara spurningum lögreglu um þá muni sem fundust í bankahólfinu. Þá hafi hann ekki sagst kannast við hina haldlögðu tösku.
Í samstarfi við Europol á Spáni leiti lögreglan nú Íslendings sem búsettur sé á Spáni. Það sé ætlun lögreglu að sá aðili standi að ofangreindum fíkniefnainnflutningum til landsins.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að með úrskurði héraðsdóms Reykjaness 11. apríl sl. hafi kærða verið gert að sæta gæsluvarðhaldi til dagsins í dag kl. 16.00, á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Hafi úrskurðurinn verið staðfestur með dómi Hæstaréttar Íslands með vísan til forsendna.
Rannsókn málsins sé stutt á veg komin, en málið sé talið tengjast vel skipulögðum og umfangmiklum innflutningi á fíkniefnum hingað til lands. Ljóst sé að taka þurfi frekari skýrslur af kærða, meðkærðu og hugsanlegum vitnum málsins og öðrum sem kunna að tengjast málinu. Þá sé nauðsynlegt í þágu rannsóknar að hafa upp á ofangreindum aðila sem nú sé staddur erlendis. Málið sé mjög umfangsmikið og hafi lögregla handtekið og yfirheyrt átta manns vegna þess.
Í ljósi þess að rannsókn málsins er á viðkvæmu stigi sé afar brýnt að krafa lögreglustjóra verði tekin til greina, þannig að kærði fái ekki tækifæri til að torvelda rannsókninni, s.s. með því að koma undan munum, hafa áhrif á aðra samseka eða vitni.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um aðild broti sem fangelsisrefsing liggur við. Rannsókn málsins stendur enn yfir. Haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins með því að koma sönnunargögnum undan eða hafa áhrif á samseka og vitni. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett.
Úrskurð þennan kveður upp Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 23. apríl nk. kl. 16.00.
Kærði sæti einangrun meðan á gæslu stendur.